Morgunblaðið - 07.01.2016, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 07.01.2016, Blaðsíða 27
MINNINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 2016 sem alltaf skiptir máli í lífinu; manngæsku. Að leiðarlokum hafðu þökk fyrir samfylgdina. Hvíl í friði kæra frænka. Elsku Siggi Raggi, Óli, Ragn- heiður, Magga og fjölskyldur, innilegar samúðarkveðjur. Ragnheiður Ólafsdóttir. Í öllum fjölskyldum ætti að vera frænka eins og Sigga systir hans pabba, umfaðmandi, hlý og einstök mannkostakona sem átti engan sinn líka. Ég kallaði hana ýmist Siggu frænku eða Siggu systur, eins og þeir bræður, Óli og faðir okkar Guðmundur, gerðu. Sigga var sameiningartákn fjölskyldunnar, órjúfanlegur hluti af tilverunni þegar við sem tilheyrðum yngri kynslóð fjölskyldunnar vorum að alast upp. Við Ragnheiður, dóttir henn- ar, vorum jafnöldrur og miklar vinkonur á uppvaxtarárunum. Ósjaldan lá leið mín í helgarheim- sóknir með strætó á Laugarnes- veginn til Siggu frænku, Godda og fjölskyldunnar sem tóku mér opnum örmum. Þegar strætó nálgaðist var það nánast eins og óskráð regla að líta í gluggana á efstu hæðinni í húsinu til að sjá þær mæðgur horfa út. Stundum var Ragnheiður úti í garði með Möggu, sem var langyngst, yndi allra, með ljósar Shirley Temple- krullur. Það var mikill gestagangur á Laugarnesveginum og margir sem leituðu til Siggu eftir ráð- leggingum og til að spjalla. Ætíð fóru gestirnir ríkari að vísdómi og skemmtilegheitum eftir mikl- ar trakteringar og kruðirí. Ég var mikill bókaormur og fór reglulega á bókasöfn og forn- bókasölur með föður mínum að skipta bókum. Það kom fyrir að pabbi fann áhugaverða bók um gamla tíma eða ævisögur sem hann sendi mig með til Siggu því hún hefði örugglega gaman af að kíkja á bækurnar. Þar lá þeirra sameiginlegi áhugi og þau systk- in gátu svo rætt í óratíma í síma, að mati okkar barnanna, um dáið fólk, híbýli og gamla tíma. Sigga sýndi mínum bókalestri líka óspart áhuga og innti oft eftir því hvaða bækur ég væri að lesa og kannaðist yfirleitt við höfunda bókanna og efni þeirra. Sigga sótti ung nám í Hús- mæðraskóla í Danmörku. Það var skemmtilegt þegar hún not- aði dönsk orð og orðatiltæki við eldamennskuna og átti jafnvel til að taka lagið þegar vel lá á henni með alls kyns „tungubrjótum“. Sigga hafði einstakt lag á að vera sálusorgari annarra og veita ráð sem bestu sálfræðingar í dag myndu vafalítið vera stoltir af. Mig grunaði stundum að þetta væri ekki síst vegna þess að hún hafði sjálf þurft að leysa úr eigin málum sem ollu hugarangri en hún bar þær byrðar í hljóði og aldrei var á henni að sjá að að- stæður eða veikindi væru henni ofraun. „Sigga systir“, kær frænka mín, fylgdist vel með sínu fólki, heima og erlendis. Hún er líklega eina frænkan ásamt Óla bróður pabba sem sætti lagi að sækja okkur Árna heim á öllum okkar búsetustöðum. Við jarðarför Godda fyrir nokkrum mánuðum lá henni mikið á hjarta. Hún sagði orðrétt eins og henni einni var lagið með áherslum sem sögðu allt sem ekki er unnt að færa í orð: „Bryndís mín, veistu – ég vil þú vitir að ég fylgist alltaf með þér, elskan mín. Ég er stolt af þér og veit að þú hefur snert marga og hjálpað mörgum í þínu starfi. Það er mikil gæfa og ekki öllum gefið.“ Ég kveð frænku mína með virðingu og þökk. Hún snerti marga á sinni lífsleið. Ég er sann- færð um að hún fylgist áfram með öllu sínu fólki. Megi falleg minning elskulegrar frænku minnar lifa um ókomna tíð. Bryndís Guðmundsdóttir. ✝ Guðrún MaríaBjarnadóttir fæddist á Þingeyri 31. desember 1934. Hún andaðist á Hjúkrunarheim- ilinu Skógarbæ 29. desember 2015. Foreldar Guð- rúnar voru Vigdís Lydía Sigurgeirs- dóttir húsmóðir, f. 3.12. 