Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.11.2015, Síða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8.11. 2015
Matur og drykkir
H
ann segist hugsa um mat allan
daginn og á sér engin önnur
áhugamál. Óskar Finnsson, sem
býr í Barcelona, er kominn til
landsins til að kenna Íslendingum að elda
kvöldmat á auðveldan og hagkvæman máta
í stuttum þáttum sem sýndir verða á
mbl.is.
Mætti seint fyrsta daginn á Ask
Óskar kann sitt lítið af hverju fyrir sér í
eldamennsku, er óhætt að segja, en hann
hefur eldað mat frá unga aldri. „Allt mitt
líf, frá því ég var fimmtán ára gamall, hef-
ur snúist um mat. Ég var byrjaður að
fikta við mat svona 13-14 ára og það var
mamma sem ýtti við mér að fara að læra
þetta. Mamma var rosa matarkona. Líf
hennar snerist um hvað ætti að borða.
Hún var aldrei búin að kyngja síðasta
munnbitanum þegar hún var farin að tala
um hvað við ættum að elda á morgun,“
segir hann en sextán ára fór hann í læri á
Aski á Suðurlandsbraut. Þá flutti hann
suður aleinn frá Seyðisfirði og leigði sér
herbergi í Vesturbænum. „Ég gleymi ekki
fyrsta deginum. Ég átti að mæta á Ask í
kokkagalla og öllu. Það var búið að segja
að ég ætti að taka Þristinn og skipta á
Hlemmi og taka Tvistinn upp á Suður-
landsbraut. Þetta var á laugardagsmorgni
og ég tek Þristinn og kem upp á Hlemm.
Svo tók ég Tvistinn en þá fór hann bara út
á Granda og stoppaði þar í korter, tuttugu
mínútur og ég kom seint fyrsta daginn! Ég
fattaði ekki að strætó gengi í tvær áttir.
En, þetta var í eina skipti á fjórum árum
sem ég kom of seint í vinnuna,“ segir hann
brosir.
Gifti sig á opnunardegi Argentínu
Það er mikið vatn runnið til sjávar síðan
ungi maðurinn í kokkabúningnum mætti of
seint í fyrstu vinnuna, en Óskar á að baki
langan feril í kokkamennskunni. Hann
kláraði að læra á Aski en þá var auglýst
eftir matreiðslumeistara á Hótel Valhöll
sem þá var verið að opna aftur eftir vet-
urinn. „Ég fer og sæki um, 21 árs gamall
og það var sagt, nei, við erum að leita að
reynslumiklum manni. Ég sagði, ég skal
gera allt! Ég fékk þessa vinnu og kláraði
sumarið og þá var kominn svo mikill metn-
aður í mig að ég vildi bara fara til útlanda
og læra á einhverjum Michelin-stað en þá
var ég kominn með konu sem átti eitt
barn. Þá fór ég til Luxemborgar og gat
fengið geggjaða vinnu á Michelin-stað. En
þeir buðu mér launalaust í eitt ár gegn því
að ég fengi meðmælabréf,“ segir hann en
það gekk ekki fyrir ungan mann
með litla fjölskyldu.
„Þannig ég kom
heim í október
og var at-
vinnulaus.
Konan vann þá
á Aðalstöðinni
og sá að það
ætti að opna nýj-
an stað og hringdi í mig
og sagði, heyrðu, það eru ein-
hverjir menn að fara að opna steikhús, á
ég að spyrja hvort þá vanti einhvern í
vinnu? Já sagði ég, flott. Og Argentína
opnar svo 27. október 1989, sama dag og
ég gifti mig en ég var í fríi,“ segir Óskar.
Nokkrum mánuðum eftir opnun leigði Ósk-
ar og vinur hans, Kristján Þór Sigfússon
staðinn og ári seinna keyptu þeir Argent-
ínu. „Og þar hófst mín veitingasaga.“
London og Barcelona
Síðustu fjögur ár hefur hann búið ásamt
konu sinni og yngsta syni í Barcelona en
þau hjónin hafa starfað sem Herbalife
Lífsstílsleiðbeinendur síðustu átján ár.
Óskar hefur tekið að sér mörg verkefni í
gegnum árin. Áður en þau fluttu til Spánar
bjuggu þau átta ár í London en þar tók
Óskar þátt í að koma á laggirnar Texture,
veitingastað sem hefur slegið í gegn þar
ytra. Óskar segir Agga (Agnar Sverrisson),
yfirkokkinn þar, vera í algerum sérflokki.
