Morgunblaðið - 07.01.2016, Qupperneq 35
svæðanna norðaustan við Grafar-
vog.
Vann í einkatíma sínum einnig að
hönnun húsa og leiksvæða.
Hann var kennari í hlutastarfi
sem dósent við HÍ 1988 og síðan
fyrsti prófessor í skipulagi við ís-
lenskan háskóla, verkfræðideild HÍ.
Trausti hefur verið virkur í mót-
un hugmynda um framtíðina, skipu-
lag og hönnun og frumkvöðull í um-
ræðu um ýmis álitamál í skipulagi,
s.s. flugvöll á Lönguskerjum og há-
lendisvegamál. Þessu hefur hann
miðlað með 150 greinum og 13 bók-
um. Helstu rit hans eru Reykjavík -
Vaxtarbroddur: Þróun höfuðborgar,
1986; Hugmynd að fyrsta heild-
arskipulagi Íslands, 1987; Framtíð-
arsýn: Ísland á 21. öld, 1991; Land
sem auðlind - Um mótun byggða-
mynsturs, 1993; Við aldahvörf -
Staða Íslands í breyttum heimi,
1995 (ásamt Alberti Jónssyni); Ís-
land hið nýja 1997 (með Birgi Jóns-
syni); Borg og náttúra - ekki and-
stæður, heldur samverkandi eining,
1999; Vegakerfið og ferðamálin,
2000; Skipulag byggðar á Íslandi,
2002; Planning in Iceland, 2003;
How the World will Change - with
Global Warming, 2006, og Mótun
framtíðar - Hugmyndir - Skipulag -
Hönnun, 2015.
Trausti hefur fengið verðlaun í
mörgum samkeppnum og margs-
konar aðrar viðurkenningar.
Hver eru helstu áhyggjuefnin í
skipulagsmálum okkar í dag?
„Það sem ég hef mestar áhyggjur
af þessa stundina er að ágangur
túrista spilli mjög eftirsóttustu
stöðunum okkar í þéttbýli og á
landsbyggðinni. Þeir sem ganga
harðast fram í hagnaði af túrisma
eru í óðaönn að ganga á sögu og
sérkenni Miðbæjar Reykjavíkur og
nágrennis. Þar er verið að byggja
stór hótel með alþjóðlegu yf-
irbragði, gömlu húsin hverfa á
sama tíma og gömul og gróin fyr-
irtæki víkja fyrir stórmörkuðum og
skyndibitastöðum. Eins eru vinsæl-
ir staðir á landsbyggðinni að breyt-
ast í moldarsvað. Mótsögnin felst í
því að stórfyrirtæki í ferðamennsku
eru að ganga á þá mikilvægu auð-
lind sem er forsenda túrismans og
vinna gegn eigin atvinnugrein. For-
sætisráðherrann okkar hefur bent á
þetta í skynsamlegum greinum og
við þurfum að spyrna við fótum því
þetta er rányrkja á landi okkar og
sögu.“
Fjölskylda
Fyrrv. eiginkona Trausta er
Fríður Ólafsdóttir, f. 9.6. 1946, fata-
hönnuður og dósent við HÍ.
Dóttir Trausta og Fríðar er
Hrönn Traustadóttir, f. 4.10. 1966,
fatahönnuður á Selfossi, en maður
hennar er Tómas Jónsson raf-
magnsfræðingur og eru börn þeirra
Kristófer, f. 1994, og Harpa, f.
2008.
Fyrrverandi sambýliskona
Trausta er Steinunn Sigurðardóttir,
f. 26.8. 1950, rithöfundur.
Dóttir Trausta og Steinunnar er
Tinna Traustadóttir, f. 3.4. 1974,
lyfjafræðingur í Reykjavík, en mað-
ur hennar er Ólafur Þorvaldsson
læknir og eru börn þeirra Brimar,
f. 2002, og Edda, f. 2014.
Foreldrar Trausta eru Gróa J.
Guðjónsdóttir, f. 31.8. 1913, d. 13.3.
1982, húsfreyja í Reykjavík, og Val-
ur Lárusson, f. 30.7. 1917, d. 28.10.
1976, skrifstofumaður, Reykjavík.
