Morgunblaðið - 07.01.2016, Page 29
MINNINGAR 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 2016
✝ Magnús Jón-atansson fædd-
ist á Akureyri 4.
mars 1943. Hann
lést l. janúar 2016.
Foreldrar hans
voru Bergþóra Lár-
usdóttir frá Heiði á
Langanesi og Jón-
atan Magnússon
vélstjóri, f. á Ólafs-
firði, búsett á Ak-
ureyri. Magnús var
næstelstur fimm systkina, eft-
irlifandi eru Jóna Þrúður og
Sævar, en látin eru Alda og
Björgvin Smári.
Sambýliskona Magnúsar var
Sigríður Jósteinsdóttir, en þau
slitu samvistir. Börn þeirra eru
Alda Sif og Jónatan Þór. Fyrir
átti Magnús börnin Jónínu
Arnar Unnarsbörn. Börn
Hrannar eru Andri Már, Örvar,
Viktor og Sara. Börn Hjartar
eru Unnur Sif, Atli Hrafn og
Vigdís Arna. Börn Arnars eru
Daníel Örn, Sigríður Ása og Ísa-
bella Lív.
Magnús lærði skipasmíðar
hjá Skipasmíðastöð KEA. Lengi
starfaði hann við smíðar en síð-
ar sem húsvörður við Síðuskóla
á Akureyri. Magnús var afreks-
maður í íþróttum og var alla tíð
félagi í Íþróttafélaginu Þór Ak-
ureyri. Hann lék knattspyrnu
með Þór og ÍBA, körfubolta með
Þór, auk þess spilaði hann fimm
A-landsliðsleiki í knattspyrnu.
Eftir að íþróttaferlinum lauk
starfaði Magnús sem knatt-
spyrnudómari og -þjálfari til
fjölda ára. Hann hlaut fjölmarg-
ar viðurkenningar, þar á meðal
gull- og silfurmerki Þórs, heið-
ursviðurkenningu ÍBA og silf-
urmerki KSÍ.
Útför Magnúsar fer fram frá
Akureyrarkirkju í dag, 7. jan-
úar 2016, kl. 13.30.
Kristínu og Magnús
Þór. Sambýlis-
maður Öldu er Vil-
helm Adolfsson og
eiga þau börnin
Sunnevu Maríu og
Axel Óla, en dóttir
Vilhelms er Amelia
Rún. Eiginkona
Jónatans er Sig-
urborg Bjarnadótt-
ir og eiga þau börn-
in Magnús Dag,
Júlíu Karen og Rakel Söru. Eig-
inmaður Jónínu er Jóhann Hólm
Ríkarðsson og eiga þau börnin
Bergþóru, Sigurð Loft og Helgu
Dóru. Magnús Þór er kvæntur
Katrínu Snædal Húnsdóttur og
eiga þau börnin Baldvin Þór og
Heiðrúnu. Fyrir átti Sigríður
börnin Hrönn, Hjört Þór og
Elsku pabbi.
Þrátt fyrir að ég hafi reynt að
undirbúa mig fyrir það að sitja hér
og skrifa um þig minningarorð, þá
er það samt sem áður afar erfitt.
Fyrir næstum því sex árum flutt-
um við Bogga til Noregs. Ég vissi
að þú varst ekkert hrifinn af þeirri
ákvörðun okkar, vildir eflaust
hafa okkur nær þér og sjá meira
af okkur og börnunum okkar sem
þú elskaðir takmarkalaust. En þú
sagðir það þó ekki, vitandi að
þetta var það sem við vildum. Það
að búa erlendis hefur sína kosti og
galla eins og allir þekkja sem það
hafa prófað. En við Bogga rædd-
um það okkar á milli að vonandi
héldu foreldrar okkar heilsu þessi
ár, vitandi að það er meira en að
segja það að flytja aftur heim. En
svo skömmu eftir að við fluttum út
greinist þú með þennan hræðilega
sjúkdóm, alzheimer.
