Félagsbréf - 01.07.1962, Qupperneq 63
FÉLAGSBRÉF
59
Undir handarjaðri ríkisvaldsins.
Það fer ekki mikið fyrir andlegum
átökum í þeim löndum, sem orðið hafa
einrœði að bráð. Þar virðist allt vera
rólegt, á yfirborðinu að minnsta kosti,
og sér ríkisvaldið fyrir því. Öll starf-
semi blaða, útvarps og annarra stofn-
ana, sem annast skoðanamiðlun og
fréttaflutning, er undir smásjá stjórn-
arinnar og flokksins og óánægja með
þessa allsherjarforsjón á ekki neinn
löglegan vettvang. Þögn, sprottin af
ótta og tortryggni, bregður stirðnuðum
dánarsvip yfir ásýnd þjóðfélagsins, og
það er einungis J>egar trúnaðarmönn-
um hins mikla valds bregzt árveknin,
að mönnum gefst í svip #ð skyggnast
undir helgrímuna og virða fynr sér
þau viðbrögð lifandi fólks, sem þar
eiga sér stað. Slík dæmi eru víst ekki
ýkja mörg, en hér skal vikið að einu
þeirra og er það sótt í ungverska tíma-
ritið Uj Iras (Nýjar bókmenntir). Þar
hefur ungverskur rithöfundur um þrí-
tugt, Lazló Gyurkó, skrifað fyrir
skemmstu grein, sem blýtur að hafa
komizt þangað fyrir skort á skilningi
eða aðgát af hálfu ritstjórnar eða rit-
skoðunar. í greininni er varpað skýru
ljósi yfir þann vanda, sem skapazt
hefur við tilkomu þeirrar kynslóðar
uienntamanna, sem uxu úr grasi fyrir
valdatöku kommúnismans en hafa lif-
uð þroskaár sín í skugga einræðis og
vofeiflegra viðburða. I orði kveðnu
heinir hinn ungi höfundur ádeilu sinni
Félagsbókbandið hi.
Ingólfsstrœti 9
★
Símar: 13036 og 22821
Stofnsett 1903
★
Leggjum áherzlu
á fljóta
og vandaða
vinnu.
Verzlið þar
sem kjörin
eru bezt.
★