Morgunblaðið - 07.01.2016, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 2016
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Sú breyting hefur verið gerð á
reglum um flugstjórn, frá því gaus í
Eyjafjallajökli, að flugrekendur taka
nú ákvarðanir um flug véla eftir
öskugos. Svæðum þar sem spáð er
ösku er ekki lokað sjálfkrafa. Ekki
hefur reynt á þessar nýju reglur. Á
komandi hausti verður stór alþjóðleg
æfing vegna viðbragða við eldgosi á
Íslandi.
Stórir jarðskjálftar í Bárðar-
bungueldstöðinni í Vatnajökli hafa
leitt til umræðu um að þar geti orðið
annað eldgos á næstu árum, jafnvel
mikil öskugos. Síðustu árin hefur
verið unnið að endurskoðun við-
bragðsáætlana. Árni Guðbrandsson,
aðalvarðstjóri í
flugstjórnarmið-
stöð Isavia, segir
raunar að fyrstu
viðbrögð séu að
loka svæði til að
vernda þær flug-
vélar sem eru á
lofti. Ferillinn er
sá að Veðurstofa
Íslands lætur
Flugstjórnar-
miðstöðina í Reykjavík og London
VAAC, sem er öskuspárdeild bresku
veðurstofunnar, vita um leið og stað-
fest er að eldgos er að hefjast eða
þegar hafið. Flugstjórn afmarkar
120 sjómílna hring um eldstöðina og
vísar allri flugumferð út af svæðinu.
Þetta á að taka skamman tíma.
Um leið er viðbragðsáætlun Isavia
vegna eldgosa virkjuð. Ef um hraun-
gos er að ræða er líklegast að svæðið
minnki fljótt en ef gosið er undir
jökli gerir Veðurstofan spálíkan um
dreifingu ösku eftir vindaspá og
gögnum úr mælitækjum. Samkvæmt
upplýsingum Isavia hefur mælitækj-
um verið fjölgað mjög frá eldgosinu í
Eyjafjallajökli og auk þeirra eru not-
aðar gervihnattamyndir og fleiri
upplýsingar. Ísland er á svæði Lond-
on VAAC og fer öskuspárdeildin
strax í að útbúa og dreifa sinni spá.
Hluti af daglegu starfi
Sú breyting hefur orðið frá ösku-
gosinu í Eyjafjallajökli að nú ákveða
flugrekendur hvort vélar þeirra
fljúga í gegnum svæði þar sem spáð
er ösku. Guðjón Arngrímsson, upp-
lýsingafulltrúi Flugleiða, segir að
flugfélagið fái nú mun fjölbreyttari
upplýsingar og frá fleiri aðilum en
áður og það tryggi nákvæmara mat
og betri ákvarðanir um flug. „Við er-
um með verkferla til að grípa til ef til
eldgoss kemur sem miða öðru frem-
ur að því að leggja mat á þá áhættu
sem skapast. Þessir ferlar taka
reyndar mið af daglegu starfi, því
breytilegt veðurfar og aðrar aðstæð-
ur kalla frá degi til dags á stöðugt
mat flugrekenda á aðstæðum til að
tryggja öryggi,“ segir Guðjón.
Isavia æfir mánaðarlega viðbrögð
við eldgosi. Betri reynsla á að fást á
kerfið á stórri alþjóðlegri æfingu
sem halda á í október. Þá verða æfð
viðbrögð við eldgosi á Íslandi.
Æfa viðbrögð við eldgosi
Stór alþjóðleg æfing vegna eldgoss á Íslandi haldin í haust Flugfélög ákveða
nú sjálf hvort flogið verði Betri upplýsingar tryggja nákvæmara mat félaganna
Strókur Aska get-
ur truflað flug.
Engin loðna sást út af austurhluta
Norðurlands og fyrir Norðaustur-
landi og sú loðna sem sást við vest-
anvert Norðurland og Vestfirði var
ekki í neinum stórum þéttingum.
Þetta er meginniðurstaða loðnumæl-
ingar rannsóknarskipa Hafrann-
sóknastofnunar og þriggja veiði-
skipa.
Þorsteinn Sigurðsson, sviðsstjóri
nytjastofnasviðs Hafrannsókna-
stofnunar, segir að búið sé að kort-
leggja útbreiðslu loðnu en nú hafi
orðið að gera hlé á mælingum vegna
veðurs. Um leið og veður lægi fari
Árni Friðriksson aftur af stað til að
að mæla magn þeirrar loðnu sem
skipstjórar veiðiskipanna kortlögðu.
