Morgunblaðið - 26.11.2015, Síða 2

Morgunblaðið - 26.11.2015, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 2015 MADONNA ÍTALÍU VIKULEGA FRÁ 16. JAN. –27. FEB. Eitt vinsælasta skíðasvæði Íslendinga er aftur komið í sölu. Flogið vikulega frá 16. jan - 27. feb. með Icelandair. Farastjóri, Níels Hafsteinsson 97.980 KR. Úrval Útsýn | Hlíðasmára 19 | 585 4000 | uu.is M.v. 2 fullorðna og 2 börn. VERÐ FRÁ Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Baldur Arnarson baldura@mbl.is Ný vinnumarkaðsrannsókn Hagstof- unnar bendir til að 189.400 einstak- lingar 16-74 ára hafi verið á vinnu- markaði í október, sem jafngildir 81% atvinnuþátttöku. Hlutfall at- vinnulausra af vinnuafli var 3,8%. Til samanburðar áætlar Vinnu- málastofnun að atvinnuleysi í októ- ber hafi verið 2,6% og að meðaltali hafi þá 4.216 verið atvinnulausir. Töluverðar sveiflur geta verið í niðurstöðum vinnumarkaðsrann- sókna Hagstofunnar og gefur það því e.t.v. gleggri mynd af þróun at- vinnuleysis að skoða lengri tímabil. Meðaltalið var hæst 2010 Samkvæmt könnun Hagstofunnar var atvinnuleysið á fyrstu tíu mán- uðum ársins að meðaltali 4,25%. Það var til samanburðar 7,24% á þessu tímabili 2009 og 7,5% árið 2010. Það hefur síðan minnkað hægt og sígandi og var meðaltalið á fyrstu tíu mánuð- um ársins komið niður í 5,61% árið 2013, 5,21% árið 2014 og í 4,25% í ár. Þrátt fyrir að atvinnuleysið hafi þannig farið lækkandi samkvæmt könnuninni er það enn talsvert hærra en árin 2003-08. Þá var það frá 3,42% fyrstu tíu mánuði ársins 2003 og lækkaði svo niður í 2,38% ár- ið 2007. Það var að meðaltali 2,61% fyrstu tíu mánuði ársins 2008. Metfjöldi starfandi á Íslandi Skv. könnun Hagstofunnar voru 8.130 einstaklingar atvinnulausir að meðaltali á fyrstu tíu mánuðum þessa árs og að meðaltali 183.720 starfandi. Það er hæsta meðaltal starfandi á þessu tímabili í sögunni. Til samanburðar voru að meðaltali 180.300 starfandi þessa mánuði árið 2008. Hafa ber í huga að landsmenn voru 315.459 talsins á nýársdag 2008 en 329.100 í byrjun þessa árs. Meðal- fjöldi atvinnulausra fyrstu tíu mán- uði árs varð mestur 2010 en þá voru 13.600 manns að jafnaði án vinnu. Mesti fjöldi starfandi fólks í sögunni  Samkvæmt könnun Hagstofunnar var að jafnaði 4,25% atvinnuleysi á fyrstu tíu mánuðum ársins  Þá voru að meðaltali 183.720 starfandi  Það er metfjöldi  Minnsta atvinnuleysi frá árinu 2008 Meðalfjöldi starfandi fyrstu tíu mánuði hvers árs 2003-2015 20 03 20 07 20 11 20 05 20 09 20 13 20 04 20 08 20 12 20 06 20 10 20 14 20 15 Samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofunnar 15 12 9 6 3 0 200 190 180 170 160 150 Heimild: Hagstofa Íslands. Útreikningar eru blaðsins. Þúsund Þúsund Atvinnulausir (v. ás) Starfandi (h. ás) Morgunblaðið/Eggert Störf Fleiri eru nú á vinnumarkaði en áður skv. könnun Hagstofu. Fjölmenni mætti á ljósagöngu UN Women í gær- kvöldi í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi Sam- einuðu þjóðanna gegn kynbundnu ofbeldi. Freyja Haraldsdóttir, talskona Tabú, leiddi gönguna í ár og flutti viðstöddum hugvekju. Gangan hófst við styttu Ingólfs Arnarsonar á Arnarhóli. Þar mátti sjá Hörpu upplýsta í appelsínu- gulum lit