Morgunblaðið - 26.11.2015, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 2015
Dæmið gengur ekki upp.
Við hver einustu þinglok í ára-tugi hefur þáverandi þing-
forseti metið árangur þingsins eftir
því hve mörg lagafrumvörp og
ályktanir
þingið hefur
samþykkt.
Aldrei gerir
nokkur neitt
með það þótt
lunginn af því samþykkta hafi verið
til bölvunar fyrir fjölda fólks.
Nú skammast hver þingmaður-inn af öðrum yfir því að ríkis-
stjórnin sé augljóslega duglaus því
hún skaffi þeim ekki nógu mörg
mál til að andskotast í.
Undanfarin ár hefur hver þing-maður af öðru talið lýðræðið
komið á vonarvöl vegna þess að
framkvæmdavaldið fari offari gegn
löglega kjörnum fulltrúum fólksins
á Alþingi og líti á þá sem áhrifalaus
atkvæði í þingsal.
Og fyrir einni og hálfri öld sagðiorðsnillingur þetta: Líf manns,
frelsi hans og einkaeign býr við
yfirvofandi ógn hvern einasta dag
sem löggjafarþingið situr.
Unglingarnir á þingi, sem eng-inn man hvað heita, halda því
fram að Alþingi sé vinnustaður en
ekki löggjafarstofnun og mestu
skipti að hann sé „fjölskylduvænn“
og skipuleggi starfsemi sína í nánu
samstarfi við leikskóla og sér-
kennslufulltrúa. Þetta fólk nefnir
aldrei að það sem ungað er út á Al-
þingi skuli vera vænt fyrir þær fjöl-
skyldur sem hafa ekki aðgang að
þinghúsinu.
Gengur þetta upp?
Hafa þeir misst
þráðinn?
STAKSTEINAR
JÓLAMARKAÐUR
SKÓGRÆKTARFÉLAGS REYKJAVÍKUR
ELLIÐAVATNSBÆ
í HEIÐMÖRK
við
í I
OPIÐ ALLAR AÐVENTUHELGAR
FRÁ 11 - 16
JÓLATRÉ
HÖNNUN OG HANDVERK
LIFANDI TÓNLIST
UPPLESTRAR
JÓLASVEINAR
BARNASTUND KL 14 Í RJÓÐRINU
HEITT Á KÖNNUNNI
VISTVÆN OG ÍSLENSK
HEIDMORK.IS
VARÐELDUR, UPPLESTUR & JÓLASVEINN
Veður víða um heim 25.11., kl. 18.00
Reykjavík 5 rigning
Bolungarvík 1 rigning
Akureyri -1 snjókoma
Nuuk -6 skafrenningur
Þórshöfn 3 skýjað
Ósló 0 alskýjað
Kaupmannahöfn 5 súld
Stokkhólmur 3 skýjað
Helsinki 3 skýjað
Lúxemborg 2 skýjað
Brussel 6 léttskýjað
Dublin 8 skýjað
Glasgow 8 alskýjað
London 10 léttskýjað
París 7 léttskýjað
Amsterdam 6 léttskýjað
Hamborg 6 skýjað
Berlín 3 skýjað
Vín 2 skýjað
Moskva -2 alskýjað
Algarve 21 heiðskírt
Madríd 16 skýjað
Barcelona 15 léttskýjað
Mallorca 17 léttskýjað
Róm 10 léttskýjað
Aþena 18 léttskýjað
Winnipeg -3 snjókoma
Montreal -1 léttskýjað
New York 7 heiðskírt
Chicago 8 skýjað
Orlando 24 skýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
26. nóvember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 10:31 16:00
ÍSAFJÖRÐUR 11:02 15:39
SIGLUFJÖRÐUR 10:46 15:21
DJÚPIVOGUR 10:07 15:23
Tvöföldun hringvegarins myndi
kosta 200-260 milljarða króna en
svokallað 2+1 fyrirkomulag, þar
sem tvöföldun yrði í aðra áttina,
myndi kosta 130-170 milljarða.
Þetta kemur fram í svari við fyrir-
spurn Björgvins G. Sigurðssonar,
þingmanns Samfylkingarinnar, á
Alþingi í fyrradag um kostnað við
tvöföldun hringvegarins. Svarið
var unnið af Vegagerðinni, en fram
kemur í þingskjalinu að um grófa
áætlun sé að ræða þar sem nánari
útlistun sé tímafrek. Þá segir að
kostnaðartölur séu afar breytilegar
og háðar ýmsum breytum. Eins ef
miðað sé við álag á vegunum gefi
ekkert til kynna að nauðsynlegt sé
að tvöfalda hringveginn.
150-200 millj. kr á kílómetra
Í svarinu er gengið út frá því að
dæmið sé reiknað frá Selfossi og
hringinn austur um að vegamótum
Þingvallavegar og þéttbýlisköflum
vegarins sleppt. Gert er ráð fyrir að
tvöföldun vegarins kosti 150–200
millj. kr. á hvern km en gerð 2+1
vegar kosti 100–130 millj. kr. á
hvern km, en hringvegurinn er um
1.300 km þegar þéttbýlisvegir eru
dregnir frá.
Horft er framhjá dýrum fram-
kvæmdum á borð við gerð brúar
yfir Ölfusá, vegar um Horna-
fjarðarfljót og brúa yfir Lagarfljót
og Jökulsá á Fjöllum. Einnig er litið
framhjá jarðgöngum, sem eru tvö á
þessari leið, um Almannaskarð og
undir Hvalfjörð. vidar@mbl.is
2+2 myndi
kosta allt að
260 milljarða
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Jökuldalur Afar kostnaðarsamt er
að tvöfalda hringveginn.