Morgunblaðið - 26.11.2015, Blaðsíða 112
112 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 2015
Strandgötu 24 – 220 Hafnarfjörður
Sími 565 4100 - www.nyform.is
Eldhúsborð og stólar teg. Kelly Komnir aftur margir litir Borðstofuhúsgögn teg. Amadeus
1 Teg. Giulia 3 – 1 – 1
Opið virka daga kl. 10–18
Laugardaga kl. 11–15
Erum á Strandgötu 24, Hafnarfirði
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Hollenska barnastjarnan Amira
Willighagen syngur á jóla-
tónleikum Björgvins Halldórs-
sonar, Jólagestum, sem haldnir
verða í Laugardalshöll 12. desem-
ber nk. Willighagen vakti mikla at-
hygli í heimalandi sínu þegar hún
fór með sigur af hólmi í hæfileika-
sjónvarpsþáttunum Holland’s Got
Talent fyrir tveimur árum en þá
var hún aðeins níu ára. Willig-
hagen söng þar eins og engill „O
mio babbino caro“ og „Nessun
dorma“ eftir Puccini og „Ave
Maria“ eftir Gounod og voru dóm-
arar og áhorfendur furðu lostnir
yfir hæfileikum stúlkunnar, engu
líkara en þar væri á ferðinni full-
orðin og lærð söngkona.
Willighagen hefur upp frá því
sungið í fjölmörgum löndum, m.a. í
Suður-Afríku og Bandaríkjunum
og tvær hljómplötur hafa verið
gefnar út með söng hennar. Sú
fyrri, Amira, náði gullsölu í Hol-
landi á tveimur vikum, yfir 10.000
eintök höfðu þá verið seld og sú
seinni, Merry Christmas, kom út í
þessum mánuði og hefur að geyma
jólalög í bland við aríur.
Stundum þreytt
Blaðamaður ræddi við Amiru í
síma í liðinni viku og var engu lík-
ara en hann væri að ræða við full-
orðna manneskju, að röddinni und-
anskilinni. Amira talar ensku svo
til hnökralaust þrátt fyrir að vera
aðeins 11 ára en móðir hennar er
suðurafrísk, faðirinn hollenskur og
skýrir það að hluta furðugóð tök
hennar á tungumálinu. Amira seg-
ist líka þurfa að tala góða ensku
vegna söngferðalaga sinna og við-
tala og bætir við að enska sé ekki
svo erfitt tungumál að læra.
Amira hefur aldrei komið til Ís-
lands og segist hlakka mikið til
heimsóknarinnar. Löndin eru hins
vegar mörg sem hún hefur heim-
sótt vegna tónleikahalds. „Ég hef
ekki verið beðin oft um að halda
tónleika í Hollandi en mjög oft í
öðrum löndum,“ segir Amira.
– Finnst þér ekki erfitt að
ferðast svona mikið?
„Það er ekki erfitt en stundum
er ég dálítið þreytt, t.d. ef ég þarf
að fljúga til Austurríkis og næsta
dag til Spánar eða annars lands.
Þá verð ég dálítið þreytt en það er
þó ekki svo slæmt því ég get farið
aftur að sofa,“ segir Amira.
– Hvernig var að taka þátt í
Holland’s Got Talent?
„Það var mjög gaman en ég var
bara níu ára, bara lítil stelpa. Ég
var dálítið taugaveikluð, var ekki
viss um að ég gæti sungið vel og
átti ekki von á því að fólkið myndi
klappa svona mikið eða að ég
myndi sigra.“
Ekki hrifin af popptónlist
Amira hafði hvorki stundað tón-
listarnám né farið í söngtíma áður
en hún tók þátt í keppninni og seg-
ist hún einfaldlega hafa lært lögin
með því að syngja eftir myndbönd-
um á YouTube.
– Ertu mikill unnandi klass-
ískrar tónlistar?
