Morgunblaðið - 26.11.2015, Side 92

Morgunblaðið - 26.11.2015, Side 92
92 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 2015 BÆKUR Glæný bók með gamansögum úr Kópavogi! Hér stíga fjölmargir Kópa- vogsbúar fram í sviðsljósið og segja sögur af sér og öðrum. Að sjálfsögðu fylgir smellinn kveðskapur með! Útgáfuteiti í Bókasafni Kópavogs, Hamraborg 6a, föstudaginn 23. okt. klukkan 16–17. Kaffi og kleinur. Allir velkomnir! www.holabok.is IV. kafli. Lán geta verið lán eða ólán Allir taka lán um ævina. Að taka lán er stór ákvörðun því í henni felst skuldbinding. Í kaflanum er fjallað um helstu tegundir lána og atriði sem þarf að hafa í huga áður en ákvörðun um lán er tekin. Í kaflanum er m.a. farið yfir sex lykilatriði sem gott er að hafa í huga. Fyrir aftan er útdráttur úr kafl- anum þar sem fjallað er sjötta atriðið sem er að lán þarf að undirbúa vel. 6. Lán þarf að undirbúa vel Einstaklingar verða að gefa sér góðan tíma ef þeir þurfa eða eru að hugsa um að taka lán. Það borgar sig að fara vandlega yfir áætlaða greiðslu- byrði, kostnað og hvaða áhrif lántaka hefur á fjármálin. Lán til langs tíma þarf að undirbúa sérstaklega þar sem forsendur við lántöku geta breyst á lánstímanum. Langtímalán vega yfir- leitt þyngra í fjármálum einstaklinga en neyslulán sem þýðir að afleiðingar greiðslufalls eru meiri. Lántakendur á lánum til langs tíma þurfa að búa sig undir að for-sendur við töku láns geti breyst á lánstíman- um. Augljósasta dæmið er ef breyt- ingar verða á högum lántaka vegna breytinga á launum, atvinnumissis, veikinda eða slysa. Einstaklingar geta varið sig fyrir tekjumissi vegna veik- inda eða slysa með því að kaupa tryggingar, sjá V. kafla. Engar trygg- ingar eru fáanlegar til að verjast breytingum á tekjum eða kaupmætti og því þurfa lántakar að gæta þess við lántöku að þola breytingar á greiðslu- byrði. Það er best gert með því að skuldsetja sig ekki of mikið eða m.ö.o. greiðslubyrði má ekki vera svo þung að ekkert megi út af bera. Þróun verðlags og launa eru þær breytur sem hafa mest áhrif á greiðslubyrði af langtímalánum ein- staklinga. Vegna viðvarandi verð- bólgu á Íslandi eru lán til langs tíma annað hvort verðtryggð eða með breytilegum vöxtum. Verðbólga og alveg sérstaklega mikil hækkun á verðbólgu hefur áhrif á greiðslubyrði lántakenda og skiptir þá ekki máli hvort lán eru verðtryggð eða óverð- tryggð með breytilegum vöxtum. Það sem skiptir mestu máli fyrir lántakendur er að laun hækki svipað og greiðslur af lánum til langs tíma. Ef laun hækka meira en verðbólga eykst kaupmáttur og raunveruleg greiðslubyrði lána lækkar. Ef launin hækka hins vegar minna en verðlag hækkar raungreiðslubyrðin og hlut- fall afborgana og vaxta af ráðstöf- unartekjum vegur þyngra. Sá sem tekur lán fær afhenta greiðsluáætlun með áætlaðri verð- bólgu áður en lán er tekið m.a. til að meta hvort hann eða hún geti greitt af láninu. Greiðsluáætlunin er gagnleg til skamms tíma en sé litið til lengri tíma minnkar notagildið vegna þess að í viðvarandi verðbólgu rýrnar verðgildi krónunnar stöðugt. Afleiðing verð- bólgu er að ein króna í lok lánstíma hefur minni kaupmátt en ein króna þegar lán er tekið. Þessi áhrif magn- ast yfir tíma. Þannig var ein króna í ársbyrjun 2015 ekki nema 33% af verðgildi einnar krónu í janúar 1990. Þeir sem taka lán eða veita lán til langs tíma þurfa að reikna með að forsendur geti breyst, t.d. þróun verð- lags, launa og útgjalda. Það er ekki nóg að reikna greiðsluáætlun ein- göngu m.v. sögulega verðbólgu, eins og farið er fram á í lögum um neyt- endalán, því slík áætlun skilar tölum á seinni hluta lánstímans á allt öðru verðlagi en í dag. Greiðslu-áætlun til langs tíma verður að taka tillit til launaþróunar til þess að hægt sé að áætla raungreiðslubyrði eða hlutfall greiðslna af ráðstöf-unartekjum. Önnur atriði geta líka haft áhrif hjá einstaklingum, t.d. breytingar á fjöl- skylduhögum, ef einstaklingur dregur úr vinnu eða sér fram á minni vinnu, breytingar á sköttum, o.fl. Fyrir ungt fólk skiptir einnig máli að laun flestra hækka á starfsævinni með aukinni ábyrgð og starfsreynslu. Enginn skyldi hins vegar taka lán út á