Það var hræðilega erfitt að
horfa á hvernig sjúkdómurinn fór
með þig, vitandi að ekkert væri
hægt að gera annað en vera til
staðar, knúsa þig og reyna að gera
dagana bærilega. Ég er ótrúlega
þakklátur öllum þeim sem komu
að umönnun þinni, ekki síst starfs-
fólkinu á Hlíð og Lögmannshlíð.
Alda systir, með Villa mág minn
sér við hlið, hefur verið kletturinn
þinn og orð fá ekki lýst hve vel þau
hafa staðið sig í þessari vonlausu
baráttu.
Íþróttir hafa átt hug minn allan
frá því ég var smábarn, það hef ég
að sjálfsögðu frá þér.
Eina góða sögu heyrði ég um
pabba. Eitt sinn var breskur þjálf-
ari að þjálfa liðið hans og pabbi
sem fyrirliði þurfti að þýða ræður
þjálfarans. Það var svo fyrir einn
mikilvægan leik að þjálfarinn
blaðraði þessi ósköp og snéri sér
svo að pabba og gaf honum orðið.
Pabbi varð smá hugsi og sagði
svo: „Strákar berjast.“ Meira var
ekki sagt og þetta lýsir pabba
mjög vel. Hann var ekki maður
orða heldur lét verkin tala. Hann
var baráttuhundur, fór sínar eigin
leiðir og kvartaði ekki. Aldrei hef
ég heyrt pabba kvarta. Hann tal-
aði aldrei mikið um eigin tilfinn-
ingar og lét ekki tilfinningar sínar
mikið í ljós. Hann veitti mér mik-
inn stuðning við íþróttaiðkun mína
og sleppti varla úr leik hjá mér
sem barni.
Ég minnist þess þegar ég fékk
að fara með pabba í skemmuna
gömlu. Þá var pabbi að fara í fót-
bolta, löngu hættur að spila alvöru
keppnisleiki en ég fylgdist með
honum aðdáunaraugum. Ég taldi
mörkin hans og gaf honum svo
einkunn í bílnum eftir skemmu-
tímann. Hápunkturinn var svo
þegar við stoppuðum í sjoppu á
eftir og fengum okkur Coke og
Prins, já eða pylsu með öllu, en
það gerðist ósjaldan, sérstaklega
ef mamma hafði eldað eitthvað
sem við feðgar vorum ekki hrifnir
af.
Ég mun alla tíð minnast þín,
pabbi, fyrir allt sem þú gerðir fyr-
ir mig, þú varst minn klettur, sem
nú er farinn, búinn að fá hvíldina
þína langþráðu. Búinn að spila
þinn síðasta leik og maður lifandi
hvað þú barðist, elsku pabbi minn.
Ég mun halda áfram að segja
börnunum mínum sögur af þér,
hetjusögur, þó allar sannar.
Magnús Dagur, nafni þinn, biður
mig stundum að segja sér sögur
frá því þegar þú varst í landslið-
inu. Hann segist ætla að verða
eins og þú.
Elsku pabbi, hvíl í friði. Þinn
sonur,
Jónatan.
Meira: mbl.is/minningar
Við fyrstu morgunskímu nýs
árs lauk móðurbróðir okkar,
Magnús Jónatansson, sinni veg-
ferð. Einhvern veginn var það við
hæfi að sterkur maður veldi svo
sérstaka stund til að kveðja.
Maggi var best þekktur sem af-
reksmaður í íþróttum en fyrir
okkur var hann fyrst og fremst
einstakt ljúfmenni og traustur
frændi og vinur. Þrátt fyrir að
þessi orð séu skrifuð með sorg í
hjarta er reyndin sú að þau kalla
einnig fram gleði. Maggi var sér-
staklega barngóður og hafði ein-
stakt lag á að leika við okkur
frændsystkinin svo ískraði í okkur
af æsingi og gleði. Það er auðvelt
að rifja upp hláturinn hans Magga
og sjá hann fyrir sér með glottið
sitt.
