Morgunblaðið - 26.11.2015, Síða 120
120 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 2015
Undanfarin ár hefur hulunniverið svipt af mörgummyrkraverkum hérlendis,þar á meðal viðbjóðs-
legum brotum á börnum. Þetta um-
hverfi er yrkisefni Yrsu Sigurðar-
dóttur í glæpasögunni Soginu, sem
gerist að mestu í Reykjavík á næsta
ári.
Árið 2004 er lýst eftir átta ára
stúlku og rúmum
áratug síðar eru
10 ára gamlar
hugmyndir barna
um framtíðina op-
inberaðar. Um er
að ræða sam-
vinnuverkefni
tveggja vinaskóla,
nemenda í 9. bekk
í Hafnarfirði og Bandaríkjunum. Í
einu bréfanna kemur fram að á árinu
2016 verði sex manns hérlendis
drepnir og upphafsstafir þeirra fylgja
með. Í kjölfarið fer allt á fleygiferð.
Það hefur löngum verið sagt að
tengsl skipti meira máli en allt annað
í tröppugangi íslensks samfélags. Það
eru heldur ekki ný sannindi að börn
og unglingar njóta ekki alltaf sann-
mælis þegar þau eru boðberar vá-
legra tíðinda eða lenda í hringiðunni
miðri.
Yrsa fangar þetta andrúmsloft og
gengur hreint til verks. Hún skefur
ekki utan af hlutunum heldur lýsir
þeim eins og þeir koma af skepnunni
og til þess þarf orðbragð, sem eflaust
stuðar einhverja en hittir í mark. „Ég
væri til í að skera af ykkur öllum
hausinn og míga niður barkann,“ er
ekki sagt í fermingarboðum eða
barnamessum en þetta er einn af tón-
um sögunnar, sem hljómar reyndar
kunnuglega í heimsófriðnum þessar
mundir.
Þó sagan sé um margt ógeðsleg
slær Yrsa á létta strengi og kímnin
lífgar vel upp á drungann. Höfundur
kemst líka oft skemmtilega að orði,
blandar saman gríni og kaldhæðni.
Gott dæmi um þetta er lýsing á and-
rúmsloftinu dag einn á lögreglustöð-
inni: „Mannskapurinn var fölur og fá-
látur og engu líkara en borist hefðu
slæmar fréttir eða þau mátt sæta
skömmum. Kannski var flensa að
ganga.“ (bls. 262)
Yrsa leikur sér mikið með pör í
sögunni og segir í frásögninni að
slæmar fréttir eigi það til að koma
tvær og tvær í einu. Þegar betur er
að gáð þurfa öll pör samt ekki að vera
alvond. Hún vísar líka töluvert í dýra-
ríkið og gera má því skóna að mann-
skepnan sé ekki hótinu skárri en
hýenur og önnur rándýr.
„Ríka“ fólkið í góðærinu og opin-
bera kerfið fá líka sína ádrepu. Engin
bílastæði er að fá í Borgartúni, emb-
ætti saksóknara fær ekki háa ein-
kunn, föngum er sleppt án þess að
láta aðstandendur brotaþola þeirra
vita og lítið er gert úr vinnu lögregl-
unnar – löggan er góð í litlu verkefn-
unum sem skipta fáa máli. Spítalinn
er eins og fullbókað hótel og vanda-
mál sjúklinga leyst „með hjálp svefn-
lyfja sem deilt var út eins og lýsis-
pillum fyrir nóttina“.
Flétta Yrsu er úthugsuð, spennan
er töluverð og endalokin að sumu
leyti óvænt. Persónusköpun er góð
og í leitinni að sannleikanum er fróð-
legt að fylgjast jafnframt með einka-
lífi helstu persóna. Dýrslega eðlið
tekur á sig ýmsar myndir í þessari
bók, þar sem Yrsa Sigurðardóttir fer
á kostum.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Höfundurinn „Dýrslega eðlið tekur á sig ýmsar myndir í þessari bók, þar
sem Yrsa Sigurðardóttir fer á kostum,“ segir rýnir.
Yrsa stingur
á kýlum og
fer á kostum
Glæpasaga
Sogið bbbbn
Eftir Yrsu Sigurðardóttur.
Veröld. 2015. Innbundin, 368 bls.
STEINÞÓR
GUÐBJARTSSON
BÆKUR
Sænska myndlistar- og kvikmynda-
gerðarkonan Linda Persson dvelur í
gestavinnustofum Skaftfells á Seyð-
isfirði og í dag mun hún fremja gjörn-
ing í Bókabúðinni-verkefnarými, í
samstarfi við Pip Stafford, tasman-
íska fjöllistakonu og framleiðanda
sem býr í Hobart. Verk Stafford
hverfast um netverk og samskipti, at-
hafnir og mynstur, útvarp og fem-
íníska aðferðafræði, eins og segir í til-
kynningu. Gjörningurinn hefst kl.
20.15 og verður um 15 mín. að lengd
og mun Persson einnig sýna fyrstu
útgáfuna af mynd sinni Zeus Tears
sem er hluti af innsetningu hennar í
Bókabúðinni-verkefnarými.
Morgunblaðið/Skapti
Skaftfell Það er líf og fjör í lista-
miðstöðinni á Seyðisfirði.
Gjörningur framinn á
Seyðisfirði og í Tasmaníu
Þegar hrottaleg morð benda til að raðmorðingi gangi laus ákveður
rannsóknarlögreglumaðurinn Joe Merriweather að kalla til sjáand-
ann og fyrrverandi lögreglumanninn John Clancy.
