Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.11.2015, Blaðsíða 11
Yfirvöld í Fjarðabyggð ákváðu að
útvista rekstri skíðasvæðisins í
Oddsskarði, eins og það er kallað;
fá sem sagt einhvern til að annast
reksturinn gegn greiðslu og samið
var í sumar til fimm ára við Ómar
Skarphéðinsson, þrautreyndan
garp í skíðabransanum.
„Ég tók við skíðamiðstöðinni
hérna 1983 eða ’84. Konan mín er
héðan að austan og við bjuggum
hér í 30 ár en fluttum 1999 í
„flóttamannabúðirnar“ á suðvest-
urhorninu,“ segir Ómar í samtali
við Morgunblaðið.
„Þegar við komum suður tók ég
við skíðasvæðinu í Henglinum, þar
sem nú er virkjun, og rak þangað
til það var tekið niður. Eftir það
starfaði ég í Bláfjöllum þar til í
vor og við fluttum austur í sumar.“
Ómar hefur lengi verið tengdur
mjöllinni því hann annaðist snjó-
mokstur í tíu ár áður en hann hóf
störf í Oddsskarði á sínum tíma.
„Sveitarfélagið ákvað að prófa
þetta rekstrarform, auglýsti, ég
sótti um og fékk. Fékk svæðið af-
hent 16. október og er nú byrjaður
af krafti að undirbúa veturinn. Hér
verða svo sem ekki miklar fram-
kvæmdir, venjulegt viðhald og að
auki fengum við 50 fermetra hús
undir skíðaleig-
una, sem áður
var í litlum
gámi. Húsið
verður við hlið
skíðaskálans, við
getum eflt leig-
una mjög og
nýtt skálann al-
farið fyrir gesti
sem vilja borða
nestið sitt.“
Samningur Ómars og Fjarða-
byggðar er til 5 ára en báðir geta
reyndar rift honum með þriggja
mánaða fyrirvara næsta vor, „ef ég
verð ekki ánægður með reksturinn,
einhverra hluta vegna, og þeir ekki
ánægðir með þjónustuna“.
Samkvæmt samningi ber Ómar
ábyrgð á rekstri, viðhaldi og
öryggismálum skíðasvæðisins gegn
árlegri 45 milljóna króna greiðslu.
Tekjur af lyftugjöldum, veitinga-
sölu og skíðaleigu renna til hans.
Ómar segir að við breytt rekstr-
arfyrirkomulag eigi þjónustan að
verða pesónulegri og sveigjanlegri.
„Ég get tekið ákvörðun um
næturopnun að kvöldi dags ef mér
dettur í hug án þess að spyrja
nokkurn að því. Þegar bærinn rek-
ur svona starfsemi er allt miklu
flóknara og seinna í vöfum. Við
viljum byggja upp ferðaþjónustu á
Austurlandi og þá skiptir t.d.
miklu máli að hafa sveigjanleika ef
hópar koma á óhefðbundnum
tíma.“
Ómar er viss um að snjó muni
ekki skorta og skíðamenn geti fjöl-
mennt í brekkurnar í Oddsskarði.
„Hér hefur verið dásamlegt veður
undanfarið, það kom smá föl um
daginn en nú hefur verið sól og
blíða í töluverðan tíma. En snjór-
inn kemur; ef ekki í vetur þá bara
næsta vetur!“
ODDSSKARÐ
Snjórinn kemur, ef ekki í
vetur þá næsta vetur!
ÓMAR SKARPHÉÐINSSON
HEFUR TEKIÐ AÐ SÉR
REKSTUR SKÍÐASVÆÐISINS Í
ODDSSKARÐI NÆSTU ÁRIN.
Útsýnið er fallegt úr skíðabrekkunum í Oddsskarði í landi Fjarðabyggðar.
Morgunblaðið/Kristinn
Ómar
Skarphéðinsson
8.11. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11
Forláta heitur pottur er niðri við sjó
á Hjalteyri við Eyjafjörð. Frjálst er
að nota pottinn, en fólk er vinsam-
lega beðið um frjáls framlög í kassa,
til að hjálpa við að halda pottinum
heitum. Gott sé að miða við 500 kr.
á mann og 300 kr. fyrir barn.
Bent er á að ætli menn að synda í
sjónum skuli það gert fyrst en síðan
farið í pottinn. Ekki öfugt. Fólk er
beðið að sýna aðgát og greint frá
því að það dýpki snögglega skammt
frá landi. Það var félagið Hjalteyri
sem setti pottinn upp og sér um
kostnaðinn við heita vatnið. Á skilti
er fólki bent á að það fari ofan í á
eigin ábyrgð og jafnframt tekið
fram að börn megi ekki vera án eft-
irlits í pottinum. Húmorinn er á sín-
um stað hjá félagsmönnum, eins og
síðasta setningin ber með sér:
„Börn án eftirlits verða seld í
beitu.“ Ekki mun hafa reynt á það
ennþá …
HJALTEYRI
Börnin seld í beitu!
Potturinn er nánast í flæðarmálinu og auðvelt að njóta hitans eftir sjósund.
Morgunblaðið/Skapti
Húsnæðið við Búhamar í Eyjum, þar sem hæfingarstöðin
Hamar er, verður selt til að mæta kostnaði við flutning og
endurbætur á húsnæði kertaverksmiðjunnar Heimaeyjar.
Hún verður eftir það rekin sem Fjöliðjan Heimaey.
Breytingar í Eyjum
Ungmennaráð Fjallabyggðar hefur bent á Listhúsið í Ólafs-
firði sem mögulegt framtíðarhúsnæði fyrir félagsmiðstöð
unglinga. Ráðið vakti í vikunni athygli bæjaryfirvalda á því
að húsið væri til sölu og gæti hentað vel undir starfsemina.
Verður Listhúsið félagsmiðstöð?
gúmmístígvél, sem áttu það til að
festast í leðjunni svo erfitt gat
reynst að komast þurrum fótum
yfir,“ skrifaði á sínum tíma Gunnar
Benediktsson, rithöfundur og
hreppsnefndarmaður, þegar hann
lýsti ástandi samgöngumála í
Hveragerði um miðja öldina. Gunn-
ar segir svo frá að eftir að fjöl-
skyldan flutti í Skáldagötu, þar
sem nú heita Frumskógar, var þar
„enn ekki vottur af götu að öðru
leyti en því, að húsalínur voru að
nokkru leyti beinar í gegnum þræl-
þýfðan móa, þá var ekki hægt að
fara með litlu dótturina niður í
þorp nema með mikilli fyrirhöfn.
Það þurfti tvo til að starta því fyr-
irtæki, þar sem annar þurfti að
annast barnið, en hinn að skondr-
ast með vagninn, þar til komið var
á breiðstræti hverasvæðisins.“
Horft yfir Drullusund og hverasvæðið í Hveragerði. Myndin er tekin 1983.
Aldís Hafsteinsdóttir, Guðmundur Ingi Gunnlaugsson sem ólst upp að Geir-
landi, sem stóð við vesturenda Drullusunds, og Kolbrún Vilhjálmsdóttir eig-
inkona Njarðar Sigurðssonar, sagnfræðings sem vann texta og myndir.
...með nútíma
svalalokunum
og sólstofum
Skútuvogur 10b, 104 Reykjavík, sími 517 1417, glerogbrautir.is
Opið alla virka daga frá 9-17 og á föstudögum frá 9-16
• Svalalokanir
• Glerveggir
• Gler
• Felliveggir
• Garðskálar
• Handrið
Við færumþér logn & blíðu