Út á við var Maggi ekki mikill
tilfinningamaður en við skynjuð-
um alltaf hans miklu ást og alúð.
Sína væntumþykju sýndi hann
frekar í verki sem skilaði sér vel
inn í hjörtu þeirra sem við tóku.
Hið rólega og þægilega fas Magga
og nægjusemin sem einkenndi
hann gerði það að verkum að okk-
ur leið alltaf vel í kringum hann.
Það var ákveðið öryggi sem færð-
ist yfir mann að vera nálægt hon-
um. Með sínum hætti hafði hann
mikil áhrif á aðra og umhverfið í
kringum sig og hafði lag á því að
finna þá sem þurftu á hvatningu
að halda og styðja við þá.
Maggi var sterk persóna, bæði
einfaldur og flókinn. Hans hátta-
lag og stóri persónuleiki gerði það
að verkum að það var eins og það
giltu ekki alveg sömu reglur um
hann og aðra. Hann fór sínar eigin
leiðir og enginn sagði honum fyrir
verkum. Hann mælti aldrei
styggðaryrði um aðra og kvartaði
aldrei. Sannkölluð fyrirmynd fyrir
okkur öll. Samfélög væru betri ef
fleiri væru eins og Magnús Jón-
atansson úr Norðurgötu 26.
Við systkin þökkum Magga fyr-
ir samfylgdina í gegnum árin, við
erum ríkari eftir.
Ari Jón, Alfa
og Bergþóra Arabörn.
Maggi frændi var alla tíð ein af
hetjunum í mínu lífi. Hetjurnar
mínar spiluðu á Akureyrarvellin-
um; fyrst í búningi ÍBA og síðar í
heittelskuðum Þórsbúningnum.
Fyrir utan pabba var Maggi að-
alhetjan. Hann var fyrirliði og
leiðtogi liðanna á þessum tíma –
ótrúlega svalur og svo var hann
líka býsna góður í fótbolta. Hann
lék landsleiki fyrir Ísland og var
fyrirliði ÍBA í bikarsigrinum árið
1969. Um frammistöðu hans í
þeim leik sagði einn fjölmiðillinn
að hann hefði átt skilið tvo verð-
launapeninga. Það var ekkert slor
fyrir ungan gutta að fá að njóta fé-
lagsskapar slíkrar hetju utan vall-
ar, svo sem í eldhúsinu í Norður-
götunni og á vinsælum
pylsurúntum. Maggi var alla tíð
hetja í mínum huga og mun alltaf
verða. Ein af mínum uppáhalds-
manneskjum í lífinu. Leiðarljós
hans mun lifa áfram og honum til
heiðurs fæ ég mér í það minnsta
eina pylsu með tómat, sinnepi og
hráum.
Þorgils Sævarsson.
Knattspyrnuhreyfingin hefur
misst góðan félaga, Magnús Jón-
atansson. Magnús var einn litrík-
asti knattspyrnumaður Akureyr-
ar og Íslands – mikill
baráttumaður. Hann var 16 ára
þegar hann lék fyrst með liði
Íþróttabandalags Akureyrar,
ÍBA, 1959 og lék hann með ÍBA 14
keppnistímabil 1959-1973. Magn-
ús var fyrirliði ÍBA-liðsins sem
varð bikarmeistari 1969 með því
að leggja ÍA að velli í tveimur úr-
slitaleikjum á Melavellinum, 1:1
og 3:2. Magnús lék fimm A-lands-
leiki á árunum 1965-1970 – klædd-
ist landsliðspeysunni fyrst í leik
gegn Dönum á Laugardalsvellin-
um, 22 ára.