IMDb 6,5/10
Sambíóin Álfabakka 17.40, 17.40, 20.00,
20.00, 22.20, 22.20,
Sambíóin Egilshöll 17.40, 20.00, 22.20,
Sambíóin Kringlunni 20.00,
Sambíóin Akureyri 17.30, 20.00, 22.20
Sambíóin Keflavík 22.00
Solace
The Last Witch
Hunter 12
Vin Diesel fer með hlutverk
Kaulder, aldagamals víga-
manns sem drap norna-
drottninguna á miðöldum.
Metacritic 36/100
IMDB 6,7/10
Sb. Álfabakka 17.30, 22.10
Sb. Egilshöll 17.40, 20.00
Sb. Akureyri 20.00
Steve Jobs Opinská mynd um snillinginn
Steve Jobs, stofnanda Apple
og frumkvöðul stafrænu
byltingarinnar.
Metacritic 82/100
IMDb 7,7/10
Sambíóin Álfabakka 20.00,
22.40
Sambíóin Akureyri 22.20
Smárabíó 20.00
Scouts Guide to the
Zombie Apocalypse 16
Þrír skátar, á lokakvöldi úti
legunnar, uppgötva gildi
sannrar vináttu þegar þeir
reyna að bjarga bænum sín-
um frá uppvakningafaraldri.
IMDb 5,9/10
Sambíóin Álfabakka 20.00,
Pan
Munaðarleysingi ferðast til
Hvergilands og uppgötvar ör-
lög sín, að verða hetjan Pétur
Pan. Bönnuð yngri en 7 ára.
Metacritic 36/100
IMDb 6,0/10
Sambíóin Álfabakka 17.30,
17.30, 20.00
Sambíóin Egilshöll 17.30
Sambíóin Kringlunni 17.30
Sambíóin Akureyri 17.30
Everest 12
Morgunblaðið bbbbm
Metacritic 66/100
IMDb 7,7/10
Sambíóin Álfabakka 17.30,
20.00, 22.40
Klovn Forever 14
Casper flytur til Los Angeles
til að eltast við frekari frægð
og frama. Frank er ákveðinn
í að vinna vináttu hans á ný
og eltir hann til LA.
Morgunblaðið bbbbn
IMDb 6,9/10
Háskólabíó 20.00, 22.20
Burnt 12
Kokkurinn Adam Jones er
einn af villingum Parísar-
borgar og skeytir ekki um
neitt nema spennuna við að
skapa nýjar bragðsprengjur.
Metacritic 38/100
IMDb 6,9/10
Háskólabíó 17.30
Legend 16
Metacritic 59/100
IMDb 7,5/10
Sambíóin Álfabakka 22.40
The Martian 12
Morgunblaðið bbbbn
Metacritic 74/100
IMDB 8,6/10
Smárabíó 22.40
Hanaslagur Tótó er ungur hani á búgarði
sem dreymir um að verða
stór og sterkur bardagahani.
IMDb 6,0/10
Laugarásbíó 16.50
Smárabíó 15.30
Borgarbíó Akureyri 18.00
Hotel
Transylvania 2 IMDB 7,7/10
Smárabíó 15.30, 17.45
Þrestir 12
Háskólabíó 17.30
Bíó Paradís 22.00
Stúlkurnar á
Kleppjárnsreykjum
Bíó Paradís 18.00
Glænýja testamentið
Morgunblaðið bbbbn
Myndin er ekki við hæfi yngri
en 9 ára.
Bíó Paradís 20.00
The Program
Metacritic 61/100
IMDb 6,6/10
Bíó Paradís 18.00
Macbeth
Bíó Paradís 22.15
Valley of Love
Isabelle og Gérard hittast á
sérkennilegum forsendum í
Dauðadal Kaliforníuríkis.
IMDb 6,1/10
Bíó Paradís 22.00
Bönnuð innan 18 ára
Fúsi
Bíó Paradís 20.00
Hrútar 12
Morgunblaðið bbbbm
Metacritic 83/100
IMDB 8,2/10
Bíó Paradís 20.00
Dheepan 12
Metacritic 78/100
IMDB 7,1/10
Bíó Paradís 17.45
Upplýsingar og ábendingar sendist á netfangið bio@mbl.is
Kvikmyndir
bíóhúsanna
Katniss Everdeen er nú orðin leiðtogi
uppreisnarinnar gegn Kapítól, þó að
hún viti enn ekki alveg hverjum á að
treysta fullkomlega.
Metacritic 75/100
IMDB 7,4/10
Laugarásbíó 17.00, 19.00, 20.00, 22.00
Smárabíó 16.00, 17.00, 17.00, 20.00, 20.00, 21.00,
22.50, 22.50
Háskólabíó 18.00, 20.00, 21.00
Sambíóin Keflavík 19.00, 22.00
Borgarbíó Akureyri 17.40, 20.00, 22.40
The Hunger Games:
Mockingjay 2 12
James Bond, uppgötvar dulkóðuð skilaboð úr
fortíð sinni sem leiða hann á slóð Spectre.
Morgnblaðið bbbbn
Metacritic 63/100
IMDb 7,5/10
Laugarásbíó 18.00, 21.00
Sambíóin Egilshöll 18.00, 20.00, 21.00, 22.10
Sambíóin Kringlunni 17.20, 18.20, 20.30, 21.30, 22.20
Sambíóin Keflavík 19.00
Smárabíó 18.00, 20.00, 22.50
Háskólabíó 18.00, 21.00
Borgarbíó Akureyri 20.00, 22.40
SPECTRE 12