1896, d. 11.10. 1975, og Bjarni Matthías Sig- urðsson, tré- og járnsmiður, f. 29.11. 1894, týndist á Snæfells- nesi 25.8. 1974. Systkini Guðrúnar: 1) Hrefna Sigríður, f. 21.10. 1924, d. 16.2. 1989, seinni maki Hrefnu var Ólafur G. Kristjánsson, f. 27.7. 1927, d. 1993. 2) Gunnar, f. 28.9. 1928, d. 19.6. 1970, kvæntur Herdísi Guðrúnu Ólafsdóttur, f. 2.7.1926, d. 21.7. 2011. 3) Sig- urgeir, f. 17.2. 1931, maki Sig- urdís Egilsdóttir, f. 25.10. 1931. Guðrún giftist 12.11. 1955 Herði Guðmundssyni vélfræð- ingi, f. 9.11. 1932. Þau eign- uðust þrjú börn: 1) Vigdís, jarðefnafræðingur, 8.5. 1967. Þeirra dætur eru Guðrún María, f. 9.4. 1994, og Eydís Freyja, f. 6.4. 1996. Guðrún ólst upp á Þingeyri til átta ára aldurs er hún flutti til Ólafsvíkur með foreldrum sínum. Þar bjó hún til 13 ára aldurs er hún fór til Reykjavík- ur til náms í Kvennaskólanum. Guðrún vann m.a. hjá Heild- verslun Ásgeirs Sigurðssonar og á Brákaborg er hún og Hörður fluttu til Ólafasvíkur ár- ið 1965. Þau hjónin tóku ásamt systkinum Guðrúnar við rekstri vélsmiðjunnar Sindra hf. í Ólafsvík. Guðrún og Hörður fluttu 1972 til Reykjavíkur. Guðrún hóf þá störf hjá Menntamálaráðuneytinu og vann þar um stuttan tíma þar til hún færði sig yfir til Ingólfs- apóteks sem bókari. Síðar hóf Guðrún störf hjá Vélabókhaldi Jóns Snæbjörnssonar en lauk starfsferli sínum sem aðalbók- ari hjá B.M. Vallá. Guðrún var í kirkjukór Ólafs- víkur, í kvenfélagi Ólafsvíkur og formaður þess um tíma. Hún spilaði bridge og spilaði blak með heldri hjónum um tíma. Guðrún var greind með Alz- heimer-sjúkdóminn 2006 og bjó í Skógarbæ frá ársbyrjun 2010. Útför Guðrúnar Maríu fer fram í Grafarvogskirkju í dag, 7. janúar 2016, og hefst athöfn- in klukkan 11. f. 6.7. 1955, giftist Birni A. Harðar- syni, f. 21.1.1954, þau skildu. Seinni maki Vigdísar er Gestur Gíslason jarðefnafræðingur, f. 26.4. 1946. Dætur Vigdísar eru a) Elísabet Guðrún, f. 2.12.1983, í sambúð með Bjarna Jóns- syni rafmagnsverk- fræðingi, f. 1984, og þeirra drengur er Björn Elí, f. 18.2. 2014. b) Sigrún Emma, f. 28.8. 1985. c) Steinunn, f. 10.3. 1991, í sambúð með Vilhjálmi Th. Hönnusyni, f. 1990. 2) Helga, endurskoðandi, f. 10.10. 1959, eiginmaður hennar er Lárus Þór Svanlaugsson við- skiptafræðingur, f. 5.10. 1957. Börn þeirra eru: a) Haukur, f. 1.7. 1987, í sambúð með Katrínu Elfu Arnardóttur, f. 1991, b) Hörður Þór, f. 16.3. 1989, og c) Linda, f. 12.7. 1996. 3) Guðmundur Bjarni, fram- kvæmdastjóri, f. 7.7. 1965. Eig- inkona hans er Rut Hreins- dóttur viðskiptafræðingur, f. Nú hefur uppáhaldsmamma mín kvatt þennan heim eftir erf- iða baráttu við Alzheimer-sjúk- dóminn. Hún er nú komin á vit ævintýr- anna og hefur fengið svör við öll- um þeim stóru spurningum sem hún fékk ekki svar við í lifanda lífi, eins og hvar faðir hennar er niðurkominn. Mamma mín var góður leiðtogi og leiðbeinandi og hafði gríðar- legan metnað fyrir því að börn hennar gengju menntaveginn og öðluðust sjálfstætt líf. Þessi ei- lífðar elja skilaði sér í því að ég og uppáhaldseiginkonan mín lukum námi. Mamma var vinamörg og kær- leiksrík og alltaf mikið líf og fjör í kringum hana. Hún ól mig upp af mikilli ástríðu og hvern einasta morgun sem ég fór á fætur var hún tilbúin með heitt kakó fyrir mig og Kela kisu. Hún var