Morgunblaðið - 26.11.2015, Blaðsíða 116
116 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 2015
...með nútíma
svalalokunum
og sólstofum
Skútuvogur 10b, 104 Reykjavík, sími 517 1417, glerogbrautir.is
Opið alla virka daga frá 9-17 og á föstudögum frá 9-16
• Svalalokanir
• Glerveggir
• Gler
• Felliveggir
• Garðskálar
• Handrið
Við færumþér logn & blíðu
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Þessir tónleikar eru upptaktur að
upptökum á þriðju plötu okkar sem
nefnist Kveldúlfur og mun geyma
kvöld- og næturljóð íslenskra og er-
lendra tónskálda ofin í norræna
þjóðlagahefð og spunadjass,“ segir
Eyþór Ingi Jónsson stofnandi og
stjórnandi kammerkórsins Hymno-
diu um tónleika kórsins í gömlu síld-
arverksmiðjunni á Hjalteyri við
Eyjafjörð í kvöld kl. 20.30. Með
kórnum koma fram Sigurður Flosa-
son saxófónleikari, Harald Skull-
erud slagverksleikari frá Noregi og
finnsk-samíska söngkona Ulla Pirt-
tijärvi sem jojkar að hætti Sama.
Stjórnandi tónleikanna er Eyþór
Ingi sem jafnframt leikur á harm-
óníum og fleiri hljóðfæri.
„Hugmyndin að þessu samstarfi
kviknaði í samtali við Harald í Nor-
egi, en okkur fannst spennandi að
leiða saman ólíkar stefnur,“ segir
Eyþór Ingi og rifjar upp að kórinn
hafi áður unnið með Sigurði með
góðum árangri. „Haraldur leyfði
mér að heyra nokkrar upptökur af
nokkrum jojkurum og sagði að ég
mætti velja. Þegar ég heyrði upp-
tökurnar kom engin önnur en Ulla
til greina, en hún er líka í miklu
uppáhaldi hjá Haraldi,“ segir Eyþór
Ingi og tekur fram að hann hafi
heillast af jojki og samískri menn-
ingu á námsárum sínum í Svíþjóð.
„Upptökustjóri verður Håkan Ek-
man frá Finnlandi, sem tók upp báð-
ar fyrri plötur okkar með frábærum
árangri. Í upptökuferlinu ætlum við
að leika okkur með tónlistina, endur-
útsetja og spinna. Það er ekki alveg
fyrirsjáanlegt hver lokaútkoman
verður, en má samt gera ráð fyrir
fallegum galdri,“ segir Eyþór Ingi
og bendir á að leikið verði á átta sek-
úndna eftirhljóm verksmiðjunnar.
„En eftirhljómurinn í rýminu er ein-
stakur. Upptökurnar fara fram frá
föstudegi til laugardags, en platan er
væntanleg með vorinu,“ segir Eyþór
Ingi, en söfnun fyrir plötunni stend-
ur nú sem hæst á vefnum
karolinafund.com.
Spunadjass og jojk hljómar í kvöld
Hymnodia með tónleika í síldarverk-
smiðjunni á Hjalteyri í kvöld kl. 20.30
Ljósmynd/Daníel Starrason
Frumleg Kammerkórinn Hymnodia heldur tónleika á Hjalteyri í kvöld undir stjórn Eyþórs Inga Jónssonar.
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Eitt leiddi af öðru,“ segir Ásdís
Thoroddsen leikstjóri um tilurð nýj-
ustu heimildamyndar sinnar sem
nefnist Veðrabrigði og frumsýnd
verður í Bíó Paradís í kvöld kl. 20.
„Ég fékk upp í hendurnar efni
sem tveir útlendingar höfðu tekið
upp á árunum 2009-2011 á Flateyri,“
segir Ásdís, en annar þeirra, Uwe
Teske klippti myndina. „Á upptök-
unum mátti sjá
fólk við vinnu
sína á Flateyri og
stöku viðtöl.
Þetta var töluvert
magn af efni.
Þeim hafði ekki
tekist að fjár-
magna mynd sína
og höfðu látið all-
ar upptökurnar í
hendurnar á Hjálmtý Heiðdal sem á
og rekur fyrirtækið Seyluna. Hon-
um tókst að fjármagna myndina með
því skilyrði að leikstjórinn væri ís-
lenskur,“ segir Ásdís. Meðframleið-
andi myndarinnar með Hjálmtý er
Heather Millard, en samframleiðslu-
fyrirtæki með Seylunni ehf. eru Yeti
Film frá Þýskalandi og Metro Films
frá Póllandi. Myndin er framleidd
með styrk frá Kvikmyndamiðstöð
Íslands, Kvikmyndaáætlun ESB
Creative Europe MEDIA og þýsku
sjóðunum Medienborg Berlin
-Brandenburg og Film und Medien
Stiftung NRW, en þess má geta að
RÚV og TVP í Póllandi hafa þegar
keypt sýningarréttinn.
