Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist - 01.01.1994, Page 14

Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist - 01.01.1994, Page 14
sína") og drykkjuskap („þeir svolgra ekki í sig vodka hvar sem þeir koma og þefa það ekki uppi í hverjum skáp því þeir vita að þeir eru ekki svín"). En lykilorðið er, sem fyrr segir, uppeldið: Það er nauðsyn að hafa uppeldisáhrif á „gesti Skvortsovs", þótt þeir séu áreiðanlega mesta pakk, eða - eins og segir í lok þessarar merku þulu: Til að ala sig upp og standa ekki neðar en það umhverfi sem maður lendir í er ekki nóg að lesa Pickwick eftir Dickens og læra utan að eintal úr Faust... Hér þarf til að koma endalaust starf dag og nótt, eilífur lestur, nám og vilji... Hver stundin er dýrmæt. Hér eru flestir innviðir í hinum móralska heimi Tsjekhovs reyndar saman komnir: Allt það sem hann vill helst forðast (lygi og fals, til- hneigingar til að nota aðra, níðast á öðrum) og allt það sem eftirsóknar- verðast væri (sjálfsvirðing, mannleg reisn, að leggja öðrum lið). Og um leið er minnt á að það kostar þrotlaust starf og mikinn sjálfsaga að reisa þennan heim og halda honum við. Nú hefur það fyrr og síðar verið siður, ekki síst ungra manna, að setja sér lífsreglur - sem verða ein- hvernveginn eftir á pappírnum, komast aldrei þaðan út í daglega breytni. En Tsjekhov var búinn þeim fágæta sjálfsaga að hann gat fyrr og síðar staðið sjálfur við allt það sem hann las yfir bróður sínum bersyndugum 22 ára að aldri. ITvort sem væri með afskiptum sínum af einstaklingum, bókmenntum eða landsmálum. Eitt lítið dæmi: Tsjekhov situr í Súmi vorið 1889 og dáist að náttúr- unni og hollum áhrifum hennar í bréfi til Súvoríns: Náttúran... stillir til friðar, þ.e.a.s. gerir mann kærulausan, en í þessum heimi verður ekki hjá því komist að vera kærulaus. Kæruleysingjar einir geta séð hlutina skýrt, verið réttlátir og unnið vel - auðvitað á þetta aðeins við vitra menn og göfuga, sérgóðir menn og innantómir eru svosem nógu kærulausir fyrir (XI, 354). Brugðið er upp ákveðinni þversögn: Það kæruleysi (eða æðruleysi) sem náttúran miðlar - það verður enn eitt vopnið í uppeldisstríðinu, í þeirri afskiptasemi af tilverunni sem kemur fram í því að vinna sín verk og vera réttlátur! En um leið er það að sjálfsögðu tekið frarn, að þetta kæruleysi getur ekki öllum að haldi komið. Rétt eins og Tsjekhov þekkti þá erfiðleika í uppeldi, að alþýða manna gat vel tekið upp á því að B I A R T U R O G F R U E M I L I A 12

x

Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist
https://timarit.is/publication/1206

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.