langt á undan sinni samtíð hvað varðar kvenréttindi og var hún þeirrar skoðunar að allir Íslendingar þyrftu að eiga sjálfstætt líf og þak yfir höfuðið. Þau styrktu okkur systkinin með kaup á fyrstu eign okkar og lögðu grunninn að fjárhagslegu sjálf- stæði barna sinna. Hún var mikill vinur og var verndari æskufélaga minna sem kallast UD eða uppáhaldsdreng- irnir enda vorum við allir hennar uppáhaldsdrengir. Uppátæki okkar drengjanna voru mörg skrautleg og verða ekki tíunduð hér en alltaf kom hún okkur til bjargar. Við áttum margar yndislegar stundir í gegnum þetta stutta ferðalag sem lífið er, spiluðum mikið bridge með pabba og mömmu, áttum margar góðar stundir saman í Danmörku með- an við vorum búsett þar. Þú varst gjafmild með ein- dæmum og lýsandi fyrir það var þegar þið buðuð okkur systkin- um, mökum og barnabörnum í ferð til Kanaríeyja um áramótin 2004-05 þar sem tilefnið var 70 ára afmælið þitt. Nú kveður þú þennan heim og mátt vera stolt af lífshlaupi þínu hér á jörðu. Ég kveð þig með þessu erindi sem þú fórst svo oft með þrátt fyrir veikindi þín en höfundur þess er pabbi þinn, Bjarni Matt- hías Sigurðsson: Svona fer það allt og eitt, án þess nokkurn vari. Lífið er svona lögum beitt, líkt og týra á skari. Guðmundur Bjarni Harðarson. Það er afar erfitt að horfa eftir sínum nánasta smám saman hverfa af völdum Alzheimer- sjúkdómsins. Samskiptin færð- ust úr því að mamma mín elsku- leg gat spurst fyrir um okkur börnin, barnabörnin og nánustu vini yfir í að geta eingöngu hlust- að og reynt að meðtaka það sem sagt var. Undir það síðasta var það þó söngur sem sameinaði okkur því þar þurfti hún ekki að raða orð- unum saman sjálf. Lögin kunni hún og undir þau tók hún veikri röddu. En kímnigáfan var alltaf til staðar. Hún sagði bæði í gríni og alvöru að hún væri bæði búin að ræða við Hann þarna uppi og þarna niðri um að taka við sér en þeir hlustuðu ekki á sig. Einnig sagði hún ávallt er hún stóð upp við illan leik þar sem hún studdi sig við göngugrindina; „stóð ég léttilega á fætur“ og brosti. Við systkinin töluðum stundum um það hvað við vorum þó heppin með það hvernig sjúkdómurinn lagðist á mömmu en hún hélt alla tíð sínum persónuleika, sem ein- kenndist af jákvæðni, gleði og réttsýni. Hún þekkti okkar alla tíð, fyrir það vorum við þakklát. Á þeim tíma sem mamma dvaldi á hjúkrunarheimili gladd- ist hún þegar við heimsóttum hana. Hún benti okkur jafnan á að við þyrftum ekki að koma svona oft eða stoppa svona lengi. Og nú væri kominn tími til að drífa okkur heim því við ættum fjölskyldu sem við þyrftum að hugsa um. Hvað er hægt annað en að dáðst að svona viðhorfi? Allt var gert til að okkur liði sem best þegar við fórum frá henni. Mamma var mikil kjarnakona. Hún vann ávallt úti. Lengst af vann hún sem bókari eða aðal- bókari. Á þeirri vegferð kynnist hún mörgu góðu samferðafólki sem hélt sambandi við hana alla tíð. Þar á meðal var hún Dröfn okkar sem við nefndum ávallt hálfsystur okkar, en þær voru mjög nánar. Fjölskylda mömmu var og er mikið söngfólk og meðan við bjuggum í Ólafsvík söng hún í kirkjukór Ólafsvíkur eins og öll systkini hennar. Mamma spilaði á gítar og var mikið sungið á heimilinu. Dró mamma oftar en ekki fram gítarinn við ýmis tæki- færi. Mér er það minnisstætt sem einn af vinum mínum sagði eftir að hafa verið með þeim hjónum, óvænt, í veislu á Spáni fyrir mörgum árum er hann sagði að fjörið hefði ekki byrjað fyrr en mamma tók fram gítarinn. „Þá hófst fjörið, hún