Morgunblaðið - 07.01.2016, Síða 21
21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 2016
Hlýja Það er notalegt að draga sig í hlé frá erlinum í miðborginni um stund og fá í sig yl í hlýjum og sterkum faðmi.
Golli
Nú er sú staða
uppi að ríkisvaldið á
tvo af þremur stóru
bankanna í landinu
og söluandviði þess
þriðja mun renna í
ríkissjóð. Samtals
eigið fé þessara
banka er m.v. síð-
ustu tölur frá Seðla-
bankanum rétt um
630 milljarðar
króna. Heildarinnlán í banka-
kerfinu voru um 1.876 milljarðar
í lok nóvember.
Heildareign lífeyrissjóða
landsins í innlendum hlutabréf-
um og -sjóðum var í október sl.
um 600 milljarðar króna og áttu
þeir innlán að fjárhæð 150 millj-
arðar. Þá var heildarverðmæti
allra skráðra hlutabréfa á mark-
aði í lok nóvember 999 millj-
arðar.
Það ætti því að vera öllum
augljóst að sala bankanna
þriggja verður vandasamt verk
og getur haft veruleg áhrif á
flæði fjármagns á næstu miss-
erum. Miðað við nýjustu uppgjör
bankanna þriggja er eigin-
fjárstaða þeirra allra mjög góð.
Hér að neðan er tafla með helstu
tölum úr uppgjörum þeirra eftir
þriðja ársfjórðung 2015:
Af þessari töflu sést að eig-
infjárstaða bankanna er afar
sterk og er það eðlilegt þar sem
FME og Seðlabanki hafa lagt á
það áherslu að svo væri og hafa
Arion og Íslandsbanki ekki
greitt hluthöfum arð frá því þeir
voru stofnaðir haustið 2008. Það
eru engar líkur á því að finna
kaupanda að banka sem ekki
kemur til með að greiða eig-
endum sínum arð. Því er aug-
ljóst að það verður að heimila
bönkum að greiða arð í framtíð-
inni og gera til þeirra sambæri-
legar kröfur um eigið fé og í ná-
grannalöndum okkar. Í nýlegri
greiningu Óttars
Snædal hjá Sam-
tökum atvinnulífsins
kom fram að algengt
eiginfjárhlutfall
smærri banka í ná-
grannalöndum okkar
er milli 8 og 10% og
stærri bankar milli 4
og 6%, samanborið
við tæp 20% hjá
okkur. Þetta segir
mér að mjög líklegt
sé að með einbeitt-
um vilja megi greiða út fast að
helmingi þess hlutafjár sem
bankarnir ráða yfir í dag, án
þess að þjónusta, hlítni við lög
eða reglur skaðist. Þannig að ef
bankarnir væru seldir fjárfestum
á 60 til 80% af virði eigin fjár, þá
gætu fjárfestarnir greitt sér út
stóran hluta kaupverðsins á til-
tölulega fáum árum.
Bankarnir greiði ríkinu arð
Til að koma í veg fyrir þetta
tel ég mikilvægt að ríkið, sem
eigandi bankanna, skoði vand-
lega hvort ekki sé rétt að end-
urskipuleggja fjármögnun þeirra
áður en þeir verða seldir, með
því að minnsta kosti að greiða
allt óþarft eigið fé út sem arð.
Til viðbótar tel ég rétt að skoða
hvort uppskipting bankanna í
stofnanir sem fjármagna sig með
innlánum og aðrar sem fjár-
magna sig á markaði gæti liðkað
fyrir enn frekari útgreiðslu til
ríkissjóðs, minnkað bankakerfið í
heild og aukið samkeppni.
Eftir Óttar
Guðjónsson
» Sala bankanna
þriggja verður
vandasamt verk og
getur haft veruleg
áhrif á flæði fjármagns
á næstu misserum.
Óttar Guðjónsson
Höfundur er hagfræðingur.