Fékk frjálsar hendur
„En fékk algjörlega frjálsar hend-
ur í nálgun minni á myndefninu. Það
sem upphafsmenn myndarinnar
höfðu haft í hyggju voru samskipti
Íslendinga við innflytjendur, en fjöl-
margir Pólverjar og Filippseyingar
búa og starfa á Flateyri. Samskiptin
eru ágæt og því lítið um þau að
segja, en þegar ég fór að skoða efnið
blasti við mér að fólkið var niður-
dregið, þó það reyndi að gleðjast,
þar sem það bjó við mjög óöruggt at-
vinnuástand. Á þessum tíma voru
uppsagnir í gangi og nýtt fyrirtæki
tekið við sem gekk ekki. Þarna birt-
ist því ólgusjór í atvinnulífi staðarins
sem rekja mátti til kvótakerfisins,
því með tilkomu kvótakerfisins
færðust örlög íbúanna í hendur
þeirra sem réðu kvótanum,“ segir
Ásdís og tekur fram að myndin
dragi upp mynd af baráttu íbúa á
Flateyri fyrir tilveru sinni og fram-
tíð þorpsins.
Í kynningu á myndinni kemur
fram að fylgst sé með nokkrum
þorpsbúum við störf sín og rætt við
þá um lífskilyrði þeirra og þorpsins.
„Ber fyrst að telja hina öldnu Jó-
hönnu sem segir nýliðna sögu þorps-
ins. Önundur vörubílstjóri heitir eft-
ir firðinum þar sem hjarta hans
slær, en hann fær ekki þrifist. Sam-
hent fjölskylda Guðrúnar, eigin-
manns hennar og barna, gerir út og
herðir gæðaharðfisk. Einyrkinn Sig-
urður fiskar með syni sínum á ung-
lingsaldri upp í leigukvóta. Janina
var nýflutt til landsins, vann í frysti-
húsinu og var nýbúin að kaupa hús,
þegar henni var sagt upp í þreng-
ingum þorpsins. Stanislaw flæktist
til Íslands úr atvinnuleysi Póllands
og endaði á Flateyri sem sjómaður.
Á endanum hittum við Bryndísi, ný-
komna til þorpsins fulla eldmóðs
sem framkvæmdastjóri nýs fyrir-
tækis,“ segir í kynningu.
Óöruggt atvinnuástand
Að sögn Ásdísar fór hún í fimm
heimsóknir vestur til að taka upp
myndina. „Við höfðum síðan þann
munað að geta stokkið til baka í tíma
og notað fyrri upptökur og líka með
því að skeyta inn myndum úr safni
Ríkisútvarpsins. Þannig að inn í per-
sónulegar dramatískar frásagnir er
klippt fréttaefni allt frá því er kvóta-
hafi selur burt kvóta þorpsins dag
einn í maí 2007 og síðan þá hvernig
reynt hefur verið að koma fótum á
nýjan leik undir atvinnustarfsemi í
þorpinu; með stofnun nýs fyrirtækis
sem gerði út á leigukvóta en fór í
gjaldþrot upp úr íslenska efnahags-
hruninu. Þá kemur enn nýtt fyrir-
tæki til leiks sem virðist muni ganga
vel,“ segir Ásdís og bendir á að
kvótakerfið snerti marga. „Og það
ríkir ekki sátt í samfélaginu um
kerfið. Myndin er ekki rannsókn-
arblaðamennska nema að litlu leyti,
því vissulega klippi ég inn stað-
reyndir. En aðallega er þetta um
stemninguna og hvernig óöruggt at-
vinnuástand hefur áhrif á hvern og
einn. Þetta er Íslandssaga, sem er
svo stór og mikil að það hefur enginn
almennilega treyst sér til að koma
við þetta efni. Þetta er bara byrjun-
in. Það verður að halda áfram að
skoða þetta og rannsaka ofan í kjöl-
inn.“
Þess má að lokum geta að myndin
Veðrabrigði verður sýnd í Bíó Para-
dís fram til 2. desember.
Íslandssaga sem þyrfti
að rannsaka betur
Heimildamyndin Veðrabrigði frumsýnd í Bíó Paradís
Ásdís Thoroddsen
Ólgusjór „Inn í persónulegar dramatískar frásagnir er klippt fréttaefni allt
frá því er kvótahafi selur burt kvóta þorpsins,“ segir Ásdís Thoroddsen.