er ótrúleg,“ sagði hann. Það kom ekki á óvart þegar mamma var formaður kven- félagsins í Ólafsvík að hún stóð meðal annars fyrir því að sett var á laggirnar barnaheimili sem gerði ungum konum auðveldara að komast út á vinnumarkaðinn. Hún vildi að konur hefðu val. Mamma var há og glæsileg kona, gædd miklum mannkost- um. Líkamleg heilsa hennar var ekki góð. Hún var mjög ung þeg- ar hún fann fyrst fyrir slitgigt sem orsakaði það að hún fór í nokkrar mjaðmaaðgerðir auk hnéaðgerðar. Aldrei nokkurn tímann heyrðum við hana kvarta. Nei, það þurfti ekki að hlaupa niður eða upp stigann fyrir hana – hún hafði gott að því að hreyfa sig að eigin sögn! Það er svo margt sem ég á mömmu að þakka. Hún var stoð mín og stytta. Hún var einstök á allan hátt. Ég elskaði hana af öllu hjarta og sakna hennar sárt. Helga Harðardóttir. Frá er fallin ein stórbrotnasta kona sem ég hef kynnst og ég var svo lánsöm að eiga sem tengda- móður. Það er svo ótalmargt sem bar á okkar daga frá því ég kynntist þér fyrst, þá aðeins 18 ára gömul. Mér er sú stund alltaf sérstaklega minnisstæð þegar ég stóð í anddyrinu á heimili þínu í Staðarbakkanum og þorði varla að koma inn enda feimin að eðl- isfari, en þitt hlýja viðmót og út- breiddur faðmur fylltu mig kjarki til þess að stíga inn og eiga við þig skemmtilegt samtal. Í framhald- inu urðu samverustundirnar fleiri og fleiri og á tímabili bjó ég nánast hjá ykkur í Staðarbakk- anum. Þú kenndir mér svo margt sem ég hef búið að alla tíð síðan, allt frá því að kenna mér til al- mennra húsverka og til kvenrétt- indamála, þar sem þér var svo hugleikið að konur ættu standa jafnfætis karlmönnum og fá sama rétt óháð kyni. Þú varst svo langt á undan þinni samtíð í kvenrétt- indabaráttunni enda með ein- dæmum dugleg og klár kona. Á þeim 30 árum sem við áttum saman urðum við miklar vinkon- ur og áttum reglulega trúnaðar- spjall saman en það var alltaf svo gott að leita til þín. Ég naut mik- ils stuðnings frá þér en þú hvattir mig ekki síður en uppáhaldsson- inn Guðmund Bjarna í að mennta mig og er ég þér ævilangt þakk- lát fyrir það. Við áttum það sameiginlegt að finnast gaman að spila og fljót- lega eftir að ég kom í fjölskyld- una var mér kennt að spila bridge. Reyndum við alltaf að finna tíma til þess að spila nokkr- ar „rúbertur“, hvort heldur sem það var í sumarfríum um helgar eða eftir matinn í miðri viku, en þetta voru svo skemmtilegar samverustundir sem við áttum saman. Ég sakna ennþá þessara gæðastunda sem við áttum sam- an. Ég er stolt af því að eiga dótt- ur sem ber nafn þitt, Guðrún María, en hún var skírð við hátíð- lega athöfn á Þingvöllum 17. júní árið 1994 þar sem voru saman- komnir allir helstu þjóðhöfðingj- ar frá Norðurlöndunum og víðar, að fagna 50 ára lýðveldisafmæli Íslands. Þú gerðir þessa athöfn svo sérstaka en þú vissir ekki að þú værir að fá nöfnu fyrr en nokkrum mínútum áður en at- höfnin átti sér stað í Almannagjá á Þingvöllum. Þú hafðir þá þegar fengið leyfi til þess að gróður- setja tré í vinaskógi Vigdísar í til- efni skírnarinnar á Þingvöllum. Það er minnisvarði sem við mun- um eiga um aldur og ævi um þig enda ekki á allra færi að fá þessu framgengt. Ég ætla að láta lokaorðin mín til þín vera úr smiðju Bubba Morthens „fallega þú í hjarta mér“, en þú varst falleg að innan sem utan og með hjarta úr gulli. Þín tengdadóttir Rut. Elsku amma okkar. Nú ert þú farin frá okkur og erum við þakklátar fyrir það að þú sért loks komin á betri stað því þú hefur