Úr frændgarði Trausta Valssonar
Trausti
Valsson
Sigríður Hjálmarsdóttir
húsfr. á Neðri-Sýruparti, af
ætt Bólu-Hjálmars
Bjarni Jónsson
sjóm. á Neðri-Sýruparti á Akranesi
Lárus Bjarnason
sjóm. í Hafnarfirði og í Rvík
Elísabet Ósk
Jónasdóttir
húsfr. í Hafnar-
firði og í Rvík
Valur Lárusson
skrifstofum. í Rvík
Jónas Jónsson
b. á Hliði á Álftanesi
Sigríður Jónsdóttir
húsfr. á Hliði
Bjarni Jónsson
bankastj. á Akureyri
Einar Bjarnason prófessor
í ættfræði við HÍ
Hörður Bjarnason
húsameistari ríkisins
Gígja Björnsson
sendiherrafrú
Mattína
Helgadóttir
húsfr.
Stefán Hörður Grímsson ljóðskáld
Tryggvi Guðmundsson
kaupm. á Seyðisfirði og
gjaldkeri ÁTVR í Rvík
Gísli Guðmunds-
son b. í Úthlíð
Helga Björnsson
tískuteiknari
Guðrún Guðmunds-
dóttir húsfr. í Rvík
Nína Tryggvadóttir
myndlistarkona
Jónína Þorbjörg
Gíslad. húsfr. í Úthlíð
Alfreð
Flóki
Gísli Sigurðss.
ritstj. Lesbókar
Morgunblaðsins
Jón Magnússon
b. í Unnarholti
Guðjón Jónsson
b. í Unnarholti
Elínborg Pálsdóttir
húsfr. í Unnarholti í
Hrunamannahr.
Gróa Guðjónsdóttir
húsfr. í Rvík
Páll Jónsson
b. í Ferjunesi
Elín Sveinsdóttir
húsfr. í Ferjunesi í Flóa
Einar Jónsson myndhöggvari
Bjarni Jónsson forstj. Nýja Bíós
Guðný Jónsdóttir kennari
og rithöfundur í Rvík
Helgi
Bjarnason
b. í Miðfelli
Grímur Gísli Jónasson í Hafnarfirði
Valgerður Bjarnadóttir húsfr.
á Efra-Seli í Hrunamannahr.
Guðmundur
Bjarnas. b. á Bóli
Jón
Bjarnason b.
í Galtafelli
Guðfinna Bjarnadóttir
húsfr. í Unnarholti, af Jötuætt
ÍSLENDINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 2016
Einar fæddist í Vestmanna-eyjum 7.1. 1920 og ólst þarupp. Foreldrar hans voru
undan Eyjafjöllum, hjónin Sigurjón
Ólafsson frá Núpi og Guðlaug Ein-
arsdóttir frá Raufarfelli.
Eiginkona Einars var Hrefna Sig-
urðardóttir frá Siglufirði sem lést
árið 2000 en sonur þeirra er Óskar
Einarsson markaðsstjóri.
Einar var í barna- og gagnfræða-
skólanum í Vestmannaeyjum og
lauk síðan vélstjóraprófi. Auk þess
stundaði hann nám við Íþróttaskól-
ann í Haukadal 1939 og tók minna
fiskimannapróf við Stýrimannaskól-
ann í Reykjavík 1943.
Einar var vélstjóri á bátum frá
Vestmannaeyjum í byrjun starfsfer-
ils síns til 1945. Þá festi hann kaup á
báti, ásamt vini sínum, Óskari Ólafs-
syni, skipstjóra frá Garðstöðum, en
þeir stunduðu útgerð og fiskverkun
til ársins 1956.
Um þær mundir hafði Ísfélag
Vestmannaeyja átt í miklum rekstr-
arerfiðleikum um nokkurt skeið. Út-
gerðarmenn 10 báta í Eyjum tóku þá
höndum saman um endurreisn þessa
hálfrar aldar gamla frystihúss,
keyptu þar hlutafé og lögðu þar upp
afla báta sinna. Ráðin var ný stjórn
og leitað til Útvegsbankans í Eyjum
til aðstoðar við endurreisnina. Einar
var þá ráðinn forstjóri Ísfélagsins,
stjórnaði þar farsælli endurreisn og
átti eftir að vera forstjóri félagsins á
árunum 1957-87 á tímum umtals-
verðra breytinga á sjósókn og fisk-
vinnslu hér á landi.
Um Einar og fyrirtækið sagði Sig-
urður heitinn Einarsson, síðar for-
stjóri Ísfélagsins, í minningargrein:
„Árin þar á undan hafði starfsemin
verið í lægð en þetta breyttist veru-
lega með Einari og félögum hans.
Þeir rifu félagið upp, útveguðu nýjar
vélar, bættu húsakost og juku fram-
leiðsluna verulega. Í höndum Einars
varð Ísfélagið fljótlega eitthvert
best rekna frystihús á landinu.“
Einar sat auk þess í stjórnum
nokkurra íslenskra fyrirtækja sem
tengdust sjávarútvegi en einna
lengst í stjórn Sölumiðstöðvar Hrað-
frystihúsanna.
