Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.02.2016, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.02.2016, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.2. 2016 „Börn eiga alltaf að njóta vafans“ Faðir barnanna sem hvorki hafamætt í sund né leikfimi áÞingeyri frá því í nóvember síðastliðnum, Snorri Guðbergur Snorrason, hefur lengi staðið í hat- römmum deilum við starfsmann sundlaugarinnar og íþrótta- miðstöðvarinnar og telur hann eng- ar líkur á því að hægt verði að ná sáttum. Til þess hafi of mikið gengið á. Tekið skal fram að ágreiningur Snorra og mannsins tengist ekki störfum hans í sundlauginni og Morgunblaðið hefur heimildir fyrir því að aðrir foreldrar hafi ekki kvartað undan störfum hans þar. Snorri vill ekki að börn sín um- gangist manninn enda séu þau hrædd við hann. Það munu þau hafa viðurkennt fyrir fagaðilum. Börnin neituðu fyrst að mæta í leikfimi og sund á síðasta skólaári og þegar fyrir lá að maðurinn myndi starfa áfram í sundlauginni og íþróttamiðstöðinni hafði skóla- og tómstundasvið Ísafjaðarbæjar milli- göngu um gerð samkomulags sem átti að tryggja að börnin gætu mætt í tímana. Að sögn Snorra kom um- boðsmaður barna að málinu líka. Yrði ekki á vakt Í samkomulaginu fólst að Snorri myndi sjálfur fylgja dóttur sinni í leikfimi og sund en vinnusvæði starfsmannsins er hvorki sundlaugin sjálf, íþróttasalurinn né kvennaklef- inn. Þannig var svo búið um hnúta að maðurinn yrði ekki á vakt meðan sonur Snorra væri í leikfimi eða sundi og skildi Snorri það svo að honum bæri að yfirgefa húsið á með- an. Á þetta fyrirkomulag reyndi fyrst í ágúst síðastliðnum. Allt gekk að óskum til að byrja með og börnin stunduðu tímana. Fljótlega komst Snorri hins vegar að því að mað- urinn ætti til að ílendast í húsinu enda þótt hann væri ekki á vakt og fyrir vikið rakst sonur hans ítrekað á manninn. Við þetta gat Snorri ekki unað og vakti athygli skóla- og tóm- stundasviðs Ísafjarðarbæjar á þessu. Þegar ekkert breyttist ákvað Snorri að draga börn sín alfarið úr sundi og leikfimi. Segir hann það hafa verið að frumkvæði barnanna sjálfra. Þetta var í nóvember síðast- liðnum og hafa börnin ekki mætt í tímana síðan. Í litlu hlutastarfi Snorri segir ekki koma til greina að börnin byrji að sækja tímana á ný fyrr en tryggt sé að maðurinn verði ekki í húsinu meðan drengurinn er þar líka. Maðurinn sé aðeins í litlu hlutastarfi við sundlaugina og fyrir vikið ætti þetta ekki að vera flókið. Hann kveðst hins vegar hafa fengið þau svör hjá skóla- og tóm- stundasviði Ísafjarðarbæjar að ekki sé hægt að gera þá kröfu til starfs- mannsins að hann víki úr húsinu á meðan drengurinn er þar enda þótt hann sé ekki á vakt. Hann eigi fullan rétt á að vera þar sem gestur. Þarna stendur hnífurinn í kúnni. Snorri segir starfsmanninn hafa farið í frí í nóvember eða desember og furðar sig á því að skólinn hafi ekki látið hann og eiginkonu hans vita en börnin hefðu hæglega getað sótt tímana á meðan. Að sögn Snorra fengu bæði börnin einkunn í sundi og leikfimi á haust- önn og mun það hafa verið byggt á mati kennarans en börnin mættu sem kunnugt er í ágúst, september og október. Hann veit ekki hvað verður gert á vorönn, hvort þau