Morgunblaðið - 26.11.2015, Blaðsíða 110
110 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 2015
Uppgjör á Skuggaskeri
Leyniturninn á Skuggaskeri bbbnn
Texti og myndir eftir Sigrúnu Eldjárn.
Mál og menning gefur út. 217 bls. innb.
Í bókinni Strokubörnin
á Skuggaskeri gáfust sex
börn upp á sífelldu stríði
milli nágrannabæjanna í
Fagradal og flúðu út í
Skuggasker. Þar hittu
þau drenginn Kára og
lentu í ýmsum ævintýr-
um sem rakin eru frekar í
næstu bók, Draugagang-
ur á Skuggaskeri. Leyni-
turninn á Skuggaskeri er
þriðja og síðasta bókin
um strokubörnin og þá ná ævintýrin hámarki
og greiðist úr öllum flækjum.
Bækurnar eru allar fjörlega skrifaðar, kafl-
ar stuttir og heilmikið í gangi, ört skipt á milli
sjónarhorna og víst að engum leiðist við lest-
urinn. Í ljós kemur að óþokkarnir mennsku
eru ekki eins miklir óþokkar og við héldum,
þeir eru aðallega aular, en önnur kvikindi
koma til sögunnar sem eru öllu blóðþyrstari.
Endirinn á öllu saman er vissulega endir, en
þó hæfilega opinn, enda væri gaman að heyra
meira af Strokubörnunum seinna. Myndir í
bókinni eru frábærar, eins og við var að búast
af Sigrúnu.
Ævintýraleg flétta
Koparborgin bbbbb
Eftir Ragnhildi Hólmgeirsdóttur.
Björt bókaútgáfa gefur út. 314 bls., innb.
Sumar barnabækur eru skrifaðar jafnt fyrir
börn sem fullorðna, svo vel skrifaðar og inni-
haldsríkar að þótt þær séu ætlaðar börnum
eða ungmennum geta fullorðnir líka notið þess
að lesa þær. Ekki man ég eftir mörgum slíkum
bókum íslenskum, en þær eru vissulega til – til
að mynda Koparborgin.
Sögusvið Koparborgarinnar er borg ítalskr-
ar ættar á endurreisnartímanum eða þar um
bil. Í lóninu utan við borgina búa fiskimenn í
bátum og kofum sem reistir eru á staurum.
Þegar plágan berst til fiskiþorpsins í lóninu
grípa borgarbúar til þess örþrifaráðs að
brenna fiskiþorpið og þá íbúa með sem plágan
hefur ekki lagt að velli. Pietro kemst undan við
illan leik, forðar sér á sundi. Hann er nær
dauða en lífi þegar norn
birtist honum í draumi
og læknar hann um leið
og hún velur hann til
verkefnis sem er ógn-
vænlegra en drepsóttin.
Það eru býsna krassandi
kaflar í bókinni, myrkir
og óttalegir, en ekkert úr
hófi og allt fer hæfilega
vel að lokum.
Heimurinn sem sagan
gerist í er sannkölluð listasmíð, en Ragnhildur
gætir sín á því að lýsa ekki of miklu, leyfir les-
andanum að hjálpa til við að skapa sögusviðið.
Fléttan í bókinni er ævintýraleg og snúin en
þótt illu öflin séu vissulega ill eiga þau sér
uppruna í mannlegum tilfinningum – hroka og
drottnunargirni og, ekki síst, ótta. Ástæða er
til að leggja nafn Ragnhildar Hólmgeirsdóttur
á minnið – þetta er framúrskarandi bók og
einkar vel skrifuð. Besta unglingabók ársins,
svo mikið er víst.
Ótrúlegar uppákomur
Leyndardómur erfingjans bbbnn
Eftir Guðna Líndal Benediktsson.
Myndir eftir Ivan Cappelli. Vaka-Helgafell gefur
út. 304 bls. innb.
Margir kannast ef-
laust við Kristján og afa
hans sem lentu í slíkum
ævintýrum í Leitinni að
Blóðey að lesandinn stóð
á öndinni af spenningi.
Leyndardómur erfingj-
ans hefst þar sem Krist-
ján situr kvíðinn á
sjúkrahúsi á meðan
læknar sinna mömmu
hans og pabbi er hjá
henni. Þegar Kristján er
við það að bugast birtist afi til að telja kjark í
hann, segja honum kannski eina litla sögu.