Hann gerðist þjálfari 1974 –
þjálfaði og lék með Magna á
Grenivík í nokkur ár, þjálfaði hjá
Reyni Árskógsströnd og hjá KS á
Siglufirði, auk þess að þjálfa aust-
ur á fjörðum. Þegar Magnús hætti
þjálfun gerðist hann dómari og
dæmdi í efstu deild Íslandsmóts-
ins á árunum 1985-1989. Þá kom
sér vel reynsla Magnúsar af leik-
vellinum. Ekki lét Magnús þar við
sitja og eftir dómaraferilinn tók
Magnús að sér störf eftirlits-
manns KSÍ.
Spor Magnúsar Jónatanssonar
liggja víða í íslenskri knattspyrnu.
Hann var sæmdur gullmerki KSÍ
2007 en það var aðeins lítill þakk-
lætisvottur fyrir ævistarf hans
innan raða knattspyrnuhreyfing-
arinnar. Magnús var karakter
sem setti sterkan svip á knatt-
spyrnuna á Íslandi og var einn af
þeim sem gerðu leikinn skemmti-
legri og vinsælli meðal almenn-
ings. Félögum í Íþróttafélaginu
Þór, vinum og ættingjum sendum
við samúðarkveðju. Við minnumst
ferils Magnúsar með hlýhug og
þakklæti.
Geir Þorsteinsson,
formaður KSÍ.
Magnús
Jónatansson
HINSTA KVEÐJA
Þú varst hraustur, þjáning alla
þoldir þú og barst þig vel,
vildir aldrei, aldrei falla:
Uppréttan þig nísti hel.
Þú varst sterkur, hreinn í hjarta,
hirtir ei um skrum og prjál;
aldrei náði illskan svarta
ata þína sterku sál.
(Mattías Jocumsson)
Hjartans þakkir fyrir
allt, elsku Maggi.
Hvíl í friði.
Arnar.
Nú legg ég augun aftur,
Ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Sveinbjörn Egilsson)
Guð geymi þig, elsku
Maggi minn. Þín tengda-
dóttir,
Sigurborg Bjarnadóttir.
Elsku afi Maggi.
Við höfum átt margar
skemmtilegar stundir sam-
an. Þú ert besti afi í heimi.
Ég man þegar ég heimsótti
þig á elliheimilið og við fór-
um í boltaleik. Ég elska þig
meira en allt og ég mun
aldrei gleyma þér.
Kveðja,
Magnús Dagur
Jónatansson.
Á lífsleiðinni
kynnist maður fólki
sem hefur mismun-
andi mikil áhrif á mann, í mínu
tilfelli er Guðlaug ein af þeim
sem ég mun aldrei gleyma.
Ég og maðurinn minn kynnt-
umst henni í gegnum heilsugæsl-
una í Árbæ, en hún fylgdi mér
eftir í mæðraskoðun, heimaþjón-
ustu og ungbarnaeftirliti með
litla strákinn minn.
Fæðingin gekk erfiðlega og
strákurinn minn endaði á vöku-
deildinni fyrstu vikuna sína og
ég átti að missa réttinn á heima-
þjónustu. Guðlaug hins vegar
hringdi í mig og tók ekki í mál
annað en að koma til okkar og
sinna heimaþjónustunni í fram-
haldinu.
Hún kom tvisvar sinnum til
okkar upp á vökudeild og í fyrra
skiptið var það meira að segja á
sunnudegi. Í hin skiptin kom hún
heim og ég hlakkaði til að fá
hana til okkar og spjalla við
hana, en hún var alltaf róleg og
Guðlaug Hrönn
Björgvinsdóttir
✝ Guðlaug HrönnBjörgvins-
dóttir fæddist 29.
október 1963. Hún
lést 26. desember
2015.
Útför Guðlaugar
fór fram 5. janúar
2016.
gaf sér góðan tíma
fyrir okkur litlu
fjölskylduna.
Ég sagði einmitt
við hana þegar hún
kom í síðasta skipt-
ið að við myndum
sakna þess að fá
hana ekki reglulega
til okkar.
Við hittum hana í
síðasta skipti í ung-
barnaeftirliti í lok
september, bókuðum tíma hjá
henni í desember.