Einar lést 13.10. 1998.
Merkir Íslendingar
Einar Sigurjónsson
85 ára
Geir Ólafur Oddsson
Guðlaug Halsör
Sigvardsdóttir
80 ára
Benedikt Bjarnarson
Guðjón Stefánsson
Margrét Guðmundsdóttir
75 ára
Arngrímur Arngrímsson
Ármann Olgeirsson
Gígja Kristín
Kristbjörnsdóttir
Sigurður Sveinn Jónsson
70 ára
Alma Garðarsdóttir
Guðjón J. Jensson
Lilja I. Sveinsdóttir
Páll Pálmason
Sigríður Vigfúsdóttir
Sigurður P. Björnsson
Sveinn S. Árnason
Vilborg Sigríður Árnadóttir
60 ára
Auður Eygló Kjartansdóttir
Erlendur Yngvason
Finnbjörn Haukur
Bjarnason
Helen Anne Tagg
Herdís Benediktsdóttir
Jakob Viðar Guðmundsson
Kjartan G. Guðmundsson
Kristveig Sigurðardóttir
Páll Jónsson
Richard Guðmundur
Jónasson
Rut María Jóhannesdóttir
Tamnak Ketphet
50 ára
Bozena Rant
Davíð Viðarsson
Gróa Margrét Finnsdóttir
Guðmundur Sveinsson
Kröyer
Kristín Hólm
Hafsteinsdóttir
Pawel Janusz Furman
Sigríður Fjóla
Þorsteinsdóttir
Stefán B. Mikaelsson
Vala Björg Guðmundsdóttir
Þórey Arna Haraldsdóttir
40 ára
Andreas Ólafur Ketel
Arnar Björnsson
Brynjar Jóhann
Halldórsson
Davíð Smári Jóhannsson
Einar Gunnarsson
Euglend Shehu
Guðmundur Svavar
Ásgeirsson
Ingunn Ragna Arnarsdóttir
Jón Trausti Sæmundsson
María Sturludóttir
Sigurður Elvar Sigurðsson
Þórunn Sóley Björnsdóttir
Þröstur Guðgeirsson
30 ára
Anna Birna Brynjarsdóttir
Guðrún Randý
Sigurðardóttir
Isabel Cristina Pelaez
Betancur
Rósíka Gestsdóttir
Sigurður Kristinn
Guðmundsson
Skúli Jón Unnarson
Til hamingju með daginn
30 ára Birna ólst upp í
Reykjavík, býr í Kópavogi,
lauk BSc-prófi í sálfræði
frá HÍ og er í fæðing-
arorlofi.
Maki: Eyþór Páll Ásgeirs-
son, f. 1985, flugmaður.
Dætur: Ásdís Heiða, f.
2012, og Hrafndís Hekla,
f. 2015.
Foreldrar: Kristinn Valur
Kristófersson, f. 1962,
verslunarmaður, og Ásdís
M. Gilsfjörð, f. 1958, skrif-
stofumaður.
Birna
Kristinsdóttir
30 ára Aron ólst upp í
Danmörku, býr í Reykja-
vík, lauk flugvirkjaprófi í
Danmörku og er flugvirki
hjá Atlantsflugi.
Sonur: Tindur Sören, f.
2014.
Systir: Halldóra Áskels-
dóttir, f. 1999.
Foreldrar: Katrín Guð-
mundsdóttir, f. 1967,
hjúkrunarfræðingur, og
Sigurður Óskar Klein, f.
1968, starfsmaður við
borpalla í Kanada.
Aron Þór
Sigurðsson
30 ára Sindri ólst upp í
Reykjavík, býr þar, lauk
prófi í flugvirkjun og starf-
ar hjá Bílanausti.
Maki: Ellen Björg Jóns-
dóttir, f. 1988, starfsmaður
við LSH.
Börn: Rakel Eva, f. 2013,
og Baldur Snær, f. 2014.
Foreldrar: Ásbjörn Ás-
björnsson, f. 1958, leigubíl-
stjóri, og Elín Sturlaugs-
dóttir, f. 1963, sjúkraliði
hjá Heimahjúkrun
Reykjavíkurborgar.
Sindri
Ásbjörnsson
Hægt er að
sendamynd og texta
af nýjum borgara eða
brúðhjónum af slóðinni
mbl.is/islendingar
eða á netfangið
islendingar@mbl.is