Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.11.2015, Page 37
Starfið leggst að vonum vel í Halldóru og
segir hún fólkið sem hún talaði við í viðtalinu
mjög indælt fólk og hlakkar hún til að kynn-
ast því og vinna með því.
Vonast til þess að ílengjast í London
Halldóra sem er uppalin í Mosfellsbæ býr
þar ásamt eiginmanni sínum og
syni þeirra. Aðspurð hvað taki
við varðandi búferlaflutninga
og annað tilfallandi segist hún
vera farin að huga að húsnæðis-
málum í London, enda skilst
henni að það sé ekkert grín að
finna húsnæði þar í bæ.
„Ég ætla að byrja á því
að hugsa ekkert mikið
lengra en þessa fyrstu sex
mánuði og vonandi í fram-
haldinu verður grundvöllur
fyrir því að ílengjast í
London. Mér finnst líka
mikilvægt að ég sé að fíla
þetta og ef vel gengur má
svo byggja ofan á það.
Þannig að fyrst um sinn fer
ég bara með ferðatöskuna
og svo í framhaldinu fylgir
vonandi fjölskyldan og bú-
slóðin.“
Spurð um frekari framtíð-
aráform segist Halldóra þakk-
lát fyrir það tækifæri sem
henni hefur hlotnast.
„Að fá að lifa á því sem ég
hef ástríðu fyrir og mér finnst
skemmtilegt að gera. Ég er
mjög metnaðarfull og finnst
gaman að vinna og ég vona að
þetta sé starfið sem leiðir mig
upp stigann í þessum bransa.“
H
alldóra Sif Guðlaugsdóttir útskrif-
aðist af fatahönnunarbraut Lista-
háskóla Íslands síðastliðið vor. Í
síðustu viku var Halldóra ráðin í
starf hjá einu virtasta tískuhúsi Bretlands,
Alexander McQueen.
Hún segir þá tilfinningu að hafa verið ráð-
in yndislega enda sé þetta alveg frábært
tækifæri.
Gamall draumur sem rættist
„Ég var ákveðin í því að fara til útlanda eftir
nám og ná mér í reynslu. Það hefur lengi
verið draumur að fá að vinna með hönnunar-
teymi hjá fyrirtæki eins og Alexander
McQueen,“ útskýrir Halldóra og bætir við að
Linda Árnadóttir, kennari hennar úr
Listaháskólanum, hvatti hana til að sækja
um þar en Halldóra hefur störf hjá tískuhús-
inu þann 14. apríl 2016.
Aðspurð hvernig umsóknarferlinu hafi ver-
ið háttað segir Halldóra ferlið hafa gengið
afar hratt fyrir sig.
„Ég sótti um og fékk svar tveimur tímum
seinna að þeim litist vel á mig og spurðu hvort
ég kæmist í viðtal á skrifstofu þeirra einhvern
tíma á milli kl. 10 og 19 í vikunni. Ég var ekki
lengi að panta mér far út til London og mæta
í viðtal. Ég mætti þar viku seinna með portfol-
io undir hendinni og skissubækur.“
Halldóra er ráðin til sex mánaða sem
„trainee“ og vonast að sjálfsögðu til þess að
fá áframhaldandi samning hjá tískuhúsinu í
framhaldi af því. „Yfirhönnuðurinn í „wo-
men’s wear“ útskýrði hlutverk mitt vel en
hún sagði að ég myndi hjálpa til við að búa
til „mood board“ eða hugmyndakort, „color
stories“ eða liti og að teikna línuna. Einnig
mun ég sinna tilfallandi verkefnum sem snúa
að daglegum rekstri. En ég ætla mér bara
að gera mitt allra besta.“
SÓTTI UM OG FÉKK SVAR TVEIMUR TÍMUM SEINNA
Með portfolio og
skissubækur undir
hendinni
HALLDÓRA SIF GUÐLAUGSDÓTTIR FATAHÖNNUÐUR VAR Í VIKUNNI
RÁÐIN TIL EINS VIRTASTA TÍSKUHÚSS BRETLANDS, ALEXANDER McQUEEN.
HALLDÓRA, SEM MUN HEFJA STÖRF HJÁ TÍSKUHÚSINU Í VOR, SEGIR ÞAÐ
LENGI HAFA VERIÐ DRAUM AÐ VINNA HJÁ FYRIRTÆKI SEM ÞESSU.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Katrín hertogaynja
giftist Vilhjálmi prins í
kjól frá Alexander
McQueen þann 29.
apríl 2011.
AFP
8.11. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 37
Breska tískuhúsið Al-
exander McQueen
var stofnað árið 1992
af Lee Alexander
McQueen. Alexander
McQueen hlaut verð-
launin „British Desig-
ner of the Year“ fjór-
um sinnum á árunum 1996 til 2003 ásamt því að
hljóta viðurkenninguna „International Designer of
the Year“ af Council of Fashion Designers árið 2003.
Alexander McQueen var þekktur fyrir afar óhefð-
bundna og róttæka hönnun. Tískuhúsið framleiðir
bæði kven- og herrafatalínur. Eftir fráfall Alexanders
McQueen árið 2010 tók Sarah Burton við sem list-
rænn stjórnandi tískuhússins en eftir dauða
McQueen sýnir tískuhúsið línur sínar á tískuvikunni
á París. Meðal þekktustu verka tískuhússins er til að
mynda brúðarkjóll Katrínar hertogaynju.
ALEXANDER MCQUEEN
Róttæk, óhefð-
bundin hönnun
Úr útskriftarsýningu Halldóru síð-
astliðið vor þar sem hún sýndi
áhugaverða útskriftarlínu.
Mögnuð hönnun Alex-
ander McQueen á
sumarlínu tískuhússins
í London árið 2000.
Úr vetrarlínu
Alexander
McQueen
2015/2016 sem
sýnd var í París
fyrr á árinu.
Halldóra Sif Guðlaugsdóttir
mun hefja störf hjá breska
tískuhúsinu þann 14. apríl.
AFP