alltaf átt það besta skilið. Við minnumst þín á Stað- arbakka 10 í rósóttri skyrtu, saumandi eða prjónandi með Villa Vill á fóninum og ávallt svo glöð að sjá okkur. Við hlökkuðum alltaf til að koma til ykkar afa þar sem okkur leið svo ótrúlega vel hjá ykkur. Á Staðarbakkanum vorum við alltaf umkringdar hlýju, kærleik og gleði. Það var alltaf hægt að stóla á að kræsingar og sælgæti væru á boðstólum þegar við vorum í ná- vist þinni. Þú varst til dæmis svo hugulsöm að gera alltaf tvöfaldan skammt af kremi þegar þú bak- aðir svo að við gætum sleikt skál- ina að vild, þó að það hafi reyndar stundum þýtt að við hefðum ekki mikið pláss fyrir kökuna sjálfa. Það var mikið stuð að fá að gista hjá ykkur afa á yngri árum og minnumst við systur sérstak- lega þess hversu notaleg kvöldin voru. Eftir að hafa horft á skemmtilega teiknimynd með nammi við hönd last þú ætíð fyrir okkur áhugaverða bók. Kvöldið endaði svo á því að þú klóraðir okkur á bakinu, söngst „Erla góða Erla“ og fórst loks með bænirnar fyrir okkur. Það var varla hægt að óska sér betri end- is á deginum. Okkur langar að verða eins og þú; góð, full af kærleik, hlýleg, þolinmóð og alltaf til staðar. Þú varst hin fullkomna amma. Hvíldu í friði elsku amma, Þínar, Elísabet, Sigrún og Steinunn. Elsku amma okkar. Mikið ósköp leið okkur alltaf vel á Stað- arbakkanum í hlýjunni hjá þér og afa. Þið gáfuð okkur svo mikið og voruð alltaf tilbúin að hjálpa okk- ur. Þú rifjaðir oft upp skemmti- sögur af okkur systkinunum sem enn gleðja okkur. Haukur mun standa við loforð sitt og vera manna fyrstur á staðinn ef bein finnast á Snæfellsnesinu eins og þú baðst hann um. Núna ertu komin á betri stað og við vonum innilega að þú sért búin að hitta pabba þinn sem við töluðum svo oft um. Meðfylgjandi eru tvö erindi úr fallegu ljóði sem heitir Fallega Lóan mín. Svo fallegur engill nú bæst hefur við herskara drottins við himnanna hlið. Með brosið sitt blíða af bjartsýni full blikandi ljósberi, fegursta gull. Ég reyni að gleðjast því laus ertu við sjúkdómsins böl, hefur fundið þinn frið. Með kertinu þínu sem kveikt hefi á ég bið þess að sálarró munir þú fá. (Bergljót Hreinsdóttir) Elskum þig amma okkar. Haukur, Hörður Þór og Linda. Guðrún María Bjarnadóttir á Hótel Borg Hlý og persónuleg þjónusta Hótel Borg | Pósthússtræti 11| Sími 578-2020 Kveðja frá Ríkis- endurskoðun Ásta Valdemars- dóttir lést hinn 21. desember sl. Hún var starfsmaður Ríkisend- urskoðunar í áratugi og stýrði vélritunar- og skjalamálum stofnunarinnar af mikilli alúð og röggsemi. Hún lét af störfum á árinu 1988 til að sinna barnabörnunum eins og hún sagði, en engu að síð- ur var hægt að leita til hennar þegar á þurfti að halda í fjarveru ritara og skjalavarðar. Alla tíð Ásta Valdemarsdóttir ✝ Ásta Valde-marsdóttir fæddist 30. sept- ember 1931. Hún lést 21. desember 2015. Útför Ástu fór fram 5. janúar 2016. hélt hún tryggð við stofnunina, heim- sótti okkur reglu- lega og sýndi fyrr- verandi samstarfsmönnum ræktarsemi. Við eldri starfs- menn stofnunarinn- ar minnumst þess- arar glaðværu og huggulegu konu sem alltaf var tilbú- in til að aðstoða okkur við þau verkefni sem leysa þurfti við rit- vinnslu og skjalavörslu. Þjón- ustulund hennar og dugnaður er okkur ofarlega í huga og við minnumst hennar með hlýhug og þökk og vottum eiginmanni og fjölskyldu hennar okkar dýpstu samúð. F.h. Ríkisendurskoðunar, Sveinn Arason, ríkisendurskoðandi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.