Eins og til að mynda söguna af því þar sem
hann situr og er að borða samloku að tröll-
skessa ryðst inn í eldhúsið, brýtur sér gat í
gegnum eldhúsvegginn, til að nema hann á
brott. Þetta verður síðan upphafið að miklu
ævintýri sem berst um land allt og við sögu
koma ótrúlegar ófreskjur og grimmlyndir
óþokkar, sumir sem lesendur fyrri bókarinnar
kannast við.
Sögurnar hans afa eiga það til að fara um
víðan völl, það er eiginlega það sem gerir þær
svo skemmtilegar, og áður en varir er Kristján
svo hugfanginn af ævintýrinu ægilega að hann
gleymir nánast því sem er að gerast á spít-
alanum í kringum hann og þegar hann man
það er afi ekki seinn á sér að hrista enn æsi-
legri sögur úr erminni.
Þetta er að mörgu leyti skemmtileg bók, en
orðaflaumurinn fullmikill á köflum, svo mikill
að spennan dettur niður og margt sem á ef-
laust að vera skondið og skemmtilegt verður
bara vandræðalegt. Nostra hefði mátt við text-
ann og svo er alltaf leitt að sjá málvillur, þótt
sumar þeirra séu kannski búnar að koma sér
kirfilega fyrir í íslensku.
Ægilega ægileg
ævintýri
Yfirlit yfir spennandi, hryllilegar og
ævintýralegar bækur íslenskra höfunda
fyrir börn og ungmenni á öllum aldri.
Árni Matthíasson arnim@mbl.is
Teikning/Sigrún Eldjárn
Lína Ein barnanna sem flúðu átök og illdeilur fullorðna fólksins og settust að í Skuggaskeri.
HB-System
ABUS kranar í öll verk
Smiðjuvegi 66 • Kópavogi • 580 5800 • www.landvelar.is
Stoðkranar Brúkranar
Sveiflukranar
Dagblaðið Washington Post bendir
á í grein á vef sínum að nokkrar
hæst launuðu kvikmyndastjörnur
Hollywood hafi farið með aðalhlut-
verkin í þeim kvikmyndum sem
skiluðu framleiðendum hvað mestu
tapi á þessu ári. Eru þar nefndir
leikarar og leikkonur á borð við
George Clooney, Johnny Depp,
Reese Witherspoon, Milu Kunis,
Hugh Jackman og Bradley Cooper.
Stjörnurnar dugðu ekki til þess að
fólk færi á myndirnar í bíó, t.d. á
Mortdecai sem Depp lék aðalhlut-
verkið í og fékk afleita gagnrýni og
By the Sea með stjörnuparinu An-
gelina Jolie og Brad Pitt og Julia
Roberts, Nicole Kidman og Chiwe-
tel Ejiofor náðu ekki að lokka fólk á
Secret in Their Eyes.
Greinarhöfundur veltir því fyrir
sér hvers vegna framleiðendur
treysti svo mjög á stjörnur þegar
augljóst sé að þær tryggi ekki góða
aðsókn. Svarið felist líklega í því að
fjárfestar í kvikmyndageiranum
hiki við að leggja til fé í myndir ef
engin er stjarnan. Gamla formúlan
virðist hins vegar ekki virka leng-
ur, þ.e. að stórstjarna skili mikilli
aðsókn og eitt kvikmyndafyrirtæki,
Universal Pictures, virðist hafa átt-
að sig á þessu. Það hafi aldrei átt
eins gott ár og það sem er að líða og
það án þess að framleiða eina ein-
ustu ofurhetjumynd. Meðal þeirra
mynda sem Universal frumsýndi á
árinu eru Straight Outta Compton,
Fifty Shades of Grey, Jurassic
World, Pitch Perfect 2 og Train-
wreck. Engin þessara mynda var
með stórstjörnu í aðalhlutverki eða
sniðin að vinsælasta markhópi
Hollywood: ungum, hvítum körlum.
Stjörnuskinið dugar ekki
lengur til í Hollywood
Afleit Johnny Depp í kvikmyndinni
Mortdecai sem hlaut afar neikvæða
dóma og dræma aðsókn vestra.