Frón - 01.06.1944, Page 15
Að yrkja á íslenzku
77
er sótt hafi heim marga höfSingja og skemmt hirSmönnum
þeirra meS flutningi braga. ViSa má þræSa frumtextann ef
ísIenzkaS er, helzt ef orSaval er haft í fornyrtara Iagi. Um orSiS
‘sælli’ í síSustu línu skal þess getiS aS þaS er í fornensku
notaS stundum þar sem viS mundum fremur segja ‘betri’.
I’onne wit Scilling
sclran reorde
for uncrum sigedryhtne
song ahöfan,
hlude bi hearpan
hleoðor swinsade,
þonne monige men
mödum wlonce,
wordum sprécan,
þaþe wel cuöan,
þæt hi næfre song
séllan ne»hyrdon.
Þá er við Skillingur
skýrri röddu
fyrir okkrum sigdrottni
söng of hófum,
hvellt við hörpu
hljómar glumdu,
þá margir menn
móði þrungnir,
orðum mæltu,
þeir er allvel kunnu,
að þeir aldrei söng
sælla heyrði.
MeSan Egill Skallagrimsson var aS svamla á Englandi, kunnu
þarlendir menn aS yrkja meS stuSlum engu síSur en hann. Og
þaS hélzt lengi enn. En þegar kemur fram á 14. öld er þess
háttar kveSskapur ekki í tízku lengur. HöfuSskáld landsins
Chaucer horfir suSur á bóginn og yrkir undir frakkneskum
háttum, en úti á landsbyggSinni eru samtímis önnur skáld sem
kveSa upp á gamla móSinn. Einn þeirra var William Langland,
sem orti Piers Plowman á síSara helmingi aldarinnar, síSasta
stuSlaS kvæSi í enskum bókmenntum sem enn er haft í minnum.
En einnig á næstu öld voru menn til á Englandi sem kunnu aS
yrkja á forna vísu, þó aS nú taki heldur aS dofna yfir íþróttinni,
og hún kulnar ekki út meS öllu fyrr en eftir 1500, á dögum
Jóns biskups Arasonar. PaS er dapurlegt aS hugsa til þessara
karla sem einangraSir og óstuddir af þeim sem forustuna höfSu
í bókmenntum landsins héldu áfram aS kveSa eftir fornum
reglum, líkt og íslendingar gerSu á sínum norSurhjara, þó aS
hvorugir vissu af öSrum. Hver veit nema þessi skáldskapur hafi
þá átt sér enn einn griSastaSinn, í IslendingabyggSum Græn-
lands? En þar hljóSna allar raddir þegar hér er komiS sögu.
Á NorSurlöndum utan íslands týnast fyrr stuSlar en á
Englandi. Peir eru þar aSeins varSveittir í IjóSmælum í fornum
rúnaristum, eins og t. d. þessari vísu, sem höggvin hefur veriS