Morgunblaðið - 07.01.2016, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 07.01.2016, Blaðsíða 29
MINNINGAR 29 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 2016 ✝ Magnús Jón-atansson fædd- ist á Akureyri 4. mars 1943. Hann lést l. janúar 2016. Foreldrar hans voru Bergþóra Lár- usdóttir frá Heiði á Langanesi og Jón- atan Magnússon vélstjóri, f. á Ólafs- firði, búsett á Ak- ureyri. Magnús var næstelstur fimm systkina, eft- irlifandi eru Jóna Þrúður og Sævar, en látin eru Alda og Björgvin Smári. Sambýliskona Magnúsar var Sigríður Jósteinsdóttir, en þau slitu samvistir. Börn þeirra eru Alda Sif og Jónatan Þór. Fyrir átti Magnús börnin Jónínu Arnar Unnarsbörn. Börn Hrannar eru Andri Már, Örvar, Viktor og Sara. Börn Hjartar eru Unnur Sif, Atli Hrafn og Vigdís Arna. Börn Arnars eru Daníel Örn, Sigríður Ása og Ísa- bella Lív. Magnús lærði skipasmíðar hjá Skipasmíðastöð KEA. Lengi starfaði hann við smíðar en síð- ar sem húsvörður við Síðuskóla á Akureyri. Magnús var afreks- maður í íþróttum og var alla tíð félagi í Íþróttafélaginu Þór Ak- ureyri. Hann lék knattspyrnu með Þór og ÍBA, körfubolta með Þór, auk þess spilaði hann fimm A-landsliðsleiki í knattspyrnu. Eftir að íþróttaferlinum lauk starfaði Magnús sem knatt- spyrnudómari og -þjálfari til fjölda ára. Hann hlaut fjölmarg- ar viðurkenningar, þar á meðal gull- og silfurmerki Þórs, heið- ursviðurkenningu ÍBA og silf- urmerki KSÍ. Útför Magnúsar fer fram frá Akureyrarkirkju í dag, 7. jan- úar 2016, kl. 13.30. Kristínu og Magnús Þór. Sambýlis- maður Öldu er Vil- helm Adolfsson og eiga þau börnin Sunnevu Maríu og Axel Óla, en dóttir Vilhelms er Amelia Rún. Eiginkona Jónatans er Sig- urborg Bjarnadótt- ir og eiga þau börn- in Magnús Dag, Júlíu Karen og Rakel Söru. Eig- inmaður Jónínu er Jóhann Hólm Ríkarðsson og eiga þau börnin Bergþóru, Sigurð Loft og Helgu Dóru. Magnús Þór er kvæntur Katrínu Snædal Húnsdóttur og eiga þau börnin Baldvin Þór og Heiðrúnu. Fyrir átti Sigríður börnin Hrönn, Hjört Þór og Elsku pabbi. Þrátt fyrir að ég hafi reynt að undirbúa mig fyrir það að sitja hér og skrifa um þig minningarorð, þá er það samt sem áður afar erfitt. Fyrir næstum því sex árum flutt- um við Bogga til Noregs. Ég vissi að þú varst ekkert hrifinn af þeirri ákvörðun okkar, vildir eflaust hafa okkur nær þér og sjá meira af okkur og börnunum okkar sem þú elskaðir takmarkalaust. En þú sagðir það þó ekki, vitandi að þetta var það sem við vildum. Það að búa erlendis hefur sína kosti og galla eins og allir þekkja sem það hafa prófað. En við Bogga rædd- um það okkar á milli að vonandi héldu foreldrar okkar heilsu þessi ár, vitandi að það er meira en að segja það að flytja aftur heim. En svo skömmu eftir að við fluttum út greinist þú með þennan hræðilega sjúkdóm, alzheimer. Það var hræðilega erfitt að horfa á hvernig sjúkdómurinn fór með þig, vitandi að ekkert væri hægt að gera annað en vera til staðar, knúsa þig og reyna að gera dagana bærilega. Ég er ótrúlega þakklátur öllum þeim sem komu að umönnun þinni, ekki síst starfs- fólkinu á Hlíð og Lögmannshlíð. Alda systir, með Villa mág minn sér við hlið, hefur verið kletturinn þinn og orð fá ekki lýst hve vel þau hafa staðið sig í þessari vonlausu baráttu. Íþróttir hafa átt hug minn allan frá því ég var smábarn, það hef ég að sjálfsögðu frá þér. Eina góða sögu heyrði ég um pabba. Eitt sinn var breskur þjálf- ari að þjálfa liðið hans og pabbi sem fyrirliði þurfti að þýða ræður þjálfarans. Það var svo fyrir einn mikilvægan leik að þjálfarinn blaðraði þessi ósköp og snéri sér svo að pabba og gaf honum orðið. Pabbi varð smá hugsi og sagði svo: „Strákar berjast.