„Já, mjög mikill, ég er ekki svo
hrifin af popptónlist. Allir vinir
mínir hlusta á Ariönu Grande og
mér finnst það ekki skemmtileg
tónlist,“ segir Amira. Klassísk tón-
list sé mikið leikin heima hjá henni
enda faðir hennar kirkjuorganisti,
móðir hennar fiðluleikari og bróðir
hennar að læra á fiðlu. „Þeim
finnst popptónlist ekki heldur
skemmtileg,“ segir Amira um fjöl-
skyldu sína.
– Hvert er uppáhaldslagið þitt?
„Uppáhaldslagið mitt er ennþá
„O mio babbino caro“ sem ég byrj-
aði að syngja þegar ég var sjö ára
og söng í áheyrnarprufunni fyrir
Holland’s Got Talent,“ segir Amira
og er sammála blaðamanni í því að
tónlist Puccini sé einstaklega fall-
eg.
– Hvaða lög ætlarðu að syngja á
tónleikunum á Íslandi?
„Það á að koma á óvart, ég má
ekki segja frá því,“ segir Amira.
Hún hafi stungið upp á tíu lögum
og af þeim verði tvö fyrir valinu.
Gaman í skólanum
Það hlýtur að vera erfitt fyrir 11
ára söngstjörnu að flakka um
heiminn og sinna grunnskólanámi
samhliða ferðalögunum. Amira seg-
ir stundum erfitt að sinna hvoru
tveggja og oft þurfi hún og foreldr-
ar hennar að afþakka tónleikaboð.
„Það getur verið erfitt að koma
heim um miðja nótt eftir að hafa
haldið tónleika og þurfa að fara í
skólann næsta dag. Þá er ég mjög
þreytt en ég verð að gera það. Ég
vil fara á hverjum degi í skólann ef
ég get. Ég reyni að mæta eins oft
og ég get í skólann, mér finnst
gaman í skólanum,“ segir hún.
Spurð að því hvernig söngferill-
inn leggist í vini hennar segir Am-
ira að þeir séu mjög ánægðir með
hann og þá sérstaklega þegar hún
haldi þeim veislur og þá m.a. þegar
plata með henni er gefin út. Vin-
irnir mæti líka stundum á tónleika
og séu hrifnir af rödd hennar.
„Stundum syng ég fyrir þá og það
er líka gaman,“ segir Amira.
– Ætlarðu að verða atvinnu-
söngkona þegar þú verður full-
orðin?
„Ég veit það ekki, kannski á ég
eftir að gera eitthvað annað en ég
ætla að syngja áfram á hverjum
degi. Ef fólki hættir að líka röddin
í mér eða eitthvað svoleiðis þá ætla
ég ekki að vinna við það, bara
syngja mér til gamans. En ég mun
alltaf syngja,“ segir Amira.
Styrkir fátæk börn
Amira átti frumkvæði að því að
styrktarsjóður var stofnaður í
hennar nafni fyrir fátæk börn og
rennur um helmingur sönglauna
hennar og helmingur tekna af
plötusölu í sjóðinn. Hún segist hafa
farið til Suður-Afríku með móður
sinni þegar hún var sjö ára og tek-
ið eftir því að engir leikvellir væru
þar fyrir börn. Nú sé búið að
byggja leikvöll fyrir fé úr sjóðnum
í bænum Ikageng og annar verði
vígður um jólin.
„Ég vil láta byggja leikvelli eftir
mínu höfði og fara svo og sjá börn-
in leika sér á þeim,“ segir Amira
að lokum. Ótrúlega þroskuð og
hjartahlý söngstjarna þar á ferð og
með fæturna á jörðinni.
„Ég mun
alltaf syngja“
Hin 11 ára gamla Amira Willighagen,
sigurvegari Holland’s Got Talent, syngur
á jólatónleikum Björgvins Halldórssonar
Tvær plötur með söng hennar hafa
verið gefnar út Puccini í uppáhaldi
Hæfileikarík Amira Willighagen er aðeins 11 ára gömul og hefur sungið á tónleikum í fjölda landa auk þess að
syngja inn á tvær hljómplötur. Amira vill láta gott af sér leiða og styrkir fátæk börn í Afríku.
Heimasíða Almiru:
amira-online.com