Það er eftirminnilegt að í öll
skiptin sem við hittum hana þá
var hún einstaklega hlý, áhuga-
söm um hvernig ég hefði það og
dásamaði litla drenginn minn.
Guðlaug hjálpaði mér mikið á
meðgöngunni þar sem ég kveið
fæðingunni og hún var boðin og
búin að gera allt fyrir mig þann-
ig að mér liði sem best þegar
kæmi að settum degi. Það er
ómetanlegt að hafa fengið svona
yndislega ljósmóður.
Þegar ég vaknaði í morgun sá
ég minningagreinar um hana í
Morgunblaðinu og að hún hefði
fallið frá um jólin.
Dagurinn var fallegur til að
kveðja, heiðskírt, sól og kalt.
Elsku Guðlaug, takk fyrir
stutt en góð kynni. Kveðja
Ellen, mamma
Ellert Rúnars.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
NANNA LÁRA ÓLAFSDÓTTIR,
Garðsbrún 4 (Hátúni),
Hornafirði,
lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu
Skjólgarð þann 30. desember síðastliðinn.
Hún verður jarðsungin frá Hafnarkirkju laugardaginn 9. janúar
klukkan 14. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á
styrktarsjóð Skjólgarðs.
.
Sigurborg Ágústsdóttir David Parish
Ásgeir Núpan Ágústsson Valgerður Egilsdóttir
Bjartmar Ágústsson Hansína Valþórsdóttir
Nanna Þórey Bjartmarsdóttir Vilhjálmur Þengill Jónsson
Reynir Ásgeirsson
Þórður Ásgeirsson
James Ágúst Parish
Bjartmar Darri Vilhjálmsson.
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
DÓRA GÍGJA ÞÓRHALLSDÓTTIR,
áður til heimilis að Hátúni 6a,
Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Mörk
laugardaginn 2. janúar.
Hún verður jarðsungin frá Fossvogskirkju
föstudaginn 15. janúar klukkan 15.
.
Guðrún Andrésdóttir
Þórhallur Andrésson Sigríður Thorsteinsson
Kristján Ottó Andrésson
Dóra Gígja Þórhallsdóttir Atli Sævar Guðmundsson
Ragnar Þórhallsson Birna Ásbjörnsdóttir
Áróra Sirrí Atladóttir
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
GUÐRÍÐUR MATTHÍASDÓTTIR
frá Ísafirði,
Sóltúni 28, Reykjavík,
lést á Landakoti mánudaginn 4. janúar
2016. Útförin fer fram frá Laugarneskirkju 12. janúar klukkan 13.
.
Erna Elísabet Jóhannsdóttir, Jón R. Kristjónsson,
Bergþóra Margrét Jóhannsdóttir, Björn Olsen,
Matthías Árni Jóhannsson, Guðrún Þórsdóttir.
ömmubörn og langömmubörn.
Kær fósturfaðir og bróðir,
SIGURSVEINN JÓHANNESSON
frá Gröf í Skaftártungu,
lést á hjúkrunarheimilinu Klausturhólum
þann 30. desember síðastliðinn. Útför hans
fer fram frá Grafarkirkju laugardaginn
9. janúar klukkan 14.
Blóm og kransar afþökkuð en þeim sem vilja minnast hans er
bent á velunnarasjóð Klausturhóla.
.
Guðlaugur Smári Ármannsson,
Páll Jóhannesson
og aðrir aðstandendur.
MAGNÚS KRISTJÁNSSON,
Hrafnakletti 1,
Borgarnesi,
lést í Brákarhlíð í Borgarnesi sunnudaginn
3. janúar.
.
Jónína Kristín Eyvindsdóttir,
Eyvindur S. Magnússon, Ólafía G. Sigurvinsdóttir,
Kristján Á. Magnússon, Branddís M. Hauksdóttir,
Magnús H. Magnússon,
barnabörn og barnabarnabarn.