Morgunblaðið - 26.11.2015, Page 16

Morgunblaðið - 26.11.2015, Page 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 2015 Mikið úrval af fallegri jólavöru www.facebook.com/spennandi Opið: Mán-fim: 12-18 - fös: 12-16 Eikjuvogur 29 - 104 Rvk. S:694-7911 Guðrún Hálfdánardóttir guna@mbl.is Um 20% íslenskra barna glíma við geðræn vandamál og þetta er vanda- mál sem hefur verið þekkt áratugum saman. Samt vantar mikið upp á að þeim sé sinnt og það getur verið margra mánaða bið eftir sálfræðiað- stoð í skólum. Þetta segir Wilhelm Norðfjörð sálfræðingur, en hann flutti erindi í gær á fundi samtakanna Náum áttum um sálfræðiþjónustu skóla. Hann segir að gríðarlega margt hafi áunnist þegar komi að aðstoð við börn sem glími við lestrarörðugleika og börn með ADHD. „En að mínu mati sitja börn með tilfinningalegan vanda eftir,“ segir Wilhelm og segir að Ísland hafi ekki staðið sig nægjan- lega vel þegar komi að þessum vanda sem mörg börn glími við. Því var spáð af Alþjóðaheilbrigðis- málastofnuninni (WHO) árið 1999 að þunglyndi yrði í öðru sæti yfir heil- brigðisvandann í heiminum árið 2020. En því miður er þunglyndi komið í það sæti nú þegar, mun fyrr en spáð var. „Rannsóknir hafa sýnt að þung- lyndi er að aukast verulega hjá ungu fólki og að börn sem verða kvíðin á grunnskólaaldri verða gjarnan þung- lynd um 18-20 ára aldurinn, eða þeg- ar þau eru kannski langt komin með framhaldsskólann,“ segir Wilhelm og bendir á að á sama tíma sé allt of al- gengt að ungt fólk svipti sig lífi. Lestrarkunnátta skildi milli bekkja fyrir tossa og góða nemendur Hann lýsti eigin skólagöngu, en þegar hann hóf nám í Melaskóla árið 1957 var enn raðað í bekki eftir lestrarkunnáttu svo að móðir hans fór með hann í lestrarkennslu árið á undan, sem skilaði þeim árangri að hann var settur í bekki fyrir góða nemendur. „Móðir mín var að tryggja mér sæti í góðum bekk,“ seg- ir Wilhelm. Á þessum tíma voru átta bekkir í Melaskóla og einhverjir þeirra þóttu vera tossabekkir. Á þessum tíma voru barsmíðar að detta út úr ís- lensku skólakerfi og því var kennara- prikinu aldrei beitt á nemendur, seg- ir Wilhelm. Þegar leið á barnaskólaárin hjá Wilhelm fór að bera á því að hug- myndir atferlissálfræðingsins Skin- ners síuðust inn í skólastarfið og við- urkenningar- og skammarskjöl voru skrifuð og send heim með börnunum til undirritunar foreldra. „Ég bjó á þessum tíma við gott ör- yggi. Mamma var alltaf heima og for- eldrar mínir eins og aðrir foreldrar í götunni höfðu komist í álnir að hluta til vegna áhrifa af heimsstyrjöldinni síðari. Við hliðina á Víðimelnum, þar sem ég átti heima, var Kamp Knox- braggahverfið sem við krakkarnir á Víðimelnum máttum alls ekki koma inn í. Enda voru reistar tveggja metra háar víggirðingar við garðana sem sneru að Kamp Knox og sums staðar var gaddavír ofan á svo við værum alveg örugg,“ segir Wilhelm. Kampararnir fordæmdir Á þessum tíma var viðvarandi hús- næðisskortur í Reykjavík og þurftu því margir að nýta sér þennan slaka húsakost í bröggunum. „Kampararnir voru fordæmdir. Eins og fatlaðir sem voru kallaðir aumingjar. Maður sagði kannski þegar maður kom heim: Ég sá aum- ingja í dag,“ segir Wilhelm. Hann segir að margir af krökkun- um sem bjuggu í braggahverfinu hafi farið í Melaskóla en ólíklegt sé að þau hafi farið í lestarkennslu eins og hann gerði. „Þess vegna fóru þau í svokallaðan tossabekk.