Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.11.2015, Blaðsíða 56
SUNNUDAGUR 8. NÓVEMBER 2015
Ísland er leikaranum og kvikmyndaleikstjóranum Ben Still-
er greinilega ofarlega í huga þessa dagana. Á Twitter hefur
hann sagst vera að reyna að stauta í gegnum fréttir ís-
lenskra vefmiðla af nýjasta tónlistarmyndbandi Justins Bie-
ber. Myndbandið er tekið upp hérlendis og þykir það vera
undir sterkum áhrifum kvikmyndar Bens Stiller; The Secret
Life of Walter Mitty.
Nú síðast póstaði hann frétt um skammdegið sem er að
hellast af fullum þunga yfir New York en um það er skrifað
í New York Post. Ben Stiller skrifar: „Ef þú værir Íslend-
ingur, værirðu að fagna þessu.“ Fylgjendur hans á Twitter
fara svolítið að velta þessu fyrir sér. Einn spyr hvort Björk
Guðmundsdóttir sé þá líka að fagna. Og annar sér fyrir sér
að Íslendingar hafi það bara flott í myrkrinu; naktir í heit-
um laugum, drekkandi vodka og hlustandi á tónlist á Air-
waves.
Ben Stiller dvaldi á Ís-
landi þegar hann tók upp
mynd sína The Secret
Life of Walter Mitty. Um
það leyti sagðist hann
vilja flytja hingað til lands
með alla fjölskylduna.
BEN STILLER Á TWITTER
Telur Íslendinga
fagna skammdeginu
Ben Stiller er viss um að Íslendingar taki á móti
skammdeginu með bros á vör.
Morgunblaðið/Golli
„Íslandsmeistarar Akraness
sýndu það og sönnuðu í leik sínum
við Dynamo Kiev í gærkvöldi að
þeir bera titilinn bezta lið Íslands
svo sannarlega með réttu.“
Með þessum orðum hófst frétt á
íþróttasíðu Morgunblaðsins
snemma í nóvember 1975.
„Akurnesingar töpuðu leiknum
2:0 fyrir sovézka liðinu, sem ný-
lega hlaut titilinn bezta lið Evr-
ópu,“ segir einnig í frásögn Ágúst-
ar Inga Jónssonar. „Það segir þó
engan veginn alla söguna að Rúss-
arnir ynnu 2:0, þar kemur ekki
fram, að Björn Lárusson misnot-
aði vítaspyrnu í síðari hálfleiknum
og að Jón Gunnlaugsson skoraði
sjálfsmark örstuttu seinna. Í töl-
unum sem munu geymast í skrám
og skjölum kemur heldur ekki
fram að Skagamenn sýndu þarna
einn bezta leik sem íslenzkt fé-
lagslið hefur sýnt gegn svo sterku
erlendu liði fyrr og síðar.“
Létt var yfir Birni Lárussyni
eftir leikinn. „Ég horfði í augun á
rússneska markverðinum um leið
og ég hljóp að boltanum. Hann var
eitthvað svo aumur ásýndum að ég
hafði ekki brjóst í mér til að skora
hjá honum og skaut því yfir,“ sagði
hann um afbrennsluna.
GAMLA FRÉTTIN
Féllu með
sæmd
Skagamaðurinn Björn Lárusson brennir af vítaspyrnu gegn Dynamo Kiev
fyrir réttum fjörutíu árum. Skot hans fór yfir mark sovéska liðsins.
Morgunblaðið/Sigtryggur
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Angie Harmon
leikkona
Candice Bergen
leikkona
Anna Lilja Johansen
eigandi Another CreationSkeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
GM 3200
GM 7700
GM 9900
Borðstofuborð