Stjórnartíðindi fyrir Ísland: B-deild - 01.12.1877, Blaðsíða 136
1877
130
134 27. gr. í skólastjórninni skulu vora bœjarfógeti og bœjarfulltrúarnir á ísafirði, og
15. nóv. skal bœjarfógeti vera fonnaðúr.
28. gr. Undir skólastjórnina heyrir yfirumsjón yfir skólanum. Hún á þar að auki
að sjá um, að skólareikningurinn sje gjörður í tœkan tíma, og að allir, sem einhverja sýslu
hafa á hendi við skólann, leysi af hendi starfa sinn viðunanlega, og að nákvæmlega
sje farið eptir því, sem ákveöið er í þessari reglugjörð. Skólastjórnin skal eiga fund með
sjer einu sinni á hverju hálfumissiri, ef ekki er nauðsyn á fleiri fundum; og rœða þar og
gjöra út um öll þau málefni, er snerta skólann.
29. gr. Árlega skal skólastjórnin senda stiptsyfirvöldunum skýrslu um ástand skólans
og athafnir síðastliðið ár.
30. gr. Upphæð kennslueyrisins skal ákveðinn í skólaáætluninni, þó skal hann eigi
fara fram úr 20 kr. um árið, og 3 krónum um einstaka mánuði fyrir börn, sem eiga
heima á Ísaíirði, og 40 krónur allt skólaárið og 6 krónur um einstaka mánuði fyrir þau
börn, sem ekki eiga lieima þar í bœnum. Borgunin skal greidd fyrir fram fyrir hvert
hálft missiri; þegar búið er að greiða borgunina, verður henni aldrei aptur skilað. Nú eru
í skólanum á sama tíma systkini, sem eiga lieima á ísafirði, skulu þá að eins borgaðar
fyrir tvö 35 kr., fyrir þrjú 45 kr., fyrir fjögur 50 kr. Eigi skal greitt neitt kennslukaup
fyrir þau börn, er styrks njóta úr fátœkrasjóði, eða þiggi foreldrar þeirra, eða þeir,
sem eiga fyrir þeim að sjá, sh'kan styrk, eða sjeu þeir sökum fátœktar undanþegnir bœj-
argjöldum þeim, sem jafnað er niður eptir efnurn og ástœðum.
31. gr. Skólanefndin á að hafa gætur á, að í skólabekkjunuin sje að minnsta kosti
90 teningsfeta rúm handa hverju af börnum þeim, sem eru í skólanum í einu, að þar sjeu
áhöld þau, sem nauðsyn er á, og að þar sjeu lopthreinsunarsmugur (ventílar). Svo á og
skólanefndin að öðru leyti að hafa eptirlit með, að húsinu og húsgögnum öllum sje ávallt
við haldið í tilhlýðilegu standi.
32. gr. Tekjur skólans eru þær sem nú skal greina: a, kennslueyrir (30. gr.),
b, sektir fyrir brot móti því, sem ákveðið er í reglugjörð þessari, c, gjafir, d, fje sem
menn ánafna eptir sinn dag, e, árlegt tillag úr bœjarsjóði eptir reglugjörð fyrir ísafjörð
26. jan. 1866, smbr. lög 11. febr. 1876 um lóðarskatt á ísafirði.
IV.
Um handvinnuskólann.
33. gr. Skólanefndin á að leitast við að koma því á, að stofnaður verði handvinnu-
skóli lianda stúlkum, einkum þeim, sem eru í efsta bekk barnaskófans, þar sem þeim sje
kennt að spinna og undirbúa ullina undir að hún sje spunnin, svo og að prjóna vefa og
sauma.
34. gr. Að fengnum uppástungum skólanefndarinnar skal skólastjórnin skipa fyrir
um fyrirkomulag kennslunnar í skóla þessum, þegar hann kemst á, svo og eptir hverj-
um reglum börn skulu fara í skólann m. m.
Landshöfðinginn yfir ísland h. 15. dag nóvembermán. 1877.
HilUMtr Finsen.
Jóu Jóussou.