„Hann er ekki besti kokkur Íslands. Hann
er langbestur,“ segir hann og leggur
áherslu á orð sín. „Það er Björk, Eiður
Smári, Vigdís Finnboga, Aggi. Það eru
örfáir Íslendingar sem eru bara á allt öðr-
um stalli,“ segir Óskar sem var þar mörg-
um sinnum í viku fyrstu árin „að aðstoða
Agga við allt og ekkert“ eins og hann
orðar það.
Herbalife borgar fyrir áhugamálið
„Það hafa verið forréttindi fyrir mig að
vera minn eigin herra því ég hef haft næg-
an tíma til að sinna áhugamáli mínu. Sem
er bara matur! Ég er bara matarfíkill. Ég
lifi og hrærist í mat,“ segir hann. Ég
undra mig á að holdafarið sýni það ekki,
enda Óskar grannur maður. „Það var nú
þarna árið 1997, þá fékk ég símtal frá
gamalli vinkonu, Margréti Hrafnsdóttur,
sem benti mér kurteisislega á það að hún
hefði séð mynd af mér í Mogganum. Veistu
Óskar, þú ert ekki orðinn þrítugur og þú
ert bara kominn með velmegunarbumbu.
Þú ert bara kominn með ístru!,“ segir
hann að hún hafi sagt og segir það hafa
ýtt við sér. Hann fær sér Herbalife nær-
ingadrykk og brennslu te alla daga og æfir
þrisvar í viku, en það hefur hann gert síð-
ustu 18 árin til að halda sér í formi. „Líf
mitt dags daglega snýst eingöngu um
mat,“ segir hann og er farinn að plana
jólamatinn. „Ég er bara sýrður af mat,“
segir hann. „Ég spila ekki golf, ég á engin
hobbý, ég á bara matarhobbý. Ég er búinn
að fara þvers og kruss um Asíu, alla Am-
eríku og er búinn að borða á öllum númer
eitt veitingastöðum í heiminum.“
Kaupi stundum alla eftirréttina
Ég spyr hann um uppáhaldsmat. Hann
dregur andann djúpt. „Hvað er topp
fimm?“ spyr ég þá því ég skynja að spurn-
ingin er of erfið fyrir svona matgæðing.
„Topp fimm, hmmm. Trufflupasta er eitt-
hvað sem ég verð að fá. Alvöru frönsk
fersk gæsalifur, ekki einhverjar eftirlík-
ingar frá Austur-Evrópu. Ég get alltaf
borðað spikfeita nautasteik með frönskum
kartöflum. Svo er alvöru paella algjört æði.
Ég fæ aldrei nóg af desert. Ég kaupi mér
aldrei bara einn desert. Ég kaupi yfirleitt
tvo og stundum kaupi ég allt sem til er. Ef
konan er ekki með mér kaupi ég alla de-
sertana,“ segir hann og ég hlæ, en honum
er fúlasta alvara. „Ég er sykurfíkill, þetta
er sama og alkóhólisminn,“ segir Óskar
sem hefur verið edrú síðustu 24 árin. „Ég
drekk ekki vín, þannig að hvað skiptir máli
hvað ég kaupi marga desserta?!“ segir
hann. Við ræðum um eftirrétti í korter og
hversu erfitt er að velja á milli. „Og á topp
NÝR MATREIÐSLUÞÁTTUR Á MBL.IS
Korter í kvöldmat
ÁSTRÍÐUKOKKURINN ÓSKAR FINNSSON ER MÖRGUM ÍSLENDINGUM KUNNUR. HANN LÝSIR HÉR ÁSTRÍÐU SINNI
FYRIR MAT SEM HEFUR FYLGT HONUM ALLA ÆVINA OG SEGIR FRÁ NÝJUM ÞÆTTI. ÓSKAR ÆTLAR AÐ KENNA ÍS-
LENDINGUM AÐ ELDA BRAGÐGÓÐAN KVÖLDMAT, SEM ALLIR Í FJÖLSKYLDUNNI VERÐA SÁTTIR VIÐ, Í STUTTUM
ÞÁTTUM Á MBL.IS. SUNNUDAGSBLAÐIÐ MUN FYLGJA ÞÁTTUNUM EFTIR OG KENNA FÓLKI AÐ NÝTA MATINN
BETUR OG BÚA TIL VEISLUMAT ÚR AFGÖNGUM. FYRSTI ÞÁTTUR AF TÓLF FER Í LOFTIÐ Á MBL.IS 12. NÓVEMBER.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Sonur Óskars, Guðfinnur Þórir, velur fiskmetið sem á að fara í paelluna hjá þeim feðgum.
Sítrónumarengs-
kaka er í uppáhaldi.