Morgunblaðið - 26.11.2015, Síða 71
UMRÆÐAN 71
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 2015
Oddafélagið, samtök
áhugamanna um end-
urreisn fræðaseturs á
Odda á Rangárvöllum,
var stofnað fullveldis-
daginn 1. desember
1990. Það verður því
25 ára 1. desember
2015.
Fyrsta desember
2015 verða liðin 25 ár
frá stofnun Odda-
félagsins, samtaka áhugamanna um
endurreisn fræðaseturs á Odda á
Rangárvöllum. Það var stofnað í
Odda fullveldisdaginn 1. desember
1990. Mikið vatn er til sjávar runn-
ið, margir fundir hafa verið haldnir
og málþing, og ýmsu fleiru til leiðar
komið.
Meginverkefni Oddafélagsins er
að minna þjóðina á Odda á Rang-
árvöllum, merka sögu staðarins og
möguleika þar og umhverfis hann til
eflingar menningu og menntun í
Rangárþingi. Félagar í Oddafélag-
inu hafa líka talið það þjóðþrifamál
að efla Odda. Það væri málefni sem
stjórnvöld og þjóðin öll ætti að að-
hyllast og styðja með ráðum og dáð
til að draumur um glæsta framtíð
sem fortíð staðarins gæti ræst.
Fortíð og framtíð
Oddi á Rangárvöllum er sögu-
frægur staður. Þar bjuggu Odda-
verjar, ein merkasta ætt þjóðveld-
isaldar. Þeirra á meðal voru
Sæmundur fróði Sigfússon (1056-
1133), lærðasti maður á landinu um
sína daga, og sonarsonur hans, Jón
Loftsson (1124-1197), voldugasti
höfðingi á Íslandi. Hjá Jóni ólst upp
Snorri Sturluson (1178-1241),
sagnaritari og lögsögumaður, sem
telja má frægasta Íslending fyrr og
síðar. Allar aldir síðan var Oddi eft-
irsóttur staður og bjuggu þar ýmsir
nafntogaðir prestar, en kunnastur
þeirra er þjóðskáldið sr. Matthías
Jochumsson (1835-1920).
En Oddi á Rangárvöllum hefur
fleira til síns ágætis. Hann er á
miðju Suðurlandi og
víðsýni af Gamma-
brekku í Odda mikið.
Blasir þar fjallahringur
undirlendisins fag-
urlega við í heiðskíru
veðri. Oddi er því vel í
sveit settur fyrir mið-
stöð fræða og fræðslu í
framtíðinni til gagns og
ánægju heimamönnum
og gestum og gang-
andi.
Oddafélagið vinnur
að því að vekja áhuga á
Odda í fortíð og framtíð. Um 100
manns eru í félaginu og eiga Odda-
félagar heima víðs vegar á landinu,
einstaka erlendis, en flestir eru í
Rangárþingi og á höfuðborgar-
svæðinu. Árlegt málþing, Odda-
stefna, er haldið með fyrirlestrum
um sögu og náttúru, flest um Rang-
árþing en annars um allt milli him-
ins og jarðar. Flest erindanna hafa
birst í Goðasteini, héraðsriti Rang-
æinga.
Unnin verk og framtíðarsýn
Oddafélagið hefur stuðlað að
framgangi ýmissa framkvæmda, svo
sem útsýnisskífu á Gammabrekku í
Odda í samvinnu við Oddasókn og í
samvinnu við Háskóla Íslands upp-
setningu á afsteypu af styttu Ás-
mundar Sveinssonar myndhöggvara
af Sæmundi á selnum. Afsteypan
prýðir hólinn fyrir ofan Oddakirkju.
Hugmyndir um framtíðarumhverfi
Odda hafa verið ræddar á fundum í
félaginu. Ein hugmyndanna nefnist
„Sæmundarvellir“.
Í greininni „Sæmundarvellir um-
hverfis Odda á Rangárvöllum“, sem
birtist í Morgunblaðinu 30. ágúst
2010, bls. 17, er lýst í örstuttu máli
tillögu að fræðasetri á sléttlendinu
umhverfis Oddastað. Kynning á
henni hefur staðið yfir og fengið
góðar undirtektir.
Atvinnu- og menningarmálanefnd
Rangárþings ytra ályktaði á fundi
22. júní 2011 um erindi Oddafélags-
ins varðandi Sæmundarvelli:
„Í erindinu (Oddafélagsins) kem-
ur fram að sveitarstjórn er hvött til
að leggja áherslu á verndun svæðis
umhverfis Odda á Rangárvöllum
með það í huga að byggja upp fram-
tíðarumhverfi fyrir fræðasetur, Sæ-
mundarvelli sbr. áður sent erindi
frá félaginu. Með erindinu er ekki
átt við að krafist verði breytinga á
því sem þarna er nú fyrir hendi, en
allir sem nærri koma yrðu hvattir
til að taka þátt í því að hefja hinn
sögufræga stað aftur til vegs og
virðingar.