“ Meira var ekki sagt og þetta lýsir pabba mjög vel. Hann var ekki maður orða heldur lét verkin tala. Hann var baráttuhundur, fór sínar eigin leiðir og kvartaði ekki. Aldrei hef ég heyrt pabba kvarta. Hann tal- aði aldrei mikið um eigin tilfinn- ingar og lét ekki tilfinningar sínar mikið í ljós. Hann veitti mér mik- inn stuðning við íþróttaiðkun mína og sleppti varla úr leik hjá mér sem barni. Ég minnist þess þegar ég fékk að fara með pabba í skemmuna gömlu. Þá var pabbi að fara í fót- bolta, löngu hættur að spila alvöru keppnisleiki en ég fylgdist með honum aðdáunaraugum. Ég taldi mörkin hans og gaf honum svo einkunn í bílnum eftir skemmu- tímann. Hápunkturinn var svo þegar við stoppuðum í sjoppu á eftir og fengum okkur Coke og Prins, já eða pylsu með öllu, en það gerðist ósjaldan, sérstaklega ef mamma hafði eldað eitthvað sem við feðgar vorum ekki hrifnir af. Ég mun alla tíð minnast þín, pabbi, fyrir allt sem þú gerðir fyr- ir mig, þú varst minn klettur, sem nú er farinn, búinn að fá hvíldina þína langþráðu. Búinn að spila þinn síðasta leik og maður lifandi hvað þú barðist, elsku pabbi minn. Ég mun halda áfram að segja börnunum mínum sögur af þér, hetjusögur, þó allar sannar. Magnús Dagur, nafni þinn, biður mig stundum að segja sér sögur frá því þegar þú varst í landslið- inu. Hann segist ætla að verða eins og þú. Elsku pabbi, hvíl í friði. Þinn sonur, Jónatan. Meira: mbl.is/minningar Við fyrstu morgunskímu nýs árs lauk móðurbróðir okkar, Magnús Jónatansson, sinni veg- ferð. Einhvern veginn var það við hæfi að sterkur maður veldi svo sérstaka stund til að kveðja. Maggi var best þekktur sem af- reksmaður í íþróttum en fyrir okkur var hann fyrst og fremst einstakt ljúfmenni og traustur frændi og vinur. Þrátt fyrir að þessi orð séu skrifuð með sorg í hjarta er reyndin sú að þau kalla einnig fram gleði. Maggi var sér- staklega barngóður og hafði ein- stakt lag á að leika við okkur frændsystkinin svo ískraði í okkur af æsingi og gleði. Það er auðvelt að rifja upp hláturinn hans Magga og sjá hann fyrir sér með glottið sitt. Út á við var Maggi ekki mikill tilfinningamaður en við skynjuð- um alltaf hans miklu ást og alúð. Sína væntumþykju sýndi hann frekar í verki sem skilaði sér vel inn í hjörtu þeirra sem við tóku. Hið rólega og þægilega fas Magga og nægjusemin sem einkenndi hann gerði það að verkum að okk- ur leið alltaf vel í kringum hann. Það var ákveðið öryggi sem færð- ist yfir mann að vera nálægt hon- um. Með sínum hætti hafði hann mikil áhrif á aðra og umhverfið í kringum sig og hafði lag á því að finna þá sem þurftu á hvatningu að halda og styðja við þá. Maggi var sterk persóna, bæði einfaldur og flókinn. Hans hátta- lag og stóri persónuleiki gerði það að verkum að það var eins og það giltu ekki alveg sömu reglur um hann og aðra. Hann fór sínar eigin leiðir og enginn sagði honum fyrir verkum. Hann mælti aldrei styggðaryrði um aðra og kvartaði aldrei. Sannkölluð fyrirmynd fyrir okkur öll. Samfélög væru betri ef fleiri væru eins og Magnús Jón- atansson úr Norðurgötu 26. Við systkin þökkum Magga fyr- ir samfylgdina í gegnum árin, við erum ríkari eftir. Ari Jón, Alfa og Bergþóra Arabörn. Maggi frændi var alla tíð ein af hetjunum í mínu lífi. Hetjurnar mínar spiluðu á Akureyrarvellin- um; fyrst í búningi ÍBA og síðar í heittelskuðum Þórsbúningnum. Fyrir utan pabba var Maggi að- alhetjan. Hann var fyrirliði og leiðtogi liðanna á þessum tíma – ótrúlega