Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist - 01.01.1994, Side 27

Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist - 01.01.1994, Side 27
því sem rithöfundur er ég skelfing fáfróður, ég þarf að skrifa af samvisku- semi, með tilfinningu og svo vit sé í, skrifa ekki fimm arkir á mánuði heldur eina örk á fimm mánuðum. Ég þarf að koma mér að heiman, fara að lifa á 700-900 rúblum á ári en ekki 3-4 þúsundum eins og núna, ég þarf að lýsa frati á margt, en í mér er vísast meira af úkraínskri leti en dirfsku. Hvað sem því líður: Tsjekhov fór til Sakhalín og margt fleira lagði hann á sig, en af skáldsögunni miklu varð aldrei. Stundum er hann svo í þeim ham að finnast ritstörfin einhver óþolandi skylda og kvöð. Vorið 1894 skrifar hann Líku Mízínovu frá Jalta og segir að sér leiðist, vegna þess að ...sú hugsun hverfur ekki frá mér eitt andartak að ég þurfi, sé skyldugur til að skrifa. Skrifa, skrifa og skrifa. Ég er þeirrar skoðunar að sönn hamingja sé óhugsandi án iðjuleysis. Hugsjón mín er að gera ekki nokkurn skapaðan hlut og elska þybbna stúlku... Ég er í þeim mæli grátt leikinn af stöðugum hugsunum um óumflýjanleg skyldustörf, að í heila viku hefi ég þjáðst af óreglulegum hjartslætti (XII, 51). Grernja Tsjekhovs getur semsagt beinst stundum að því að hann geri ekki nóg, stundum reiðist hann svo þeim starfsaga sem hann hefur á sig lagt: „Þegar ég er að skrifa núna (sumarið 1898) eða hugsa um að ég verði að skrifa, þá finn ég til sama viðbjóðs og væri ég að éta kálsúpu sem kakkalakki hefði verið dreginn upp úr" (XII, 233). Og sarnt, og þó: Tsjekhov er líka stoltur af því sem hann hefur skrifað. í reiðilegu bréfi til Lavrovs, ritstjóra Rússneskrar hugsunar, segist hann marga vitleysu hafa gert en hann þurfi ekki að skammast sín fyrir eina einustu línu sem hann hefur skrifað (X, 429). Og hvað sem hann hefur áður sagt um skáldsöguna miklu sem aldrei var skrifuð og sína ómerkilegu smámuni sem allir verði búnir að gleyma tíu árurn eftir að hann er dauður, þá getur hann með sanni sagt við Súvorín (1895): „Jæja, fari þær í rass og rófu þessar bókmenntir, heldur ætti maður að fást við lækningar. Annars er það ekki mitt að dæma um það. Bókmenntunum á ég að þakka hamingjusömustu daga ævi minnar og það skásta af því sem mér er kært" (XII, 70). T í marit um bókmenntir og leiklist 25

x

Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist
https://timarit.is/publication/1206

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.