Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.11.2015, Page 10

Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.11.2015, Page 10
Ljósmynd/Þórhallur Jónsson Um fjórar milljónir króna söfn- uðust í október hinum bleika fyrir Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis. Söfnun félagsins er vegna nýs brjóstaómskoðunartækis fyrir Sjúkrahúsið á Akureyri, sem kostar um tíu milljónir króna en nú hafa alls safnast rúmar níu. Vilborg Jóhannsdóttir kaup- maður í Centro á Akureyri og Inga Vestmann í Pedromyndum hafa síðustu ár staðið fyrir Dömulegum dekurdögum í tengslum við átakið Bleikan október. Þá er bleiki lit- urinn áberandi í hinum ýmsu versl- unum, ýmis tilboð á vörum sem sérstaklega höfða til kvenna og bærinn skreyttur víða með bleikum slaufum í ljósastaurum. Um 7000 íslenkar konur eru á lífi eftir að hafa farið í gegnum krabbameinsmeðferð og er mark- mið Krabbameinsfélag Íslands með Bleika október, þessu fjáröflunar- og árvekniátaki, að hækka þá tölu enn frekar. Á lokakvöldi Bleiks október á Akureyri afhentu þær Inga og Vil- borg Krabbameinsfélagi Akureyrar og nágrennis 1,1 milljón sem var afrakstur þátttökugjalda þeirra 75 fyrirtækja sem þátt tóku í Dömu- legum dekurdögum í ár, af klúta- sölu og því sem þær kalla Slaufu í staurinn. „Við hækkuðum þátttökugjaldið í ár, sem öllum fannst sjálfsagt, og höfum notið mikillar velvildar bæj- arbúa enda málefnið mjög þarft. Gamla ómskoðunartækið þykir ekki nógu gott lengur og þörfin mikil fyrir nýtt,“ segir Inga. „Einstök stemning var á loka- kvöldinu hjá okkur á Icelandair hótelinu og fleiri fyrirtæki og ein- staklingar notuðu tækifærið og af- hentu styrki sem þeir vildu leggja í söfnunina.“ AKUREYRI Dömulegar milljónir VILBORG JÓHANNSDÓTTIR OG INGA VESTMANN STANDA AÐ DÖMULEGUM DEK- URDÖGUM OG SAFNA FÉ TIL STYRKTAR KRABBAMEINSFÉLAGINU FYRIR NORÐAN Þorbjörg Yngvadóttir, formaður Krabba- meinsfélags Akureyrar og nágrennis, Hlíf Guðmundsdóttir, formaður stjórnar, Halldóra Björg Sævarsdóttir, starfsmaður félagsins, Vil- borg Jóhannsdóttir og Inga Vestmann. 10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8.11. 2015 * Við sitjum á viljugum fola sem við erum að reynaað hemja, frekar en einhverri letibikkjuMár Guðmundsson seðlabankastjóri ver stýrivaxtahækkun bankans.Landið og miðinSKAPTI HALLGRÍMSSON skapti@mbl.is UM ALLT LAND Lyfjafyrirtækið á Grenivík HORNAFJÖRÐUR hefur sveitarfélagsins. Auglýst hefur verið eftir fulltrúum í nefndina. STÖÐVARFJÖRÐUR Talið er að landnáms- bústaðurinn á Stöð sé fundinn, fyrsti landnámsskálinn á Austurlandi, og er vonast til að úr því verði skorið með rannsóknum í þessum starfsmenn í VISS tekið eitt og eitt illa farið Níu söguskilti hafa verið af-hjúpuð í Hveragerði áundanförnum árum, það nýjasta segir frá Drullusundi í mið- bænum. „Þetta er annað af tveimur und- arlegustu örnefnum í Hveragerði; hitt var Skrattabæli, hús sem eyði- lagðist því miður í jarðskálftanum fyrir nokkrum árum og varð að rífa í kjölfarið,“ segir Aldís Haf- steinsdóttir bæjarstjóri. Drullusund er göngustígur þvert yfir hverasvæðið í miðbænum og tengir miðbæinn og efra þorpið, sem svo er kallað. „Þetta er gömul leið sem hefur alltaf borið þetta nafn. Ég hef búið hér í bænum síð- an ég var lítil og þetta er þekkt ör- nefni. Allir þekkja Drullusundið,“ segir Aldís. „Við höfum verið með í gangi verkefni í áratug, setjum upp eitt söguskilti við markverðan stað á hverju ári og höfum gefið út götu- kort sem gefur fólki tækifæri til að fara á milli skiltanna og fræðast um sögu Hveragerðis. Sveitarfélag- ið er ekki gamalt, verður 70 ára á næsta ári, og þótt mörg önnur sveitarfélög séu miklu eldri státum við af skemmtilegri sögu. Gestir bæjarins og jafnvel ekki íbúar sjálfir þekkja þó ekki söguna nema einhver segi þeim hana. Við viljum gefa fólki tækifæri til að kynna sér sögu bæjarins, gárungarnir segja reyndar stundum að í sveitarfé- laginu, sem er eitt það minnsta að flatarmáli á landinu, geti ekki verið mjög margir merkilegir staðir, en við erum ekki hálfnuð!“ Drullusund liggur milli gatnanna Bláskóga og Hveramerkur. Í upp- hafi mun Drullusundið aðeins hafa átt við leiðina frá þinghúsinu (Breiðumörk 25) að Ásum (Hvera- mörk 16) en eftir að byggð fór að myndast vestanmegin við hvera- svæðið á fjórða og fimmta áratug síðustu aldar færðist heitið yfir á núverandi göngustíg. Drullusundið var einkum notað af íbúum til að stytta sér leið á milli þorpshluta, að sögn Aldísar bæjarstjóra, börnum á leið í skóla og húsmæðrum til innkaupa. „Áður en Drullusundið var hellu- lagt myndaðist á gönguleiðinni, einkum í vætu, drullusvað og af því dregur stígurinn nafn sitt. Heppi- legasti fótabúnaðurinn var þá HVERAGERÐI „Allir þekkja Drullusundið“ ÖRNEFNI ERU OFT ÓVENJULEG OG SKEMMTILEG. DRULLU- SUND Í HVERAGERÐI ER EITT ÞEIRRA, NAFN Á GÖNGU- STÍG SEM VERIÐ HEFUR Í NOTKUN FRÁ UPPHAFI BYGGÐ- ARINNAR, ÞVERT YFIR HVERASVÆÐIÐ Í MIÐBÆNUM.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.