Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.11.2015, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.11.2015, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8.11. 2015 Matur og drykkir H ann segist hugsa um mat allan daginn og á sér engin önnur áhugamál. Óskar Finnsson, sem býr í Barcelona, er kominn til landsins til að kenna Íslendingum að elda kvöldmat á auðveldan og hagkvæman máta í stuttum þáttum sem sýndir verða á mbl.is. Mætti seint fyrsta daginn á Ask Óskar kann sitt lítið af hverju fyrir sér í eldamennsku, er óhætt að segja, en hann hefur eldað mat frá unga aldri. „Allt mitt líf, frá því ég var fimmtán ára gamall, hef- ur snúist um mat. Ég var byrjaður að fikta við mat svona 13-14 ára og það var mamma sem ýtti við mér að fara að læra þetta. Mamma var rosa matarkona. Líf hennar snerist um hvað ætti að borða. Hún var aldrei búin að kyngja síðasta munnbitanum þegar hún var farin að tala um hvað við ættum að elda á morgun,“ segir hann en sextán ára fór hann í læri á Aski á Suðurlandsbraut. Þá flutti hann suður aleinn frá Seyðisfirði og leigði sér herbergi í Vesturbænum. „Ég gleymi ekki fyrsta deginum. Ég átti að mæta á Ask í kokkagalla og öllu. Það var búið að segja að ég ætti að taka Þristinn og skipta á Hlemmi og taka Tvistinn upp á Suður- landsbraut. Þetta var á laugardagsmorgni og ég tek Þristinn og kem upp á Hlemm. Svo tók ég Tvistinn en þá fór hann bara út á Granda og stoppaði þar í korter, tuttugu mínútur og ég kom seint fyrsta daginn! Ég fattaði ekki að strætó gengi í tvær áttir. En, þetta var í eina skipti á fjórum árum sem ég kom of seint í vinnuna,“ segir hann brosir. Gifti sig á opnunardegi Argentínu Það er mikið vatn runnið til sjávar síðan ungi maðurinn í kokkabúningnum mætti of seint í fyrstu vinnuna, en Óskar á að baki langan feril í kokkamennskunni. Hann kláraði að læra á Aski en þá var auglýst eftir matreiðslumeistara á Hótel Valhöll sem þá var verið að opna aftur eftir vet- urinn. „Ég fer og sæki um, 21 árs gamall og það var sagt, nei, við erum að leita að reynslumiklum manni. Ég sagði, ég skal gera allt! Ég fékk þessa vinnu og kláraði sumarið og þá var kominn svo mikill metn- aður í mig að ég vildi bara fara til útlanda og læra á einhverjum Michelin-stað en þá var ég kominn með konu sem átti eitt barn. Þá fór ég til Luxemborgar og gat fengið geggjaða vinnu á Michelin-stað. En þeir buðu mér launalaust í eitt ár gegn því að ég fengi meðmælabréf,“ segir hann en það gekk ekki fyrir ungan mann með litla fjölskyldu. „Þannig ég kom heim í október og var at- vinnulaus. Konan vann þá á Aðalstöðinni og sá að það ætti að opna nýj- an stað og hringdi í mig og sagði, heyrðu, það eru ein- hverjir menn að fara að opna steikhús, á ég að spyrja hvort þá vanti einhvern í vinnu? Já sagði ég, flott. Og Argentína opnar svo 27. október 1989, sama dag og ég gifti mig en ég var í fríi,“ segir Óskar. Nokkrum mánuðum eftir opnun leigði Ósk- ar og vinur hans, Kristján Þór Sigfússon staðinn og ári seinna keyptu þeir Argent- ínu. „Og þar hófst mín veitingasaga.