svalur og svo var hann líka býsna góður í fótbolta. Hann lék landsleiki fyrir Ísland og var fyrirliði ÍBA í bikarsigrinum árið 1969. Um frammistöðu hans í þeim leik sagði einn fjölmiðillinn að hann hefði átt skilið tvo verð- launapeninga. Það var ekkert slor fyrir ungan gutta að fá að njóta fé- lagsskapar slíkrar hetju utan vall- ar, svo sem í eldhúsinu í Norður- götunni og á vinsælum pylsurúntum. Maggi var alla tíð hetja í mínum huga og mun alltaf verða. Ein af mínum uppáhalds- manneskjum í lífinu. Leiðarljós hans mun lifa áfram og honum til heiðurs fæ ég mér í það minnsta eina pylsu með tómat, sinnepi og hráum. Þorgils Sævarsson. Knattspyrnuhreyfingin hefur misst góðan félaga, Magnús Jón- atansson. Magnús var einn litrík- asti knattspyrnumaður Akureyr- ar og Íslands – mikill baráttumaður. Hann var 16 ára þegar hann lék fyrst með liði Íþróttabandalags Akureyrar, ÍBA, 1959 og lék hann með ÍBA 14 keppnistímabil 1959-1973. Magn- ús var fyrirliði ÍBA-liðsins sem varð bikarmeistari 1969 með því að leggja ÍA að velli í tveimur úr- slitaleikjum á Melavellinum, 1:1 og 3:2. Magnús lék fimm A-lands- leiki á árunum 1965-1970 – klædd- ist landsliðspeysunni fyrst í leik gegn Dönum á Laugardalsvellin- um, 22 ára. Hann gerðist þjálfari 1974 – þjálfaði og lék með Magna á Grenivík í nokkur ár, þjálfaði hjá Reyni Árskógsströnd og hjá KS á Siglufirði, auk þess að þjálfa aust- ur á fjörðum. Þegar Magnús hætti þjálfun gerðist hann dómari og dæmdi í efstu deild Íslandsmóts- ins á árunum 1985-1989. Þá kom sér vel reynsla Magnúsar af leik- vellinum. Ekki lét Magnús þar við sitja og eftir dómaraferilinn tók Magnús að sér störf eftirlits- manns KSÍ. Spor Magnúsar Jónatanssonar liggja víða í íslenskri knattspyrnu. Hann var sæmdur gullmerki KSÍ 2007 en það var aðeins lítill þakk- lætisvottur fyrir ævistarf hans innan raða knattspyrnuhreyfing- arinnar. Magnús var karakter sem setti sterkan svip á knatt- spyrnuna á Íslandi og var einn af þeim sem gerðu leikinn skemmti- legri og vinsælli meðal almenn- ings. Félögum í Íþróttafélaginu Þór, vinum og ættingjum sendum við samúðarkveðju. Við minnumst ferils Magnúsar með hlýhug og þakklæti. Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ. Magnús Jónatansson HINSTA KVEÐJA Þú varst hraustur, þjáning alla þoldir þú og barst þig vel, vildir aldrei, aldrei falla: Uppréttan þig nísti hel. Þú varst sterkur, hreinn í hjarta, hirtir ei um skrum og prjál; aldrei náði illskan svarta ata þína sterku sál. (Mattías Jocumsson) Hjartans þakkir fyrir allt, elsku Maggi. Hvíl í friði. Arnar. Nú legg ég augun aftur, Ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson) Guð geymi þig, elsku Maggi minn. Þín tengda- dóttir, Sigurborg Bjarnadóttir. Elsku afi Maggi. Við höfum átt margar skemmtilegar stundir sam- an. Þú ert besti afi í heimi. Ég man þegar ég heimsótti þig á elliheimilið og við fór- um í boltaleik. Ég elska þig meira en allt og ég mun aldrei gleyma þér. Kveðja, Magnús Dagur Jónatansson. Á lífsleiðinni kynnist maður fólki sem hefur mismun- andi mikil áhrif á mann, í mínu tilfelli er Guðlaug ein af þeim sem ég mun aldrei gleyma. Ég og maðurinn minn kynnt- umst henni í gegnum heilsugæsl- una í Árbæ, en hún fylgdi mér eftir í mæðraskoðun, heimaþjón- ustu og ungbarnaeftirliti með litla strákinn minn. Fæðingin gekk erfiðlega og strákurinn minn endaði á vöku- deildinni fyrstu vikuna sína og ég átti að missa réttinn á heima- þjónustu. Guðlaug hins vegar hringdi í mig og tók ekki í mál annað en að koma til okkar og sinna heimaþjónustunni í