“ Eitthvað hafa stjórnvöld verið far- in að gera sér grein fyrir að ekki væri réttlátt að láta lestrarkunnáttu við sjö ára aldur marka líf svo margra, segir Wilhelm. Því var brugðið á það ráð að leggja hópskimunargreind- arpróf fyrir nemendur þegar þeir fóru úr Melaskóla yfir í Hagaskóla. „Viti menn, þá fóru að koma nem- endur úr tossabekkjunum yfir í góðu bekkina,“ segir Wilhelm. Á þessu tímabili fóru hagsmunir segja í Mýrarhúsaskóla voru sér- smíðuð hópvinnuhúsgögn,“ segir Wilhelm. „Það kom sem sé að því að at- vinnuvegirnir þurftu meira af menntafólki. Þar var ég heppinn, því það þýddi að ég þurfti ekki að vera alhliða námsmaður til þess að vera stúdent. Menn eins og ég, með les- hömlunarvanda, hljóðvilltur og léleg- ur í stafsetningu og með tungumála- kunnáttu í lamasessi, gátu komist alla leið.“ Sálfræðingar þóttu skrýtnir Menntaskólum fjölgaði á sama tíma og atvinnulífið þurfti á fjöl- breyttri flóru að halda, fólki með frjóa hugsjónir og hugmyndir. „Þú stóðst ekki lengur við færi- bandið og gerðir það sem verkstjór- inn sagði þér að gera. Skólarnir breyttust og sálfræðingar fóru að dúkka upp í samfélaginu. Þeir þóttu ansi skrýtnir og voru til að mynda huldumenn sem voru fengnir til að skoða eitt og eitt mál í skóla. Stærri sveitarfélög fóru að nýta sér þjón- ustu sálfræðinga í auknum mæli, en skólafólk hafði lengi barist við að fá að nýta sér þjónustu þeirra.“ Árið 1974 voru sett ný grunn- skólalög sem fengu afl og orku frá framsæknu tímabili frá árinu 1966, þegar áhrif rokktónlistar og stúd- entauppreisna voru sem mest, segir Wilhelm. „Nú átti að vera sálfræðiþjónusta í öllum skólum og það þótti heppilegt að hvert stöðugildi sálfræðings sinnti þúsund börnum. Þeir áttu að sinna meðferð, greiningu og fræðslu. Sál- fræðideildir voru settar upp sem hluti af fræðsluskrifstofum og dreifð- ust um allt landið, segir Wilhelm. Hann segir að margt hafi breyst til hins betra í skólakerfinu frá þessum tíma, til að mynda lestrarkennsla og aðstoð vegna lestrarörðugleika. „Virðing er borin fyrir nemendum og foreldrum. Einelti er viðurkenndur vandi sem var byrjað að sinna fyrir árið 1980 og við erum búin að finna ADHD-börnin okkar og farin að sinna þeim,“ segir Wilhelm. Bíða marga mánuði eftir aðstoð  Mörg íslensk börn glíma við geðræn vandamál  Margt hefur áunnist þegar kemur að aðstoð við börn sem glíma við lestrarörðugleika og ADHD en börn með tilfinningalegan vanda sitja eftir Morgunblaðið/Golli Bið Oft er margra mánaða bið eftir þjónustu sálfræðinga í skólakerfinu. Dr. Nicole Dubus, sérfræðingur Fulbright-stofnunar- innar í málefnum flóttafólks, mun dvelja á Íslandi næstu þrjár vikurnar í boði Fulbright-stofnunarinnar og vel- ferðarráðuneytisins. Dr. Dubus er félagsráðgjafi með áratugareynslu af starfi með flóttafólki sem komið hef- ur til Bandaríkjanna frá mörgum ólíkum ríkjum. Henn- ar reynsla og þekking munu nýtast sérstaklega vel núna í aðdraganda þess að Ísland býður hópi flóttamanna til landsins í desember, segir í tilkynningu. Dubus mun veita Íslendingum