Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist - 01.01.1994, Blaðsíða 80
O, hvar er hún, hvað hefur orðið af fortíð minni, þegar ég var ungur, kátur,
gáfaður, þegar mig dreymdi glæsta drauma og ég hugsaði hátt, þegar vonin
skein yfir nútíð og framtíð? Af hverju stafar það að við erum ekki fyrr
komnir á manndómsaldur en við verðum leiðinlegir, gráir, hversdagslegir,
latir, kærulausir, gagnslausir, óhamingjusamir...
Systurnar horfa aftur á móti fram á við og vonast til að geta flutt úr
sveitinni til Moskvu. Þá muni allt lagast.
Margar persónur í leikritunum skortir tilgang í lífinu og mikið er
fjallað um gildi vinnunnar. Túzenbakh í Þrem systrum harmar að hafa
aldrei starfað neitt og Írína tekur seinna undir með honum og segir:
Eg verð að vinna, ég verð að vinna. Við erum svo niðurdregin og lítum svo
myrkum augum á tilveruna vegna þess að við þekkjum ekkert til vinnu.
Ymsar persónur hans vinna að vísu góð og gegn störf, en sjá ekki að
starf þeirra hafi borið tilætlaðan árangur. Olga í Þrem systrum er
kennslukona. Vanja frændi og Sonja vinna hörðum höndum á búgarð-
inum til að Serebrjakov geti stundað fræðistörf sín, sem reynast svo
engin vera. Framtíðin býður svo ekki upp á annað en áframhaldandi
strit.
í síðasta þætti Vanja frænda á sér stað eftirfarandi samræða milli
Astrovs læknis og Vanja frænda:
Vanja: Ég er fjörutíu og sjö ára: Ef ég lifi það að verða sextugur, á ég
eftir þrettán ár í viðbót. Það er langur tími. Hvernig á ég að fara að því að
þrauka í þessi þrettán ár? Hvað á ég að gera, hvað hef ég til að gefa þeim
fyllingu? [...] ef maður gæti aðeins lifað því lífi sem maður á eftir á einhvern
nýjan hátt. Vaknað á kyrrum sumarmorgni og fundið að maður væri byrjað-
ur nýtt líf [...]
Astrov: [...] Þeir sem lifa eftir eitt til tvö hundruð ár og fyrirlíta okkur
fyrir að hafa lifað okkar lífi á svo heimskulegan og ósmekklegan hátt - þeir
finna kannski ráð til að vera hamingjusamir; en við... þú og ég, við eigum
aðeins eina von. Þá von, að þegar við sofum í gröfinni muni vitja okkar sýn-
ir [...]
Persónur Tsjekhovs verða ástfangnar en annaðhvort ná elskendurnir
B I A R T U R O G F R U E M 1 L I A
78