Morgunblaðið - 07.01.2016, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 2016
Hannes H. Gissurarson skrifar:
Hvers vegnareyna öfga-
vinstrimenn að
þagga niður vand-
ann af þeim múslim-
um (vonandi mikl-
um minni hluta),
sem vilja ekki að-
lagast vestrænni menningu, þótt
sömu múslimar vilji flytjast til Vest-
urlanda og njóta allra þeirra gæða?
Hvers vegna gera öfga-vinstrimenn hróp að þeim,
sem hafa áhyggjur af þessum vanda
og þora að taka til máls um hann?
Þrjár skýringar: 1) Þeir reyna aðskilgreina burt úr stjórn-
málum 10–15% hóp, sem afgreiða
má sem öfgahægrimenn og ekki
þarf að taka tillit til í stjórnarmynd-
unum (sbr. Svíþjóð). 2) Þeir sjá í að-
komufólki, sem fer umsvifalaust á
bætur, nýja kjósendur sína. 3) Þeir
sjá atvinnutækifæri í sýsli um vand-
ræðafólk.
Ekkert af þessu breytir því þó,að duglegt fólk, reglusamt og
löghlýðið á að vera velkomið til Ís-
lands.
Og frjálshyggjumenn hafa réttfyrir sér um, að rót vandans
er, að menn öðlist sjálfkrafa rétt til
framfærslu á kostnað annarra, um
leið og þeir flytjast eða sleppa inn í
vestræn ríki.“
Sjálfsagt geta margir með góðumrökum hafnað þeim ályktunum
sem prófessor Hannes dregur í
pistli sínum.
Og þeim er meira en frjálst aðgera það og myndu aðeins
styrkja umræðu sem vantar.
Hannes H.
Gissurarson
Má segja þetta?
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 6.1., kl. 18.00
Reykjavík 4 alskýjað
Bolungarvík 1 skafrenningur
Akureyri -2 snjókoma
Nuuk -6 skýjað
Þórshöfn 6 alskýjað
Ósló -12 snjókoma
Kaupmannahöfn -2 skýjað
Stokkhólmur -12 heiðskírt
Helsinki -22 léttskýjað
Lúxemborg 4 skýjað
Brussel 7 skýjað
Dublin 6 skýjað
Glasgow 7 alskýjað
London 7 skýjað
París 7 alskýjað
Amsterdam 2 alskýjað
Hamborg -3 skýjað
Berlín -7 snjókoma
Vín -2 þoka
Moskva -12 snjókoma
Algarve 17 léttskýjað
Madríd 7 léttskýjað
Barcelona 13 léttskýjað
Mallorca 13 léttskýjað
Róm 7 skýjað
Aþena 16 léttskýjað
Winnipeg -12 snjókoma
Montreal -5 skýjað
New York 0 heiðskírt
Chicago 0 skýjað
Orlando 15 skúrir
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
7. janúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 11:12 15:57
ÍSAFJÖRÐUR 11:50 15:28
SIGLUFJÖRÐUR 11:35 15:10
DJÚPIVOGUR 10:49 15:18
Tollverðir gerðu upptæk rúmlega
47,6 kíló af fíkniefnum sem smygla
átti til landsins á nýliðnu ári, 2015.
Að auki var lagt hald á rúmlega
209.600 e-töflur. Þetta kemur fram í
tilkynningu frá tollyfirvöldum.
Tekið er fram að um bráðabirgða-
tölur sé að ræða. Jafnframt að um
sé að ræða haldlagningu á fíkniefn-
um á landamærum en ekki innan-
lands.
Þá segir að af ofangreindu magni
fíkniefna hafi verið um 20,6 kíló af e-
dufti, rúm níu kíló af amfetamíni,
rúm níu kíló af kókaíni og rúm átta
kíló af hassi. Til viðbótar var tekið
minna magn af öðrum fíkniefnum,
svo sem metamfetamíni.
Í tilkynningu segir að ef árið 2014
sé tekið til samanburðar, þá hafi
tollverðir stöðvað innflutning á sam-
tals tæpum 700 g af amfetamíni, 44
g af e-töfludufti, rúmlega 1,3 kg af
kókaíni og tæpu kg af hassi, auk
annarra tegunda fíkniefna svo sem
LSD og MDMA-vökva. „Ljóst er að
þarna er um stórfellda aukningu á
haldlagningu fíkniefna að ræða milli
ára,“ segir í tilkynningunni. Lög-
regla í viðkomandi umdæmum hefur
farið með rannsókn málanna.
Fundu tæp 48 kíló af fíkniefnum
Hald lagt á stóraukið magn frá árinu
2014 Níu kíló af kókaíni og 8 af hassi
Morgunblaðið/Júlíus
Fíkniefni Um 48 kg af fíkniefnum
voru gerð upptæk á landamærunum.
Kristján Þór Júlíusson heilbrigð-
isráðherra hefur veitt 45 milljóna
króna styrk til að efla þjónustu
göngudeildar barna- og unglinga-
geðdeildar Landspítalans (BUGL)
við börn sem þurfa þjónustu vegna
alvarlegra geðrænna einkenna, s.s.
þunglyndis, sjálfsvígshugsana og
sjálfskaðandi hegðunar. Ráðherra
tilkynnti Landspítala um fjárveit-
inguna í lok nýliðins árs að því er
segir í frétt frá velferðarráðuneyt-
inu.
Styrkurinn er veittur á grundvelli
tillögu til þingsályktunar um stefnu
og aðgerðaáætlun í geðheilbrigðis-
málum til fjögurra ára sem ráð-
herra lagði fyrir Alþingi á 145.
löggjafarþingi. „Þar kemur m.a.
fram að um 120 börn bíði eftir þjón-
ustu BUGL og að meðalbiðtími eftir
þjónustu sé um níu mánuðir. Mik-
ilvægt sé að stytta biðina og sinna
betur ungum börnum og fjölskyld-
um þeirra. Vísað er til þess að fjöldi
rannsókna sýni að snemmtæk inn-
grip skili mestum árangri og að
meðferð taki skemmri tíma en ella
ef fljótt er brugðist við,“ segir í frétt
ráðuneytisins.
Kristján Þór segir ánægjulegt að
geta aukið fjármuni til að ráðast í
þetta verkefni fyrr en áætlað var.
Þjónustan
verður efld
120 börn bíða eftir
þjónustu BUGL
www.gilbert.is
SJÓN ER SÖGU RÍKARI !