Til athugunar
fyrir sölu banka
Þótt aðeins séu liðn-
ir örfáir dagar frá því
að forseti Íslands lýsti
yfir því að hann muni
ekki leita eftir endur-
kjöri þegar kjörtímabil
hans rennur út næsta
sumar, liggja þegar
fyrir yfirlýsingar all-
margra einstaklinga
um að þeir muni bjóða
sig fram til embættis
forseta. Enn aðrir aðrir hafa lýst því
opinberlega að þeir séu að hugsa
málið. Og svo eru enn aðrir sem ekki
er enn farið að nefna á nafn, en
munu áreiðanlega bætast í hópinn.
Það er ekkert nema gott um það
að segja að margir telji sig kallaða
til að gegna embætti forseta Íslands
og vilji láta reyna á það hvort þjóðin
sé sammála því mati þeirra. En eftir
því sem frambjóðendum fjölgar
aukast líkur á því að enginn fái meiri
hluta atkvæða í forsetakosning-
unum. Í stjórnarskránni segir að sá
sem fær flest atkvæði, ef fleiri en
einn eru í kjöri, sé rétt kjörinn for-
seti. Hvorki núverandi forseti né
forsetinn næst þar á undan fengu
raunar meiri hluta atkvæða þegar
þeir voru fyrst kjörnir. Margir gætu
því sagt að gildandi kosningafyr-
irkomulag hafi ekki komið að sök. Á
það er hins vegar að líta að þrátt
fyrir mikla fjölgun
þjóðarinnar síðustu
áratugi hefur krafan
um þann lágmarks-
fjölda kosningabærra
manna sem forsetaefni
þarf að hafa meðmæli
frá (1.500 manns) ekki
aukist. Og svo er annað
sem hefur gjörbreyst
frá því að núverandi
forseti var fyrst kos-
inn, en það er tilkoma
samfélagsmiðla sem
gerir kleift að heyja
kosningabaráttu með miklu minni
fyrirhöfn og tilkostnaði en áður var.
Hvort tveggja þýðir þetta að þrösk-
uldurinn fyrir því að bjóða sig fram
til forseta hefur stórlega lækkað.
Það mun án efa fjölga frambjóð-
endum frá því sem áður hefur
þekkst, auka líkur á mikilli dreifingu
atkvæða og jafnvel leiða til þess að
sá sem flest atkvæði hlýtur – og
telst því að óbreyttum ákvæðum
stjórnarskrárinnar rétt kjörinn for-
seti – hafi verið kosinn með miklum
mun lægra atkvæðahlutfalli en áður
hefur sést. Eru kjósendur sáttir við
slíka skipan mála eða finnst okkur
æskilegra að þannig sé um hnútana
búið að forseti hafi ótvírætt lýðræð-
islegt umboð þjóðarinnar, að hann
hafi m.ö.o. á bak við sig meiri hluta
gildra atkvæða?
Sem fyrr segir byggist núverandi
kosningafyrirkomulag á ákvæðum
stjórnarskrárinnar. Því verður þar
af leiðandi ekki breytt nema með
breytingu á stjórnarskránni. Sam-
kvæmt stjórnarskránni verður
stjórnarskránni ekki breytt nema
með samþykki tveggja þinga og
þingrofi og nýjum þingkosningum
þar á milli. Á árinu 2013 var hins
vegar samþykkt bráðabirgðaákvæði
við stjórnarskrána sem opnar á að
fram til 30. apríl 2017 megi breyta
stjórnarskránni án þingrofs og
nýrra kosninga. Samþykki Alþingi
frumvarp til laga um breytingu á
stjórnarskrá með minnst 2/3 hlutum
greiddra atkvæða skal það borið
undir atkvæði allra kosningabærra
manna í landinu til samþykktar eða
synjunar. Er gerður áskilnaður um
að slíkt frumvarp hafi verið sam-
þykkt með atkvæðum minnst 40 af
hundraði allra kosningabærra
manna til þess að það teljist sam-
þykkt.
