Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist - 01.07.1995, Síða 67

Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist - 01.07.1995, Síða 67
Frá elstu tíð hafa íslendingar hatast við Reykjavík, fólk var á síðustu öld talið danskt við það eitt að búa hér. ísland var langt fram á þessa öld eitthvert mesta og gallharðasta landbúnaðarsamfélag sem sögur fara af, og ráðamenn þessa lands, íslenskir, töldu það sitt helsta verkefni að koma með öllum ráðum í veg fyrir eðlilega þéttbýlis- myndun hér, settu lög sem bönnuðu að þorp mynduðust við sjávar- síðuna eins og landshagir kröfðu, en hröktu þess í stað fólk upp á heiðar og inn til dala í óskiljanlegt hokur eða ánauð vinnumennsk- unnar. Það var Tómas, og blessaður sé hann fyrir það, sem fyrstur sagði: Reykjavík! Þetta er indæl borg, hér eru meira að segja lóur í Vatnsmýr- inni sem eru að æfa lögin sín fyrir konsert morgun- dagsins og vesturbærinn er heimur með sálir sem syrgja og gleðjast. Alls staðar sá hann lífið að verki. Hann var þessi frómi og hrekklausi sveita- piltur sem gat meira að segja fórnað höndum og hrópað upp yftr sig: Ja hérna, öll þessi hús! En ósköp þurfti hann að láta sér sjást yfir margt til þess að geta gefið okkur þessa sjálfsmynd. Öll hreysin, skíturinn og drullan, aurinn á götunum, rónarnir og vitfirringamir og þeir beygðu og þeir brotnu og þeir útþrælkuðu; og rigningin og rokið sem við vitum ósköp vel að rfkja yfir lífi okkar, gráminn, auðnin, moldin, öll sú mold í einni borg og allir sá sandur sem maður má bryðja hér! En það var ekki hlutverk Tómasar að benda á það sem allir sáu og allir vissu heldur hitt sem enginn hafði nokkru sinni hugsað um: að Reykjavík gæti haft þokka til að bera og að hvar sem manneskjurnar hópa sig þar kviknar ástin, þar er talað saman, spaugað og spjallað og horft og bent og vöngum

x

Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist
https://timarit.is/publication/1206

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.