Morgunblaðið - 26.11.2015, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 26.11.2015, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 2015 Árni Matthíasson arnim@mbl.is Skínandi heitir fyrsta bókBirtu Þrastardóttur semCrymogea gaf út í síðustuviku. Í bókinni segir Birta frá Áróru sem finnur skínandi fal- lega stjörnu í garðinum hjá sér og gerir nokkuð sem engan hefði grun- að. Birta, sem búið hefur í Bret- landi undanfarin ár og starfar þar sem grafískur hönnuður, er höf- undur texta og mynda. Hún segist hafa unnið að bókinni í fimm ár, en þó ekki samfellt, hún hafi stolið stundum í daglegu amstri til að vinna að hugmyndinni. Á meðan hann svaf „Það tók fimm ár að skrifa bók- ina, allt í allt, en þá erum við að tala um tíu mínútur hér og tíu mínútur þar,“ segir hún en þegar hún eign- aðist sitt annað barn þar ytra segist hún hafa verið svo heppin að eiga þess kost að fá að vera heima „og þá var þetta mitt litla verkefni á meðan hann svaf“. Að því sögðu þá segir hún að bókin hafi alltaf verið sér ofarlega í huga árin fimm, allt frá því sagan kom til hennar nánast fullbúin. „Textinn kom strax, raðaðist ein- hvern rétt veginn niður á síðurnar og allt gekk fullkomlega upp, mér tókst að ná þeirri stemningu sem ég fann svo sterkt í mér.“ – Við erum strax búin að yfir- gefa raunveruleikann á annarri myndaopnu bókarinnar og á þeirri þriðju höldum við enn lengra eins og ekkert sé sjálfsagðara. „Mér finnst mjög mikilvægt að það komist til skila hve mikilvægt það er að vera jákvæð gagnvart öllu sem kemur upp, traust og jákvæðni er lykillinn að öllu í lífinu. Ég var að reyna að ná þeirri stemningu fram að sögupersónurnar bregðist eðli- lega við hverju því sem kemur fyrir. Það er líka mjög útpælt hjá mér hvernig samskiptin eru á milli full- orðinna og barna, kynja og dýra, það er alltaf mismunandi hver er að vernda, hver er hræddur og ekki hræddur, hver er sterkur og í bók- inni er það alltaf jafnt, eins og það ætti að vera í raunveruleikanum.“ Háski og súrrealismi Skínandi var lengi í smíðum, en Birta segir að næsta bók verði ekki eins lengi á leiðinni. „Ég er byrjuð á næstu bók, sem er líka barnabók en verður einfaldari. Næsta bók verður miklu einfaldari, bara blýantur og trélitir með mátulegu magni af háska og súrrealisma og efniviður- inn mun áfram vekja óvæntar til- finningar hjá lesandanum.“ Sagan og myndirnar í Skínandi eru úr smiðju Birtu, eins og getið er, en ekki bara það, heldur er hönnun bókarinnar og umbrot líka hennar. „Það var frábært að fá algjört frelsi til að gera bókina eins úr garði og ég vildi og þeir breyttu engu. Ég gæti ekki ímyndað mér betra forlag en Crymogeu.“ Traust og já- kvæðni er lykill- inn að öllu í lífinu Í fyrstu bók Birtu Þrastardóttur, Skínandi, gerir sögu- hetjan nokkuð sem enginn átti von á og hrindir af stað ævintýri. Morgunblaðið/Styrmir Kári Jákvæðni Birta Þrastardóttir segir að sagan í Skínandi hafi birst henni nánast fullbúin. Skínandi Hnátan Áróra finnur stjörnu í garðinum hjá sér og lendir í miklu ævintýri. „Það er líka mjög út- pælt hjá mér hvernig samskiptin eru á milli fullorðinna og barna, kynja og dýra.“ 13:30-13:40 Setning ráðstefnu: Pétur Magnússon, formaður Öldrunarráðs Íslands og varaformaður Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu. 13:40-13:50 Ávarp: Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra. 13:50-14:20 Skilgreiningar á ofbeldi gagnvart öldruðum og birtingarmyndir á Íslandi Sigrún Ingvarsdóttir, félagsráðgjafi. 14:20-14:40 Ofbeldi gagnvart öldruðum – sjónarhorn lögreglu Alda Hrönn Jóhannsdóttir, aðallögfræðingur hjá lögregluembættinu á höfuðborgarsvæðinu. 14:40-15:00 Hversu alvarlegt er ofbeldi gagnvart öldruðum? – Út frá sjónarhorni fjármála Gísli Jafetsson, framkvæmdastjóri Félags eldri borgara í Reykjavík og fyrrverandi bankamaður. 15:00-15:20 Hlutverk réttindagæslumanna fatlaðra – er þörf fyrir slíkt meðal aldraðra? Kristjana Sigmundsdóttir, réttindagæslumaður fatlaðs fólks 15:20-15:30 Lokaorð og ráðstefnuslit: Ólafur G. Skúlason, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Ráðstefnustjóri: Haukur Ingibergsson, formaður Landssambands eldri borgara. Ofbeldi gagnvart öldruðum á Íslandi RÁÐSTEFNA › Grand Hótel › föstudagur 27. nóv. 2015 › kl 13:30-15:30 ALLIR VELKOMNIR - AÐGANGURÓKEYPIS Býttifatamarkaður verður haldinn í Borgarbókasafninu í Kringlunni laugardaginn 28. nóvember, frá kl. 13-17. Þar gefst gestum og gangandi tækifæri til að skila inn fötum og fylgihlutum sem eru ekki lengur í notkun og fá eitthvað „nýtt“ í stað- inn. Það er tilvalið til að fríska upp á fataskápinn með engum tilkostnaði. Er þetta gert í tilefni af evrópsku nýtnivikunni sem stendur yfir dag- ana 21.-29. nóvember. Gera meira fyrir minna Markmið evrópsku nýtnivikunnar er að draga úr myndun úrgangs og hvetja fólk til að nýta hluti betur. Þema vikunnar er Afefnisvæðing, þ.e. að gera meira fyrir minna. Markmið vikunnar er að hvetja fólk til vitundar um nauðsyn þess að draga úr magni úrgangs, m.a. með því að lengja líftíma hluta, samnýta hluti og stuðla almennt að því að hlutir hafi framhaldslíf í stað þess að enda sem úrgangur. Ýmsir viðburðir verða því í boði í Reykjavík. Borgarbókasafnið býður einnig upp á skiptibókamarkaðinn Græn bók – Góð bók. Evrópska nýtnivikan í fullum gangi í Reykjavík Morgunblaðið/Árni Sæberg Helgin Ekki er úr vegi að fólk fjölmenni í Borgarbókasafnið í Kringlunni á laugardag og leyfi fataskápnum að ganga í gegnum endurnýjun lífdaga. Skipta út gömlum fötum fyrir „ný“ Morgunblaðið/Eggert Nýtni Nýtnivikan er haldin hér í fjórða sinn og margt á dagskrá
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.