fram- haldinu. Hún kom tvisvar sinnum til okkar upp á vökudeild og í fyrra skiptið var það meira að segja á sunnudegi. Í hin skiptin kom hún heim og ég hlakkaði til að fá hana til okkar og spjalla við hana, en hún var alltaf róleg og Guðlaug Hrönn Björgvinsdóttir ✝ Guðlaug HrönnBjörgvins- dóttir fæddist 29. október 1963. Hún lést 26. desember 2015. Útför Guðlaugar fór fram 5. janúar 2016. gaf sér góðan tíma fyrir okkur litlu fjölskylduna. Ég sagði einmitt við hana þegar hún kom í síðasta skipt- ið að við myndum sakna þess að fá hana ekki reglulega til okkar. Við hittum hana í síðasta skipti í ung- barnaeftirliti í lok september, bókuðum tíma hjá henni í desember. Það er eftirminnilegt að í öll skiptin sem við hittum hana þá var hún einstaklega hlý, áhuga- söm um hvernig ég hefði það og dásamaði litla drenginn minn. Guðlaug hjálpaði mér mikið á meðgöngunni þar sem ég kveið fæðingunni og hún var boðin og búin að gera allt fyrir mig þann- ig að mér liði sem best þegar kæmi að settum degi. Það er ómetanlegt að hafa fengið svona yndislega ljósmóður. Þegar ég vaknaði í morgun sá ég minningagreinar um hana í Morgunblaðinu og að hún hefði fallið frá um jólin. Dagurinn var fallegur til að kveðja, heiðskírt, sól og kalt. Elsku Guðlaug, takk fyrir stutt en góð kynni. Kveðja Ellen, mamma Ellert Rúnars. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, NANNA LÁRA ÓLAFSDÓTTIR, Garðsbrún 4 (Hátúni), Hornafirði, lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Skjólgarð þann 30. desember síðastliðinn. Hún verður jarðsungin frá Hafnarkirkju laugardaginn 9. janúar klukkan 14. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á styrktarsjóð Skjólgarðs. . Sigurborg Ágústsdóttir David Parish Ásgeir Núpan Ágústsson Valgerður Egilsdóttir Bjartmar Ágústsson Hansína Valþórsdóttir Nanna Þórey Bjartmarsdóttir Vilhjálmur Þengill Jónsson Reynir Ásgeirsson Þórður Ásgeirsson James Ágúst Parish Bjartmar Darri Vilhjálmsson. Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, DÓRA GÍGJA ÞÓRHALLSDÓTTIR, áður til heimilis að Hátúni 6a, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Mörk laugardaginn 2. janúar. Hún verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 15. janúar klukkan 15. . Guðrún Andrésdóttir Þórhallur Andrésson Sigríður Thorsteinsson Kristján Ottó Andrésson Dóra Gígja Þórhallsdóttir Atli Sævar Guðmundsson Ragnar Þórhallsson Birna Ásbjörnsdóttir Áróra Sirrí Atladóttir Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÍÐUR MATTHÍASDÓTTIR frá Ísafirði, Sóltúni 28, Reykjavík, lést á Landakoti mánudaginn 4. janúar 2016. Útförin fer fram frá Laugarneskirkju 12. janúar klukkan 13. . Erna Elísabet Jóhannsdóttir, Jón R. Kristjónsson, Bergþóra Margrét Jóhannsdóttir, Björn Olsen, Matthías Árni Jóhannsson, Guðrún Þórsdóttir. ömmubörn og langömmubörn. Kær fósturfaðir og bróðir, SIGURSVEINN JÓHANNESSON frá Gröf í Skaftártungu, lést á hjúkrunarheimilinu Klausturhólum þann 30. desember síðastliðinn. Útför hans fer fram frá Grafarkirkju laugardaginn 9. janúar klukkan 14. Blóm og kransar afþökkuð en þeim sem vilja minnast hans er bent á velunnarasjóð Klausturhóla. . Guðlaugur Smári Ármannsson, Páll Jóhannesson og aðrir aðstandendur. MAGNÚS KRISTJÁNSSON, Hrafnakletti 1, Borgarnesi, lést í Brákarhlíð í Borgarnesi sunnudaginn 3. janúar. . Jónína Kristín Eyvindsdóttir, Eyvindur S. Magnússon, Ólafía G. Sigurvinsdóttir, Kristján Á. Magnússon, Branddís M. Hauksdóttir, Magnús H. Magnússon, barnabörn og barnabarnabarn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.