Sveitarstjórn óskar eftir því við
skipulags- og byggingarfulltrúa að
hann skili inn greinargerð til sveit-
arstjórnar vegna þeirra hugmynda
sem fram koma í erindinu, að höfðu
samráði við landeigendur og hags-
munaaðila, svo hægt sé að taka af-
stöðu til þess.
Nefndinni líst vel á verkefnið og
styður það heilshugar.“
Stefnt að þáttaskilum
Oddafélagið hefur alla tíð notið
stuðnings margra, sveitarstjórnar
Rangárþings ytra, héraðsnefndar,
Oddasóknar og sóknarprestanna í
Odda. Þá hafa Landgræðsla ríkisins
og Byggðasafnið í Skógum tekið
rausnarlega á móti fundargestum
þegar Oddastefna hefur verið haldin
þar á bæjum. Síðast en ekki síst
skal nefna fórnfýsi stjórnarmanna
og tryggð þeirra og félagsmanna
allra og trú á málstaðinn.
Stjórn félagsins hafa lengi skipað
Þór Jakobsson formaður, Drífa
Hjartardóttir varaformaður, sr.
Guðbjörg Arnardóttir ritari, Íris
Björk Sigurðardóttir gjaldkeri, Sig-
rún Ólafsdóttir, Helgi Þorláksson
og Birgir Jónsson. Á tímamótum í
sögu félagsins verður sú endurnýj-
un á aðalfundi 17. febrúar nk. að
Ágúst Sigurðsson, sveitarstjóri
Rangárþings ytra, tekur sæti Þórs
og sr. Elína Hrund Kristjánsdóttir,
nýr sóknarprestur í Odda, tekur við
af sr. Guðbjörgu. Þór mun sinna að
mestu Oddastefnum áfram og skrifa
sögu félagsins.
Aldarfjórðungur margra orða
fremur en verka er að baki. Á næsta
skeiði verður þessu öfugt farið. Ný
stjórn og ný vakning mun koma því
til leiðar.
Oddi á Rangárvöllum
– Vagga íslenskrar menningar
Eftir Þór
Jakobsson
» Aldarfjórðungur er
liðinn síðan Odda-
félagið, samtök áhuga-
manna um endurreisn
fræðaseturs á Odda á
Rangárvöllum, var
stofnað.
Þór Jakobsson
Höfundur er veðurfræðingur
og formaður Oddafélagsins.
Mynd/Þór Jakobsson
Oddastaður Sæmundur á selnum, Oddakirkja, Eyjafjallajökull 21.4. 2010.
„Trúir þú, Agrippa
konungur, spámönn-
unum? Ég veit að þú
trúir.“
Post. 26, 27.
Ég sem þetta rita
trúi spámönnum þeim
sem Guð sendi Ísraels-
mönnum og Heilög
ritning fjallar um.
Margir þeir spá-
dómar sem spámenn-
irnir fluttu, hafa uppfyllst á okkar
dögum og einnig fyrr á öldum. Því
verður ekki mótmælt að stofnun Ísr-
aelsríkis er einn af fjölmörgum spá-
dómum sem uppfyllst hafa. Einnig
sú barátta sem Ísrael hefur mátt
þola af nágrönnum sínum. Reyndar
eru það ekki ný tíðindi. Við sjáum
það t.d. í 2. Davíðssálmi en þar segir
m.a.:
„1 Hví gera þjóðirnar samsæri,
hví hyggja þær á fánýt ráð?
2 Konungar jarðar rísa upp,
höfðingjar ráða ráðum sínum
gegn Drottni og hans smurða:
3 „Vér skulum slíta fjötra þeirra
og varpa af oss viðjum þeirra.“
Er það ekki þetta sem er að ger-
ast að þjóðirnar „hyggja á fánýt
ráð,“ vilja þær ekki „slíta fjötra
þeirra og varpa af sér viðjum
þeirra.“ Við sjáum á þessu að það er
ekki nýtt að þær þjóðir sem eru í
kringum Ísrael gera samsæri og
hyggja á fánýt ráð til
þess að slíta þá fjötra
og varpa viðjum sem
þeim finnst að Ísrael
beiti þær. En þrátt fyr-
ir margítrekaðar til-
raunir hafa ráð þeirra
verið fánýt.
Einn er sá spádómur
sem Esekíel spámaður
setti fram og er í 38.-39.
kap. bókar hans. Það er
spádómar gegn Góg.