launa- hækkun fyrr en hún er staðreynd. Til að setja skuldsetningu í eitt- hvert samhengi getur verið gagnlegt að horfa á hámarkslán sem fjölda árs- launa. Ágæt viðmiðun er að heild- arskuldir séu ekki meiri en 2 til 3 árs- laun. Þrátt fyrir að núverandi laun og framfærslukostnaður bendi til þess að hægt sé að taka lán yfir 3 árslaun- um þá eru lán yfir þeim mörkum orð- in mikil skuldbinding sem erfitt getur verið að vinda ofan af. Vissulega er það þannig að svigrúm til lántöku hækkar með auknum laun- um svo lengi sem neysla eykst ekki í takt við hærri laun. Almennt ættu ein- staklingar þó ekki að skuldbinda sig meira en sem nemur þrennum árs- launum nema að þeir eigi eignir og varasjóð til að mæta áföllum (atvinnu- missir, launalækkun, o.fl.) og séu með sérstakar tryggingar til að verja sig og fjölskyldu sína fyrir tekjumissi vegna veikinda, slysa eða fráfalls (sjá umfjöll- un í kafla V). Þeir sem telja sig geta keypt dýrar eignir með lántöku vegna hárra tekna ættu frekar að gera það í áföngum og forðast þannig áhættu vegna skuldbindinga sem felast í háum lánum. Þeir sem hafa há laun ættu að vera meðvitaðir um að aðstæður geta breyst hratt og laun lækkað. Þegar ákvörðun um lánsfjárhæð og lánstíma liggur fyrir er gott ráð að fara vandlega yfir lántökukostnað. Hvað kostar að taka lánið, hvað kostar að greiða af því og hvað kostar að gera breytingar á láninu? Lántakendur ættu einnig að kanna fyrirfram hvort þeir geti greitt aukalega inn á lánið á lánstímanum eða greitt lánið upp fyrr en samkvæmt skilmálum. Hvað kostar það? Það er afar mikilvægt að geta greitt upp lán ef aðstæður breytast. Verður lánið að óláni? Í bókinni Lífið er fram- undan eftir Gunnar Bald- vinsson eru leiðbeiningar í fjármálum fyrir ungt fólk sem er að byrja að búa og vinna. Megin- skilaboð bókarinnar eru að hvetja fólk til að hugsa til langs tíma og gefa sér tíma til að skipuleggja fjármálin. Framtíðarsýn gefur út. Góð ráð fyrir ungt fólk Gunnar Baldvinsson, höfundur Lífið er framundan, sem miðar að því að auka fjármálalæsi meðal ungs fólks. Fyrir flesta er eðlilegt að miða við að greiðslubyrði af langtímalánum sé ekki hærri en 15% til 20% af heildarlaunum. Af því leiðir að heildarskuldir mega helst ekki vera meiri en sem nemur 3 árslaunum og minna ef lánstím- inn er styttri en 20 ár. Myndin sýnir greiðslubyrði lána fyrir einstaklinga eða hjón sem skulda 2, 3 eða 4 árslaun. Einstaklingur eða hjón sem skulda 3 árslaun eru með greiðslubyrði sem nemur 19% af launum ef lánstími er 25 ár en 15% ef lánstíminn er 40 ár. Ef skuldirnar eru meiri eða sem nemur 4 árslaunum er greiðslubyrðin 25% af launum miðað við 25 ára lánstíma og 19% af launum ef lánstíminn er 40 ár. Það er þung byrði að bera í langan tíma. Greiðslubyrði langtímalána Lánstími 4 árslaun 3 árslaun 2 árslaun 15 ár 20 ár 25 ár 30 ár 35 ár 40 ár 35% 30% 25% 20% 15% 10% 5% Greiðslubyrði sem hlutfall launa,miðuð við 3,85% vexti Eðlilegt að miða við að greiðslubyrðin sé ekki hærri en 15-20% af heildarlaunum Raungreiðslubyrði lána tekur tillit til bæði verðlags- og launaþróunar. Ef laun hækka jafnt og verðbólga er hagur lántakans óbreyttur og hann greiðir sama hlutfall af launum í afborganir ef lán er með jöfnum greiðslum. Myndin sýnir þróun raungreiðslubyrði og verðlags til saman- burðar. Fyrir þann sem tók lán í ársbyrjun 1990 lækkaði raungreiðslubyrði sam- tals um 32% á 25 árum eða til ársloka 2014. Sem dæmi má nefna að greiðslubyrði láns með jöfnum greiðslum sem var 15% af launum í janúar 1990 lækkaði í 10,3% í janúar 2015. Raungreiðslubyrðin hækkaði fyrstu árin en fór síðan lækkandi frá 1995 til 2008 en þá hækkaði hún um tæp 14% á tveimur árum. Sú hækkun hefur síðan að mestu gengið til baka. Rétt er að hafa í huga að hér er raun- greiðslubyrði reiknuð út frá vísitölum sem segir ekki alla söguna því launa- og útgjaldaþróun er mismunandi hjá einstaklingum. Raungreiðslubyrði lána 1990 1995 2000 2005 2010 2015 350 300 250 200 150 100 50 Heimild: Hagstofa Íslands 1990 = 100 Raungreiðslubyrði Verðlag Raungreiðslubyrðin tekur tillit til bæði verðlags- og launaþróunar
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.