Liggur ekki beint við að nýta
þetta ákvæði til þess að gera nú
breytingar á kosningafyrirkomulagi
við forsetakjör, standi vilji til þess?
Vissulega gæti það við fyrstu sýn
virst einfalt mál, en svo er að vísu
ekki. Samkvæmt umræddu bráða-
birgðaákvæði stjórnarskrárinnar
skal atkvæðagreiðsla um frumvarp
til stjórnarskrárbreytinga fara fram
í fyrsta lagi sex mánuðum eftir sam-
þykkt frumvarpsins á Alþingi. Og
samkvæmt lögum um framboð og
kjör forseta Íslands skal forsetakjör
fara fram síðasta laugardag í júní-
mánuði. Það mætti því álykta að það
sé orðið of seint að gera umræddar
breytingar fyrir forsetakosningar í
sumar, jafnvel þótt ríkur vilji stæði
til slíks. En svo er alls ekki. Það
stendur tæpt en er þó gerlegt.
Samkvæmt stjórnarskránni skal
forsetakjör fara fram í júní- eða júlí-
mánuði það ár sem kjörtímabil end-
ar. Ákvæðin um að forsetakjör skuli
fara fram síðasta laugardag í júní-
mánuði er að finna í almennum lög-
um, ekki í stjórnarskrá. Slíkum
lagaákvæðum má breyta með al-
mennum lögum, innan þess ramma
sem stjórnarskráin setur.
Alþingi kemur saman til funda á
ný 19. janúar nk. Tímann fram að
því mætti nýta til pólitísks samráðs
um það hvort vilji standi til þess að
kosningafyrirkomulagi við forseta-
kjör verði breytt. Ef víðtækur og
viðhlítandi stuðningur væri fyrir því
að breyta ákvæðum stjórnarskrár-
innar á þá lund að kjósa skuli á ný
(t.d. tveimur vikum eftir fyrri kjör-
dag) milli þeirra tveggja sem flest
atkvæði fá í forsetakosningum, fái
enginn meiri hluta gildra atkvæða,
og það tækist að afgreiða slíkt frum-
varp eigi síðar en 22. eða 23. janúar
nk., mætti efna til þjóðaratkvæða-
greiðslu um frumvarpið 6 mánuðum
síðar, þ.e. laugardaginn 23. júlí eða
sunnudaginn 24. júlí nk. Alþingi
þyrfti síðan fyrir vorið jafnframt að
gera breytingu til bráðabirgða á lög-
um um framboð og kjör forseta Ís-
lands sem fæli í sér að á sumri kom-
anda færi forsetakjör fram síðasta
laugardag í júlí, þ.e. laugardaginn
30. júlí, í stað síðasta laugardags í
júní, auk þess sem taka yrði upp í
lögin ákvæði um síðari umferð for-
setakosninga, þegar svo ber undir.
Gengi þetta eftir lægi fyrir þegar
forsetakosningar fara fram í lok júlí
hvort kjósa þurfi á ný, ef enginn
frambjóðandi fengi þá meiri hluta
atkvæða.
Samkvæmt stjórnarskránni endar
kjörtímabil núverandi forseta 31.
júlí nk. Ef kjósa þyrfti á ný milli
þeirra tveggja sem flest atkvæði
fengu, myndu handhafar forseta-
valds einfaldlega fara með forseta-
vald frá 1. ágúst nk. og þar til kosn-
ingu forseta væri endanlega lokið
2-3 vikum seinna, enda beinlínis
kveðið á um það í stjórnarskránni að
handhafar fari tímabundið með for-
setavald, verði sæti forseta lýðveld-
isins laust.
Eftir Baldur
Guðlaugsson »Eftir því sem fram-
bjóðendum fjölgar
aukast líkur á því að
enginn fái meiri hluta
atkvæða í forsetakosn-
ingunum.
Baldur Guðlaugsson
Höfundur er lögfræðingur.
Það er enn hægt að áskilja
meirihlutakjör næsta forseta