Sighvatur Bjarnason VE mun að-
stoða við það.
Að því búnu verður farið yfir það
hvort ástæða er til að endurmeta
ráðgjöf um loðnukvóta. Aðeins hefur
verið gefinn út upphafskvóti, 44 þús-
und tonn, og kemur meginhluti hans
í hlut Norðmanna en aðeins 2.275
tonn í hlut íslenskra veiðiskipa.
Mikil verðmæti eru í húfi að eitt-
hvað rætist úr með loðnuvertíð.
Áætlað er að hver 100 þúsund tonn
gefi 5-6 milljarða í útflutnings-
verðmæti. helgi@mbl.is, aij@mbl.is
Engin loðna fyrir Norðausturlandi
Eftir er að mæla loðnu sem sást í
kortlagningu á vesturhluta svæðisins
Fimm skip við loðnuleit
Ísafjörður
Akureyri
Seyðisfjörður
Siglufjörður
Karlakórinn Fóstbræður verður 100 ára í haust
og minnist tímamótanna með ýmsum hætti á
árinu. Kórinn hóf afmælisárið með táknrænum
hætti í gær, á þrettándanum. Afmælisfáni var
dreginn að húni við Fóstbræðaheimilið við Lang-
holtsveg. Kórfélagar voru í hátíðarskapi og tóku
lagið til að heiðra afmælisfánann. Karlakórinn
Fóstbræður er elsti karlakór landsins með sam-
fellda starfsemi. Hann var stofnaður 1916 sem
Karlakór KFUM og má raunar rekja sögu hans
allt aftur til ársins 1911. Árið 1937 varð kórinn
sjálfstæður og tók upp núverandi nafn. Fóst-
bræður hafa sjaldan verið fleiri en á afmæl-
isárinu en í kórnum eru nú um 100 virkir söng-
menn.
Karlakórinn Fóstbræður fagnar 100 ára afmæli með ýmsum hætti á árinu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fóstbræður draga afmælisfána að húni
Miðstjórn Al-
þýðusambands
Íslands hefur
sent frá sér álykt-
un vegna ákvarð-
ana kjararáðs í
desember sl. um
launahækkun
dómara um
37,8%-48,1% og
bankastjóra
Landsbankans
um u.þ.b. 20%, en hækkanirnar tóku
gildi um áramótin.
Í ályktuninni segir að launahækk-
anirnar séu úr takti við þann veru-
leika sem þorri launafólks búi við, en
miðstjórnin telur augljóst að kjara-
ráð fylgi með ákvörðunum sínum
þeirri „ofurlaunaþróun“ sem átt hafi
sér stað hjá stjórnendum fyrirtækja
á undanförnum misserum.
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ,
segir hækkanirnar skapa ólgu á
vinnumarkaði. „Við erum að reyna
að skapa sátt á vinnumarkaði og
skapa samstöðu um leið að jafnræði.
Þetta grefur undan því og ýtir eðli-
lega undir gagnrýni,“ segir hann.
Að sögn Gylfa er þörf á aðgerðum
í skattkerfinu til að bregðast við
hækkununum. „Til að lægja þessar
öldur verður að glíma við þetta með
skattkerfinu og setja mjög háa
skatta á þessi ofurlaun. Við ráðum
ekki við þetta með kjarasamningum
á vinnumarkaðnum,“ segir hann.
jbe@mbl.is
Ákvörðun
kjararáðs
gagnrýnd
Forseti ASÍ vill
háa skatta á ofurlaun
Gylfi
Arnbjörnsson
Fjöldi erlendra ferðamanna á Ís-
landi í desember jókst um 31,9%
prósent milli ára, samkvæmt taln-
ingum Ferðamálastofu í Flugstöð
Leifs Eiríkssonar. Alls fóru um
70.900 erlendir ferðamenn frá land-
inu í desember eða um 17.100 fleiri
en í desember árið 2014.
Alls ferðuðust um 1.262.000 er-
lendir ferðamenn um Keflavík-
urflugvöll árið 2015, en gert er ráð
fyrir að sú tala nái til um 97%
þeirra ferðamanna sem hingað
komu.
Utanlandsferðum Íslendinga
fjölgaði einnig á árinu, en um
450.300 Íslendingar fóru utan á
árinu, eða um 50.300 fleiri en árið
2014.
Erlendir ferðamenn
um þriðjungi fleiri í
desember en fyrri ár