Morgunblaðið - 07.01.2016, Qupperneq 18
18 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 2016
Umboðsaðili: Yd heildverslun, s. 587 9393, yd@yd.is, YdBolighus
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Ráðamenn í Norður-Kóreu greindu í
gærmorgun frá því að þeir hefðu á
tilraunasvæði sínu sprengt vetnis-
sprengju með góðum árangri og
hafði þá skömmu áður mælst jarð-
skjálfti þar við upp á 5,1 stig. Vegna
þessa var boðað til neyðarfundar í ör-
yggisráði Sameinuðu þjóðanna þar
sem hertar refsiaðgerðir gegn land-
inu voru meðal annars ræddar.
Fjölmörg ríki víðsvegar um heim
hafa fordæmt athæfi Norður-Kóreu.
Þannig segja nágrannar þeirra sunn-
an við landamærin tilraunir Norður-
Kóreu vera „alvarlega ögrun“. Þar í
landi var einnig boðað til neyðarfund-
ar eftir sprenginguna.
Ógnar mjög alþjóðaöryggi
„Þessar tilraunir eru ekki einungis
alvarleg ögrun í garð þjóðaröryggis
okkar heldur ógna þær einnig fram-
tíð okkar [...] og ógna mjög friði og
öryggi innan alþjóðakerfisins,“ hefur
fréttaveita AFP eftir Park Geun-
Hye, forseta Suður-Kóreu. Kölluðu
ráðamenn þar í landi í gær mjög eftir
harðari refsiaðgerðum gegn ná-
grönnum þeirra í norðri.
Forsætisráðherra Japans, Shinzo
Abe, var ómyrkur í máli er hann
ræddi við fréttamenn í gær.
„Sú kjarnorkutilraun sem fram-
kvæmd var af Norður-Kóreu er al-
varleg ógn við öryggi okkar ríkis og
munum við alls ekki þola slíkt,“ sagði
hann og hélt áfram: „Þetta brýtur
með augljósum hætti sáttmála ör-
yggisráðs Sameinuðu þjóðanna og er
mikil áskorun við áætlanir alþjóða-
kerfisins um fækkun kjarnavopna.“
Svívirðilegt brot Norður-Kóreu
Stjórnvöld í Moskvu taka einnig í
svipaðan streng. „Ef tilraunin fæst
staðfest væri um nýtt skref að ræða
af hálfu Pyongyang á vegferð þeirra í
þróun kjarnavopna, sem er svívirði-
legt brot á alþjóðalögum og sáttmál-
um öryggisráðs Sameinuðu þjóð-
anna,“ segir í yfirlýsingu frá
utanríkisráðuneyti Rússlands.
Jens Stoltenberg, framkvæmda-
stjóri Atlantshafsbandalagsins
(NATO), hvatti í gær ráðamenn í
Pyongyang til þess að láta þegar af
kjarnorkuvopnaáætlunum sínum.
„Kjarnorkuvopnaprófanir Norð-
ur-Kóreu grafa undan öryggi á svæð-
inu og öryggi innan alþjóðakerfisins
og eru brot á sáttmálum öryggisráðs-
ins,“ er haft eftir Stoltenberg í yf-
irlýsingu sem hann sendi frá sér í
gær. Bætti hann við að ráðamenn
Norður-Kóreu ættu að falla frá áætl-
unum sínum um þróun kjarnavopna
og skotflauga sem borið geta kjarna-
odda og taka þess í stað þátt í við-
ræðum er snúa að fækkun kjarna-
vopna í heiminum.
Vetnissprengja eða ekki?
Þá hafa einnig ríkisstjórnir Frakk-
lands, Bretlands og Kína, sem er
einn helsti bandamaður Norður-Kór-
eu, fordæmt tilraunirnar auk þess
sem Evrópusambandið hvetur Norð-
ur-Kóreumenn til að „láta af þessari
ólögmætu og hættulegu hegðun“.
Kjarnorkuvopnasérfræðingar
lýstu strax í gær yfir efasemdum sín-
um og segja sprenginguna að líkind-
um ekki komna til vegna vetnis-
sprengju. Segja þeir hins vegar, að
sögn AFP, mun líklegra að um sé að
ræða kraftminni sprengju, þ.e. hefð-
bundna kjarnorkusprengju.
Komast sérfræðingarnir meðal
annars að þessari niðurstöðu eftir að
hafa rýnt í jarðskjálftamæla, en
styrkur skjálftans, sem mældist við
Punggye-ri kjarnorkutilraunasvæðið
í Norður-Kóreu, styður að þeirra
sögn ekki fullyrðingar stjórnvalda í
Pyongyang.
Sprengja
Norður-Kóreu
ógn við öryggi
Heimsbyggðin fordæmir atvikið
AFP
Neyðarfundur Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, var einn þeirra sem sátu neyðarfund ör-
yggisráðsins eftir að fréttist af öflugri sprengingu í Norður-Kóreu. Segir hann atvikið valda sér miklum áhyggjum.
Tveir karlmenn
hafa í suður-
hluta Frakk-
lands verið
handteknir og
ákærðir fyrir
nauðgun á ung-
lingsstúlku.
Mennirnir tóku
jafnframt ódæð-
ið upp á myndband í gegnum
símaforritið Snapchat.
Breski fréttavefurinn The Inde-
pendent greinir frá því að menn-
irnir hafi deilt myndbandinu á
samfélagsmiðlum og má m.a. á því
sjá þá misnota stúlkuna sem virð-
ist drukkin eða undir áhrifum
lyfja.
Lögmaður mannanna tveggja,
sem eru 18 og 22 ára gamlir, segir
þá hafa verið ákærða fyrir hóp-
nauðgun og fyrir dreifingu á
klámi. Haft er eftir saksóknara að
stúlkan, sem er 18 ára gömul, hafi
þekkt árásarmennina.
FRAKKLAND
Mynduðu nauðgun
gegnum Snapchat
Ríkisfréttastofan KCNA í Norður-Kóreu sendi frá sér
þessa mynd en á henni má sjá mikinn fjölda fólks sam-
an kominn á torgi þar í landi til þess að fagna spreng-
ingunni sem átti sér stað í gærmorgun. Leiðtogi lands-
ins, Kim Jong-Un, mun á morgun, föstudag, halda upp
á 32 ára afmæli sitt með mikilli hátíð.
AFP
Norður-Kórea fagnar mjög tilrauninni