fái einkunn enda þótt þau hafi ekki mætt eða alls enga einkunn. Lýg ekki um ástæðuna Að sögn Snorra hefur skólinn lagt til að hann sæki um leyfi fyrir börnin bæði í sundi og leikfimi en ekki á þeim forsendum að þau geti ekki umgengist téðan starfsmann. Því hafnaði Snorri. „Ég lýg ekki til um ástæðuna,“ segir hann. Snorri fékk á dögunum bréf frá Grunnskólanum á Þingeyri þess efn- is að málið hefði verið tilkynnt barnaverndaryfirvöldum en þegar börn mæta af einhverjum ástæðum ekki í skóla kemur venjulega til þeirra kasta. Hann kveðst ekki ótt- ast þá úttekt enda vegni börnunum að öðru leyti mjög vel, bæði fé- lagslega og í námi. Öllum eigi að vera ljóst hvers vegna þau sæki ekki umrædda tíma. Í huga Snorra ætti ekki að vera erfitt að leysa þetta mál. Aðeins þurfi að tryggja að starfsmaðurinn sé ekki í húsinu þegar sonur hans er í leikfimi eða sundi. Til þess virðist á hinn bóginn ekki vera vilji, hvorki hjá skólanum sjálfum né skóla- og tómstundasviði Ísafjarðarbæjar. Hann hefur skilning á því að ekki sé hægt að skikka manninn til að yf- irgefa húsið en á vont með að skilja hvers vegna ekki megi semja um það fyrirkomulag við hann þannig að börnin fái notið sín. Og farið eftir því. Þeirra hagsmunir hljóti að vega þyngst í málinu og grátlegt sé að deila milli tveggja fullorðinna manna bitni á þeim. „Samkvæmt Barnasátt- mála Sameinuðu þjóðanna eiga börn alltaf að njóta vafans,“ segir hann. Íhuga að flytja í burtu Snorri og eiginkona hans hafa íhug- að að flytja frá Þingeyri vegna þessa máls en hann segir það hægara sagt en gert. Þau hafi keypt þar hús fyrir fáeinum árum og kostað miklu til að gera það upp. Þess utan sé sáralítil eftirspurn eftir húsnæði á staðnum. Þau séu í raun í átthagafjötrum. Sjálfur hóf hann nýverið störf á Ísafirði og getur vel hugsað sér að hafa börnin með sér þangað á morgnana til að sækja skóla. „Hafi ekkert breyst í haust verður það mjög líklega niðurstaðan,“ segir Snorri. „Ég held þó enn í vonina; að málið verði leyst, þannig að börnin mín geti áfram verið í skóla hér á Þingeyri.“ Börn í skólasundi. Myndin tengist ekki efni greinarinnar. Morgunblaðið/Ásdís Tvö systkini á Þingeyri, sex og ellefu ára, hafa hvorki mætt í leikfimi né skólasund síðan í nóvember en faðir þeirra hefur staðið í hatrömmum deilum við starfsmann sundlaugarinnar og íþróttamiðstöðvarinnar á staðnum og sakar hann um að hafa svikið samkomulag sem gert var síðasta vor en því var ætlað að tryggja að börnin gætu mætt í umrædda tíma. Pattstaða virðist komin upp í málinu. Erna Höskuldsdóttir, skóla- stjóri Grunnskólans á Þing- eyri, sem einnig kennir bæði leikfimi og sund, vildi ekki tjá sig um málið þegar eftir því var leitað og vísaði á Mar- gréti Halldórsdóttur, sviðs- stjóra skóla- og tóm- stundasviðs Ísafjarðarbæjar. Hún vildi heldur ekki tjá sig við Morgunblaðið að öðru leyti en því að Ísafjarðarbær hefði gert allt sem í hans valdi stæði til að leysa þann ágreining sem um ræðir og er á milli fullorðinna ein- staklinga. Allt verið reynt ’Samkvæmt Barnasáttmála Sameinuðu þjóðannaeiga börn alltaf að njóta vafans.Snorri Guðbergur Snorrason INNLENT ORRI PÁLL ORMARSSON orri@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.