ráðgjöf, þjálfun og að- stoð í tengslum við undirbúning móttöku flóttamanna. Hún mun starfa m.a. með ráðuneyti og flóttamannanefnd, sveitarfélögum, félagsráðgjöfum, Rauða krossinum, háskólasamfélaginu og fleiri aðilum. Velferðarráðuneytið, Fulbright-stofnunin, MARK (Miðstöð mannbreyti- leika- og kynjarannsókna) og RBF (Rannsóknarstofnun í barna- og fjöl- skylduvernd) efna til opins fundar með dr. Dubus á morgun, föstudag, í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins kl. 12.00. Allir eru velkomnir. Veitir ráðgjöf vegna komu flóttafólks Nicole Dubus Félög stjórnsýslu- og stjórnmála- fræðinga í samvinnu við Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála halda í sameiningu fund um um- fang spillingar á Íslandi og áhrif hennar á íslensk stjórnmál, stjórn- sýslu og viðskiptalíf. Fundurinn fer fram föstudaginn 27. nóvember kl. 12.30-13.30 í stofu N-132 í Öskju. Framsögumenn verða Ásgeir Brynjar Torfason rekstrarhag- fræðingur, Jón Ólafsson heimspek- ingur og Sigurbjörg Sigurgeirs- dóttir stjórnsýslufræðingur. Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans, stýrir umræðum. Allir eru velkomnir. Hádegisfundur um umfang spillingar Fjallað verður um ofbeldi gagnvart ölduðum á Íslandi á ráðstefnu á Grand hóteli í Reykjavík föstudag- inn 27. nóvember kl. 13.30. Þar ræðir Sigrún Ingvarsdóttir fé- lagsráðgjafi um skilgreiningar á of- beldi gagnvart öldruðum og mis- munandi birtingarmyndir þess. Alda Hrönn Jóhannsdóttir aðallög- fræðingur fjallar um sjónarhorn lögreglunnar á málaflokkinn og Gísli Jafetsson, framkvæmdastjóri Félags eldri borgara í Reykjavík, um alvarleika málsins út frá fjár- hagslegum sjónarmiðum. Þá flytur Kristjana Sigmundsdóttir, rétt- indagæslumaður fatlaðs fólks, er- indi. Aðgangur er ókeypis. Ræða ofbeldi gagn- vart öldruðum STUTT „Árið 1984 var komin sálfræðiþjónusta um allt land. Á tíunda áratugnum var ákveðið að taka út ákvæðið um að sálfræðingar sinntu meðferð í skólum. Hvað sálfræð- ingar sinntu mörgum börnum virtist verða tilviljana- kennt. Smám saman þróaðist þetta í það að greiningar urðu aðalstarf sálfræðinga. Sumir sálfræðingar sinna hátt í tvö þúsund börnum í dag,“ segir Wilhelm. Hann segir að nú sé staðan sú að oft þurfi að bíða marga mánuði eftir meðferð á sálfræðideildum og for- eldrum barna sem glíma við kvíða og þunglyndi jafnvel ráðlagt að fara út í bæ og leita aðstoðar fyrir börn sín.„Þá erum við aftur komin að árinu 1956 þegar það voru forréttindi að komast í góðan bekk. Það eru því forréttindi að fá kvíða- og þunglyndismeðferð fyrir börnin okkar. Til þess þarf peninga en ekki síður skilning á mikilvægi með- ferðar,“ segir hann. Að sögn Wilhelms væri gott að byrja á því að setja meðferðarákvæði inn á ný hjá sálfræðideildum og eins að ekki væru yfir þúsund börn á hvert stöðugildi sálfræðings. Erum komin aftur að 1956 SÁLFRÆÐIÞJÓNUSTA Wilhelm Norðfjörð atvinnuveganna, að sögn Wilhelms, að breytast. Á sjöunda áratugnum fóru til dæmis Volvo-verksmiðjurnar að láta verkamenn sína vinna í hóp- um og hópar fóru að verða ábyrgir fyrir hluta af framleiðsluferli sínu. Hópmeðferð hófst á geðdeildum og hópvinna var í skólum. „Meira að
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.