líkt og aðrar merkar byggingar víða um heim. Er appelsínuguli liturinn táknrænn fyrir von og bjarta framtíð kvenna og stúlkna án ofbeldis. Fjölmenni mætti á ljósagöngu UN Women í gærkvöldi í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi Morgunblaðið/Eggert Appelsínugulur litur vonar og birtu framtíðar Útgáfu skattkorta verður hætt frá og með næstu áramótum og breyt- ing verður gerð á álagningardegi einstaklinga vegna skattaálagningar og hann framvegis um mánaðamótin júní/júlí, en hann hefur undanfarin ár verið í lok júlí ár hvert. Þetta er meðal þess sem fram kemur í stjórnarfrumvarpi Bjarna Bene- diktssonar, fjármála- og efnahags- ráðherra, um ýmsar breytingar á skattalögum sem dreift var á Alþingi í gær. Í frumvarpinu er lagt til að lögfest verði sú meginregla að skil á skattframtölum verði að öllu leyti rafræn, en við álagningu ein- staklinga 2015 voru rafræn fram- talsskil orðin 99,74%. Þegar hætt verður að gefa út skattkort mun ríkisskattstjóri í stað- inn veita upplýsingar um fjárhæð persónuafsláttar á staðgreiðsluári og heimila nýtingu hans á hverju launatímabili, að því er fram kemur í greinargerð. Meðal annarra breyt- inga er tillaga um að hámark skattafrádráttar vegna gjafa og framlaga til félagasamtaka og sjálfs- eignarstofnana verði hækkað úr 0,5% af tekjum í 0,75%. Skattkort hverfi um áramótin  Öll framtöl rafræn Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Deilendur í kjaradeilunni hjá Rio Tinto Alcan í Straumsvík mættu hjá ríkissáttasemjara til viðræðna í gær. Engar viðræður fóru þó af stað og í gærkvöldi hafði ekki verið boðað til nýs fundar, að sögn Gylfa Ingvars- sonar, talsmanns starfsmanna í Straumsvík. „Frá báðum aðilum voru komnar á blað ákveðnar hugmyndir sem hafa miðað að lausn deilunnar. Núna var ætlunin að setjast betur yfir þær og fara í textavinnu en þegar við loks hittum viðsemjenda okkar fór eng- inn formlegur fundur í gang eða við- ræður af stað,“ útskýrir Gylfi, sem segir grunntóninn í kjaraviðræðum þessum þann að almennir starfs- menn njóti sömu kjarabóta og annað launafólk hafi fengið. Engir launa- menn hafi verið að selja frá sér störf til að ná samningum, svo sem að verktakar yfirtaki ákveðna þætti í starfseminni, eins og Rio Tinto Alc- an geri nú kröfur um. „En almennt skil ég ekki á hvaða vegferð stjórn- endur álversins eru,“ segir hann. Tjá sig ekki „Við erum að reyna að ná samn- ingum en tjáum okkur ekkert meira um málið,“ sagði Þorsteinn Víg- lundsson, framkvæmdastjóri Sam- taka atvinnulífsins. Ólafur Teitur Guðnason, talsmaður Rio Tinto Alc- an, svaraði á sömu nótum. Sem kunnugt er hefur verkfall starfsmanna í Straumsvík verið boð- að þann 2. desember náist samn- ingar ekki fyrir þann tíma. Álmenn hafa þó sagst vera tilbúnir að að- stoða við að slökkva á kerjum verk- smiðjunar eftir þann tíma. Stjórn- endur álversins hafa sagt að það verði meiriháttar mál yrði að ræsa það aftur – ef kemur til lokunar vegna verkfalls. Hugmyndir komnar á blað  Enginn form- legur sáttafundur í álversdeilu í gær Morgunblaðið/Sigurður Bogi Ál Allt stoppast í Straumsvík náist ekki samningar fyrir 2. desember.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.