“ London og Barcelona Síðustu fjögur ár hefur hann búið ásamt konu sinni og yngsta syni í Barcelona en þau hjónin hafa starfað sem Herbalife Lífsstílsleiðbeinendur síðustu átján ár. Óskar hefur tekið að sér mörg verkefni í gegnum árin. Áður en þau fluttu til Spánar bjuggu þau átta ár í London en þar tók Óskar þátt í að koma á laggirnar Texture, veitingastað sem hefur slegið í gegn þar ytra. Óskar segir Agga (Agnar Sverrisson), yfirkokkinn þar, vera í algerum sérflokki. „Hann er ekki besti kokkur Íslands. Hann er langbestur,“ segir hann og leggur áherslu á orð sín. „Það er Björk, Eiður Smári, Vigdís Finnboga, Aggi. Það eru örfáir Íslendingar sem eru bara á allt öðr- um stalli,“ segir Óskar sem var þar mörg- um sinnum í viku fyrstu árin „að aðstoða Agga við allt og ekkert“ eins og hann orðar það. Herbalife borgar fyrir áhugamálið „Það hafa verið forréttindi fyrir mig að vera minn eigin herra því ég hef haft næg- an tíma til að sinna áhugamáli mínu. Sem er bara matur! Ég er bara matarfíkill. Ég lifi og hrærist í mat,“ segir hann. Ég undra mig á að holdafarið sýni það ekki, enda Óskar grannur maður. „Það var nú þarna árið 1997, þá fékk ég símtal frá gamalli vinkonu, Margréti Hrafnsdóttur, sem benti mér kurteisislega á það að hún hefði séð mynd af mér í Mogganum. Veistu Óskar, þú ert ekki orðinn þrítugur og þú ert bara kominn með velmegunarbumbu. Þú ert bara kominn með ístru!,“ segir hann að hún hafi sagt og segir það hafa ýtt við sér. Hann fær sér Herbalife nær- ingadrykk og brennslu te alla daga og æfir þrisvar í viku, en það hefur hann gert síð- ustu 18 árin til að halda sér í formi. „Líf mitt dags daglega snýst eingöngu um mat,“ segir hann og er farinn að plana jólamatinn. „Ég er bara sýrður af mat,“ segir hann. „Ég spila ekki golf, ég á engin hobbý, ég á bara matarhobbý. Ég er búinn að fara þvers og kruss um Asíu, alla Am- eríku og er búinn að borða á öllum númer eitt veitingastöðum í heiminum.“ Kaupi stundum alla eftirréttina Ég spyr hann um uppáhaldsmat. Hann dregur andann djúpt. „Hvað er topp fimm?“ spyr ég þá því ég skynja að spurn- ingin er of erfið fyrir svona matgæðing. „Topp fimm, hmmm. Trufflupasta er eitt- hvað sem ég verð að fá. Alvöru frönsk fersk gæsalifur, ekki einhverjar eftirlík- ingar frá Austur-Evrópu. Ég get alltaf borðað spikfeita nautasteik með frönskum kartöflum. Svo er alvöru paella algjört æði. Ég fæ aldrei nóg af desert. Ég kaupi mér aldrei bara einn desert. Ég kaupi yfirleitt tvo og stundum kaupi ég allt sem til er. Ef konan er ekki með mér kaupi ég alla de- sertana,“ segir hann og ég hlæ, en honum er fúlasta alvara. „Ég er sykurfíkill, þetta er sama og alkóhólisminn,“ segir Óskar sem hefur verið edrú síðustu 24 árin. „Ég drekk ekki vín, þannig að hvað skiptir máli hvað ég kaupi marga desserta?!“ segir hann. Við ræðum um eftirrétti í korter og hversu erfitt er að velja á milli. „Og á topp NÝR MATREIÐSLUÞÁTTUR Á MBL.IS Korter í kvöldmat ÁSTRÍÐUKOKKURINN ÓSKAR FINNSSON ER MÖRGUM ÍSLENDINGUM KUNNUR. HANN LÝSIR HÉR ÁSTRÍÐU SINNI FYRIR MAT SEM HEFUR FYLGT HONUM ALLA ÆVINA OG SEGIR FRÁ NÝJUM ÞÆTTI. ÓSKAR ÆTLAR AÐ KENNA ÍS- LENDINGUM AÐ ELDA BRAGÐGÓÐAN KVÖLDMAT, SEM ALLIR Í FJÖLSKYLDUNNI VERÐA SÁTTIR VIÐ, Í STUTTUM ÞÁTTUM Á MBL.IS. SUNNUDAGSBLAÐIÐ MUN FYLGJA ÞÁTTUNUM EFTIR OG KENNA FÓLKI AÐ NÝTA MATINN BETUR OG BÚA TIL VEISLUMAT ÚR AFGÖNGUM. FYRSTI ÞÁTTUR AF TÓLF FER Í LOFTIÐ Á MBL.IS 12. NÓVEMBER. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Sonur Óskars, Guðfinnur Þórir, velur fiskmetið sem á að fara í paelluna hjá þeim feðgum. Sítrónumarengs- kaka er í uppáhaldi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.