Það er ekki gott að
segja hver þessi Góg er,
en hitt er að það ástand
sem er í Mið-Austurlöndum og þá
sérstaklega í Sýrlandi er óþægilega
líkt því sem verður í því stríði sem
Esekíel talar um.
Ég skal viðurkenna að þegar
fréttir bárust um að Rússar væru
þátttakendur í þeim átökum fannst
mér, að þetta stríð væri óþægilega
nálægt því sem spámaðurinn ritar
um. Því það er talað um her „frá hin-
um fjarlægustu byggðum í norðri“.
Það hefur ávallt verið litið svo á að
Rússar muni verða þátttakendur í
hinu svokallaða Góg-stríði.
Nú berast af því fréttir að ISIS-
hryðjuverkasamtökin hafi í hyggju
að hefja innreið sína í Ísrael og
þurrka burt gyðingasamfélagið í
landinu. Hvatt er til þess að menn
taki þessa hótum alvarlega því að
gyðingar séu helstu óvinir múslima.
„Hið eina sanna stríð er ekki hafið
og það verður og að það verður litið
á allt sem á undan er gengið sem
barnaleik miðað við það sem koma
skal.“ Segir í þessari yfirlýsingu.
Síðan er lögð áhersla á að þetta séu
ekki innantóm orð. „Við munum
gera árásir úr öllum áttum.“
Og hvað segir Esekíel? „Kemur
þú ekki frá landi þínu lengst í norðri,
þú og margar þjóðir með þér.“ Ese-
kíel talar um bandalag þjóða sem
taka ráð sín saman, bindast her-
bandalagi til að ráðast á Ísrael.
Ég tel að það sé full ástæða til
þess að við gefum spádómum Heil-
agrar ritningar meiri gaum en við
höfum e.t.v. gert hingað til. Við vilj-
um gleyma því svo oft að Gamla
testamentið er einnig orð Guðs og
flytur einnig boðskap sem við eigum
að hlýða á, ekki síður en Nýja testa-
mentið. Því Nt. er uppfylling þess
sem flutt var í hinu gamla.
Ég hef viljað vekja athygli trúaðra
sem treysta orði Guðs, að gefa því
athygli sem er að gerast í heiminum
nú á dögum og ritningarnar hafa
sagt fyrir. Því það eigum við öll að
geta. Það var eitt af því sem Jesús
hvatti okkur til, að gefa gaum að
táknum tímanna.
Trúir þú?
Eftir Ólaf Gunnar
Vigfússon
Ólafur Gunnar
Vigfússon
»Ég tel að það sé full
ástæða til þess að
við gefum spádómum
Heilagrar ritningar
meiri gaum en við höf-
um e.t.v. gert hingað til.
Höfundur er fyrrverandi
verslunarmaður.
Kunningi minn sveif
á mig á dögunum á
förnum vegi og var í
uppnámi. Hann hafði
farið á viðburð hér í
Reykjavík, þar sem
kynnt var útgáfa á
Flateyjarbók á norsku,
mikið verk og dýrt. Allt
fór fram á ensku, þar á
meðal ávarp norska
sendiherrans. Hann
kvaðst hafa spurt sendiherrann, hvað
það ætti að þýða, að hún skyldi ekki
tala norsku. Heldurðu, að ég hefði
fengið leyfi til þess, svaraði hún, ný-
komin til starfa hér.
Kunninginn var leiðsögumaður
nokkurra Norðmanna og hafði séð
þarna tækifæri til að koma til móts
við þá og fannst skömm að, þegar til
kom. Mér þykir ekki líklegt, að nokk-
ur hafi sótt þennan viðburð, sem ekki
skildi norsku. Viðbúnaður á slíkum
samkomum gæti verið að gefa kost á
samhliða túlkun með
tækjum, heldur en ryðja
út öðrum málum en
ensku.
Á Melunum rís nú hús
yfir Stofnun Vigdísar
Finnbogadóttur. Hug-
sjónin er þar að virða
þjóðtungurnar. Í Há-
skóla Íslands fer fram
kennsla í þýðing-
arfræðum. Ég heyrði
erindi forstöðumannsins
um daginn, þar sem kom
fram, að honum var ofarlega í huga
að efla íslenskt mál gegn ofurvaldi
heimsmálsins. Saga leiðsögumanns-
ins er ekki uppörvandi fyrir slíkt starf
né hugsjón Vigdísar Finnbogadóttur.
Norðurlandamál
Eftir Björn S.
Stefánsson
Björn S. Stefánsson
»Norrænir viðburðir
hér eiga helst ekki
að fara fram á ensku.
Höfundur er í Reykjavíkur-
akademíunni.
Nú geta allir fengið
iPad-áskrift
Skráðu þig í iPad-áskrift á
www.mbl.is/mogginn/ipad/