Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.02.2016, Blaðsíða 26
Fjallgarðar sem
geyma hringa.
Munirnir frá Artless goods
eru steyptir í sílíkonmót.
Skál sem minnir á
Haleakala-eldfjallið
á Havaí.
Nýtilegt landslag
Artless goods er hönnunarstúdíó frá Singapúr
sem hefur hafið framleiðslu lítilla steyptra út-
gáfa af fjöllum og landslagi sem nýtt er á
skemmtilegan máta. Þá er lögun ýmissa fjall-
garða, eldfjalla og gíga steypt í form og þannig
skapaðir munir sem ætlaðir eru til að geyma
skartgripi og aðra smáhluti. Við gerð munanna
voru útbúin sérsniðin sílíkonmót sem steyp-
unni er hellt í og látin þorna svo úr urðu hráir
og fallegir gripir. Þá nýtti hönnunarstúdíóið sér
einnig þrívíddartækni til þess að mynda línur í
steypunni sem eiga að minna á hæðarlínur á
landakortum.
26 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.2. 2016
HÖNNUN
Frumleg
og fáguð
hönnun
Hönnuðir sækja innblástur víða og sífellt
bætast nýir hönnuður í flóruna þrátt fyrir
að þeir þrautreyndu klikki ekki. Hönn-
unarvikan í Stokkhólmi er nýafstaðin en
þar kynntu áhugaverðir hönnuðir spenn-
andi möguleika nýstárlegrar hönnunar eða
óhefðbundnar útfærslur klassískra hönn-
unarmuna. Sunnudagsblaðið kynnti sér
áhugaverða hönnun frá ýmsum heims-
hornum og hér er brot af því sem vakti
hvað helsta athygli í vikunni.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
Reykjavík
Bíldshöfði 20
Akureyri
Dalsbraut 1
www.husgagnahollin.is
558 1100
Verð og vöruupplýsingar í auglýsingunni eru birtar með
fyrirvara um prentvillur. Yfirstrikað verð sýnir fullt verð vöru.
10 – 18 virka daga
11 – 17 laugardaga
13 – 17 sunnudaga
10 – 18 virka daga
11 – 16 laugardaga
Ísafjörður
Skeiði 1
Allir* borðstofu- og eldhússtólar á tilboði
SEATTLE
Borðstofustóll.
Svartur, grár
og hvítur með
krómlöppum.
5.990 kr.
8.990 kr.
EIFFEL
Borðstofustóll.
Svartur, grár og
hvítur með
svörtum
löppum.
8.990 kr.
11.990 kr.
EIFFEL
Borðstofustóll.
Svartur, grár,
rauður, turkis
og hvítur með
krómlöppum.
9.990 kr.
13.990 kr.
PARIS
Borðstofustóll.
Svartur, grár, hvítur,
rauður og orange
með sterkbyggðum
viðarlöppum.
9.990 kr.
14.990 kr.
Hljóðeinangrun vakti athygli á hönnunarvik-
unni í Stokkhólmi sem er nýafstaðin þar sem
fjöldinn allur af skandinavískum hönnuðum og
hönnunarhúsum lagði áherslu á hljóðeinangr-
aða hönnun. Hljóð og hljóðeinangrun er mik-
ilvægur þáttur í hönnun og hefur mikið að segja
fyrir rýmið og á hönnunarvikunni voru því mis-
munandi útgáfur hljóðeinangrandi muna kynnt-
ar fyrir mismunandi rými og notkun, hvort sem
það er ætlað fyrir fjölmenna staði eða til einka-
nota.
Hljóðeinangrun
ofarlega í huga Tomako er frem-ur djarfur hljóð-
dempari frá
finnska merkinu
Vivero.
Focus frá Zilenzio eru beygjanleg hljóð-
einangrandi skilrúm sem gera fólki kleift
að dempa hljóð í kringum sig.