Frón - 01.06.1944, Side 28
■90
Jón Helgason
frá borði«. Eitthvað svipað mundum við segja enn í dag ef við
ættum að telja kosti stuðlanna. Okkur mundi þá helzt verða að
orði að þeir byndi Ijóðlínurnar fastar saman, skorðuðu kvæðin
betur, og það hefði aftur áhrif á alla formtilfinninguna, gerði
hana öruggari og traustari. Ekki mundum við heldur Iáta undir
höfuð leggjast að geta þess að gaman sé að kunna nú einir manna
þessa ævafornu íþrótt sem kynstofn vor hefur iðkað upp undir
2000 ár og á upptök sín langt aftur i rammri heiðni og forneskju.
Hins vegar yrði naumast neinum þeim manni sem borið hefur
við að kveða á íslenzku orðfall ef telja skyldi skuggahliðar
stuðlanna. Hann mundi þá framar öllu nefna að þeir gera skáld-
skapariðjuna hjá oss erfiðari og vandasamari en hjá öðrum
þjóðum. Orðfæri íslenzkra ljóða hljóti að fjarlægjast eðlilegt mál
meira en annars staðar. EJtlend kvæði verði sjaldnast íslenzkuð
án þess að mikið fari forgörðum, af því að hömlurnar séu svo
sterkar, leiðin svo þröng. Og loks gæti vel verið að einhver bætti
þvi við að sér þættu stuðlar stundum alls ekki fagrir, heldur
jafnvel þreytandi, háværir og uppivöðslusamir, einkanlega í
stuttum ljóðlínum. En þegar öllu væri á botninn hvolft þykist
ég vita að mótbárurnar mundu reynast nasalæti. I5ví að hjá
hverjum þeim sem fengið hefur brageyra sitt mótað af íslenzkum
kveðskap er stuðlatilfinningin svo rótgróin að hann getur ekki
hugsað sér að yrkja án þeirra. Ég hef stundum borið það við af
rælni. En mér er ekki til neins að reyna, því að ég treysti mér
blátt áfram ekki til að heyra hvort hljómfall íslenzkrar vísu er
rétt, sé hún óstuðluð.
Stuðlarnir gera enn sem forðum kröfur til orða sem miklu
varði í setningunni. Að vísu væri ókleift í rímuðum háttum að
fylgja hnigi og risi ræðunnar með svipuðu frelsi og í fornyrðis-
Iagi eða ljóðahætti, en hins vegar fer ekki vel að slaka svo á
kröfunum að orð sem lítill eða enginn þungi ætti að fylgja i
mæltu máli beri stuðul. Samt má finna þess næg dæmi hjá
skáldum:
Ég veit ao allir eru flúnir úr bænum —
Sjá, auð er gatan þar sem fólkinu dvaldist.
í eðlilegum framburði setningarinnar »allir eru flúnir úr bænum«
hefur eru enga áherzlu. Ófimlegt er að stuðla á síðara lið orðs,
allra helzt ef fyrri liður er einkvæður:
sem himins þíns bragandi norðljósa Iog
og ljóðin á skáldanna tungu.