Stjórnartíðindi fyrir Ísland: B-deild - 01.12.1877, Blaðsíða 111
Stjórnai'tíðindi B 1S.
105
1877
— Hrjef landsliufðingja Ul amtmanmint yfir niSurvmdceminu uni vegagjörð lOá.
yfir Svínaliraun. — Með brjeíi frá 28. f. m. liafið þjer, lierra amtmaður, skýrt 4'JÚ1Í'
mjer frá, að þjer, eptir að undirboðsþing hefði farið fram um framhald vegagjörðar þeirr-
ar j’fir Svínahraun, er samið var um í fyrra við Eirík Asmundsson, liafið samið viðtómt-
húsmann Lúðvík Alexíusson um, að hann taki að sjer 400 faðma langan kafla af þessum
vcgi, fyrir 4 kr. 60 a. faðminn, og skuli vegagjörð þoirri lokið fyrir 1. nóvbr. þ. á.;
hafið þjer beiðzt samþykkis míns til þessarar ráðstöfunar, og takið það fram um leið, að
Lúðvík Alcxíusson sje fús á að taka að sjer aðgjörð á cnn lengri katia af veginum yfir
Svínahraun, og að œskilegt væri, að sem mest af þossum vegi yrði fullgjört á sumri því,
er nú er að líða.
Fyrir því skal yöur tjáð til þóknanlegrar leiðbeiningar og ráðstöfunar, að eg fellst
á, að gjört verði í sumar við allt að 600 föðmum af vcginum yfir Svínahraun, í viðbót við
þá 1000 faðrna, sem samið var um í fyrra, fyrir áminnsta borgun, 4 kr. 60 a. fyrir faðminn.
— Ih-jef landsliufðingja t.il slipUyfirvaldanna um eptirlit með kirkju. 102
— í brjefi frá 23. f. m. hef jeg fengið álit stiptsyfirvaldanna um kæruskjal Eggerts 26- ílllí'
Stefánssonar á Staðarlióli, þar sem hann meðal annars fer þess á leit,, að umsjón Stað-
arhólskirkju verði tekin af Jóni yfirdómara Pjeturssyni, og að kirkjan vcrði með skcmmd-
um sínum matin af óvilhöllum mönnum. Skal nú stiptsyrvöldunum út af þessu tjáð
það, er lijer scgir, til þóknanlegrar leiðbeiningar, birtingar og ráðstafanar.
J>ess skal þá fyrst getið, að það virðist landsstjórninni allsondis óviðkomandi,
hvernig kirkjueiganda þeim, er tekið hefir að sjer gagnvart landsstjórninni að annast
kirkjuna, semur við sameigendur sína, og verður að leita úrlausnar dómstólanna um á-
greiuing þann, er upp kemur milli þeirra.
pað, sem hjer kemur þá til álita, er það, hvort Jón yfirdómari Pjetursson, sem
liefir tekið að sjcr umsjón Staðarhólskirkju, hefir gegnt skyldu sinni vítalaust, eptir því
sem skjöl þau og skilríki, cr fram hafa konrið í þessu máli, bera með sjer.
í þessu efni vorð jeg að lciða athygli stiptsyfirvaldanna að ]iví einkum og sjer
í lagi, að brjef frá presti og sóknarmönnum, dags. í maímán. þ. á., og visitazíur pró-
fasts 8. sept. 1875 og 1. sept. 1876 bera með sjer, að nefndur kirkju-eigandi hefir
síðustu árin undanfarin engan umboðsmann haft innan hjeraðs til að hafa eptirlit
með kirkjunni og gegna skyldum þeim, er kirkju-eigendur hafa við prcst og kirkju, að
skrúða kirkjunnar hefir eigi verið haldið hreinum, nje heldur ldrkjunnni sjálfri, að
sálmabókum kirkjunnar hefir eigi verið lialdið viö, og sama er að segja um graftól, Ijósa-
hjálma og ljósapípur, að vantað hefir brauð og vín handa altarisgöngufólki, að þakið
á kirkjunni, turn og veggir eru í því ástandi, að víða sjef út um, a ð eigi hefir verið
saminn neinn kirkjureikningur fyrir fardaga-árið 1875—1876, o. s. frv.
Jeg hlýt nú út af þessum kærum að skora á stiptsyfirvöldin, að leggja fyrir
nefndan kirkju-eiganda að laga það, sem ábótavant cr, á hœfilegum fresti, og, láti liann
farast fyrir að hlýðnast þessum fyrirmælum, býst jeg við, að þjcr gjörið ráðstöfun ‘til
þess, að skipaður verði sjerstakur tilsjónannaður fyrir kirkjuna af hendi landsstjórnar-
innar á kostnað eigandanna, og að jafnframt verði hafin málssókn gegn kirkju-eigand-
unum, að undangenginni kyrrsetningu á svo miklu af því, sem kirkjan á til, sem við
þykir þurfa til þess að bœta það, scm nú er að henni, og halda honni síðan við á sóma-
samlegan hátt.
Hinn 29. sept. 1877.