Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.11.2015, Qupperneq 14
esportfoto.cat
A
nna Berglind Pálmadóttir á Akureyri
hefur stundað líkamsrækt í mörg ár,
kenndi þolfimi um tíma og var í cross-
fit; hefur verið með annan fótinn á
líkamsræktarstöðvum í langan tíma, eins og hún
orðar það. Skokkaði gjarnan úti að sumri þegar
veðrið var gott en stutt er síðan hún fór að
hlaupa fyrir alvöru. Og þá þótti henni ekkert
hálfkák eiga við.
Hinn formlegi hlaupaferill byrjaði raunar ró-
lega og fyrir algjöra tilviljun.
Þannig var að hún skoraði á son sinn í að-
draganda árlegs 1. maí hlaups á Akureyri vorið
2014. Þau hlupu bæði og þegar Anna Berglind
kom í mark vatt sér að henni maður, gekk
hreint til verks og spurði: Viltu ekki fara að æfa
hlaup?
Anna vissi ekki hver maðurinn var og hann
þekkti engin deili á henni en sá að í henni bjó
hlaupari. Þarna var á ferð Þorbergur Ingi Jóns-
son, einn þekktasti hlaupari landsins sem nýlega
var fluttur til Akureyrar.
Anna gekk til liðs við hóp sem kallaður er
Eyrarskokkið og hóf síðan að æfa undir stjórn
Þorbergs Inga. Ári síðar var hún komin í lands-
lið Íslands í frjálsíþróttum, keppti á Smáþjóða-
leikunum í Reykjavík og í 2. deild Evrópukeppn-
innar í Búlgaríu.
Frami akureyrsku hlaupakonunnar var sem
sagt mjög skjótur og nýjasta ævintýrið var
fjallahlaup í Katalóníuhéraði á Spáni á dögunum.
Árangur hennar þar var framúrskarandi; hún og
eiginmaðurinn, Helgi Rúnar Pálsson, hlupu 49,3
kílómetra, 91 fór þá vegalengd og náði Anna
næstbesta tíma kvenna og þeim níunda besta af
öllum hópnum. Hún lauk keppni á tæpum sex
klukkustundum (5.54,10).
Anna Berglind frétti ekki af Katalóníuhlaupinu
fyrr en tveimur vikum áður en það fór fram, í
september, en ákvað að slá til og eiginmaðurinn
vildi ólmur fara með. „Hann byrjaði aðeins í
fyrrasumar, hljóp þá 10 km í Reykjavíkur-
maraþoni en æfði meira í vetur og fór hálft
maraþon í sumar. Hann dróst inn í þetta með
mér og finnst mjög gaman að hlaupa.“
Helgi náði 15. besta tíma allra sem fóru þessa
vegalengd í Spánarhlaupinu og Anna segir ynd-
islegt að hjónin deili þessu skemmtilega áhuga-
máli því þá hafi þau bæði skilning á verkefni
hins. „Við náum samt eiginlega aldrei að æfa
saman. Erum með þrjú börn og það hentar okk-
ur ekki að æfa á sama tíma. Ég hleyp með hópi
þar sem eru Þorbergur Ingi, Rannveig Odds-
dóttir og fleiri; þaulvanir langhlauparar en Helgi
æfir sig meira með því að hlaupa einn.“
Henni fannst gríðarlega gaman að taka þátt í
ultra-hlaupinu, eins og það er kallað, á Spáni.
„Þetta var seinfært vegna þess að oft var bratt
og upp á hæsta topp þurfti að príla og hífa sig
upp í köðlum. En þetta var það skemmtilegasta
sem ég hef gert síðan ég byrjaði að æfa hlaup af
alvöru og við hjónin eigum alveg örugglega eftir
að endurtaka þennan leik, hvort sem er í Kata-
lóníu eða annars staðar.“
HJÓN TÓKU ÞÁTT Í FJALLAHLAUPI Í KATALÓNÍU
Dagleið á katalónskum fjöllum
HJÓNIN ANNA BERGLIND PÁLMADÓTTIR OG HELGI RÚNAR PÁLSSON TÓKU NÝLEGA ÞÁTT Í FJALLAHLAUPI Í KATALÓNÍU Á SPÁNI. ANNA HLJÓP 50 KM
UM FJÖLL OG FIRNINDI Á SEX TÍMUM, VARÐ Í ÖÐRU Í SÆTI Í KVENNAFLOKKI OG Í NÍUNDA SÆTI Í HEILD AF 100 ÞÁTTTAKENDUM AF BÁÐUM KYNJUM.
Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is
Hjónin Anna Berglind Pálmadóttir og Helgi Rúnar
Pálsson tóku þátt í fjallahlaupi í Katalóníuhéraði.
Anna Berglind og Helgi
Rúnar glaðbeitt í fjalla-
hlaupinu í Katalóníuhéraði.
Heilsa og
hreyfing
AFP
*Það er í tísku að drekka te og hefur hollustaþess mikið verið rannsökuð. Helstu rannsóknirsýna að tedrykkja getur veitt vernd gegn hjarta-og æðasjúkdómum, heilablóðfalli, krabbamein-um og lifrarsjúkdómum og þá er grænt te holl-ast. Margir virðast haldnir ranghugmyndum umað mikil tedrykkja sé megrandi, en niðurstöður
rannsókna á drykkju á grænu tei og þyngdartapi
sýna að engin fylgni er þar á milli.
Tedrykkja holl en ekki grennandi
Hlaupið er utan vega í fjalla-
hlaupinu í Katalóníu, um fjöll
og firnindi, eins og nafnið
gefur til kynna. Keppt var í
fjallgarðinum Serra de
Montsant, sem er þjóðgarð-
ur.
Keppnin er töluverð þrek-
raun, enda vegalengdin sem
akureyrsku hjónin hlupu
töluvert meiri en maraþon.
Hæðarmunur frá byrjun og
upp í hæsta punkt var 2.200
metrar. „Hækkunin er eins
að fara tvisvar upp á Súlur
frá bílastæðinu,“ segir Anna
og vísar til staðhátta á Ak-
ureyri. Á Reykjavíkurmáli má
segja að hækkunin sé á við
að fara tvær og hálfa ferð
upp á Esjuna.
FJALLAHLAUPIÐ
Hæðarmun-
ur á við tvær
og hálfa Esju