Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.02.2016, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.02.2016, Blaðsíða 48
Ég rannsakaði verkin að beiðnidönsku lögreglunnar og vannskýrslur þar sem niðurstaðan var sú að verkin væru fölsuð og til- heyrðu sama hópi verka og við þekkj- um úr fölsunarmálinu sem snerist um verk eftir Svavar Guðnason og aðra listmálara,“ segir Ólafur Ingi Jóns- son, forvörður hjá Listasafni Íslands. Í september árið 2014 lagði danska lögreglan hald á tvö verk eftir list- málarann Svavar Guðnason í upp- boðshúsinu Bruun Rasmussen í Kaupmannahöfn rétt áður en uppboð á verkunum átti að fara fram. Eftir rannsókn á verkunum mun danska efnahagslögreglan ekki leggja fram kæru þar sem hún telur að brotin séu fyrnd. Ekki eru nema fimm ár liðin frá því að verki eftir Svavar var skilað aftur til sama uppboðshúss í Danmörku og það endurgreitt kaupandanum því verkið reyndist falsað, að sögn Ólafs Inga. Ólafur Ingi segir verkin vera anga af „stóra málverkafölsunarmálinu“ svokallaða en tveir hæstaréttar- dómar féllu vegna ákæru um málverkafölsun, annar árið 1999 og hinn 2004 vegna verka sem gengu kaupum og sölum á 10. áratug síðustu aldar. Í fyrri dómi Hæstaréttar var fullsannað að þrjú verk væru fölsuð og var ákærði, galleríeigandi, dæmd- ur fyrir skjalafals og fjársvik en ekki fyrir málverkafölsun. Sakborningar í seinna málinu, voru eigandi og viðskiptafélagi Gallerís Borgar. Héraðsdómur komst að þeirri niðurstöðu að 42 myndlistar- verk sem höndlað var með hefðu ver- ið fölsuð, sakborningarnir voru sak- felldir og dæmdir í sex og fjögurra mánaða fangelsi. Í Hæstarétti voru þeir sýknaðir vegna formgalla og ástæðan var m.a. sú að vitni í málinu var talið vanhæft en það var for- vörður sem starfaði við Listasafn Ís- lands en safnið var einnig aðili að málinu. Ólafur Ingi telur að fölsuðu verkin tvö sem nefnast Komposition séu ekki mikið eldri en frá árinu 1994 og hafi komist í umferð á sama tíma og fjölmörg fölsuð verk gengu kaupum og sölum í Gallerí Borg á 10. áratugn- um. Á þeim tíma var Gallerí Borg í samstarfi við dönsku uppboðshúsin Bruun Rasmussen og Kunsthallen. Síðar sameinuðust þessi tvö dönsku uppboðshús undir heiti Bruun Rasm- ussen. „Bæði þessi stóru uppboðshús í Danmörku voru að selja verk og áttu í viðskiptum við þessa einstaklinga, Pétur Þór [Gunnarsson] og Jónas [Freydal] sem voru sakfelldir í hér- aðsdómi fyrir að höndla með fölsuð verk,“ segir Ólafur Ingi. Tengsl mál- verkanna tveggja sem danska lög- reglan lagði hald á haustið 2014 við stóra málverkafölsunarmálið eru að mati Ólafs Inga með þeim hætti að upphaflega koma þau frá þessum ein- staklingum á 10. áratugnum. Annað verkanna sem Ólafur Ingi telur að séu fölsuð var selt í Galerí profilen á Jótlandi árið 1994 á sýn- ingu sem galleríið hélt með olíu-, pastel- og vatnslitaverkum eftir Svav- ar Guðnason og þar kaupir danskur málverkasafnari það. Að sögn Ólafs Inga voru milligöngumenn að þeirri sýningu Pétur Þór hjá Gallerí Borg og Jónas Freydal. „Um þá sýningu hef ég alltaf sagt að mörg af þeim verkum sem voru þar voru fölsuð,“ segir Ólafur Ingi. Á þeirri sýningu voru verk frá ekkju Svavars, Ástu Ei- ríksdóttur. „Kannski fara verkin af heimili Ástu, lenda aldrei inni á sýn- ingunni, eru fölsuð á leiðinni og svo eru fölsuðu verkin send inn á sýn- inguna í staðinn fyrir hin eða afbrigði af öðrum verkum líkt og fölsunin sem hér um ræðir,“ segir Ólafur Ingi. Nokkrum árum áður, árið 1991, var boðið upp verkið Komposition eft- ir Svavar Guðnason í Kunsthallen, sem verkið Komposition er stælt eft- ir. Hitt verkið sem danska lögreglan lagði hald á var selt hjá Kunsthallen í september árið 1994 og er stæling á „Kosmísku landslagi“ eftir Svavar frá árinu 1948. Árið 1998 leggur Ólafur Ingi fram gögn til beggja uppboðshúsanna og dönsku lögreglunnar um fjölda verka eftir íslenska listmálara í Danmörku sem hann grunaði að væru fölsuð og tengdust þessum uppboðshúsum í Danmörku. Á Íslandi ári síðar, 1999, féll fyrri dómur Hæstaréttar vegna ákæru um málverkafölsun og þar kom Bruun Rasmussen við sögu. Ábyrgðin að selja þessi verk eftir Svavar liggur hjá uppboðshúsinu, Bruun Rasmussen. Það er skylda þess að kanna vel bakgrunn þeirra verka sem það selur og enn brýnna í ljósi aðstæðna, segir Ólafur Ingi. „Það er ekki hægt að komast að neinni annarri skynsamlegri niður- stöðu en að forstöðumönnum beggja þessara dönsku uppboðshúsa, sem bera ábyrgð innan þessara deilda fyr- irtækjanna, var fullljóst að þetta voru falsanir. Sérfræðingar uppboðshúss- ins vissu nákvæmlega hvað þeir voru með í höndunum þegar þeir buðu verkið upp árið 2014. Þeir vita að verkið kemur upphaflega frá þessum íslensku aðilum fyrir 20 árum. Eftir dóminn hefur ekkert breyst í Dan- mörku. Ekkert. Þekkingin er engu ríkari um að marflatt málverk með plastmálningu geti ennþá verið verk eftir Svavar Guðnason þegar niður- staða málsins er að svo geti aldrei verið. Það hefur lengi legið fyrir,“ segir Ólafur Ingi og heldur áfram: Samfellt brot málverkafölsunar Ekki verður lögð fram kæra vegna tveggja verka sem eignuð eru listmálaranum Svavari Guðnasyni (1909-1988) þrátt fyrir að for- vörður hafi komist að þeirri niðurstöðu að þau séu fölsuð. Danska lögreglan lagði hald á verkin haustið 2014 þegar bjóða átti þau upp en hún telur málið fyrnt. Forvörður segir verkin tilheyra sama hópi verka og koma úr „stóra málverkafölsunarmálinu.“ Þórunn Kristjánsdóttir thorunn@mbl.is „Ég rannsakaði verkin að beiðni dönsku lögreglunnar og vann skýrslur þar sem niðurstaðan var sú að verkin væru fölsuð og tilheyrðu sama hópi verka og við þekkjum úr fölsunarmálinu,“ segir Ólafur Ingi Jónsson forvörður Listasafns Íslands. Morgunblaðið/Árni Sæberg „Aðgerðirnar munu markast af því sem kemur fram í tillögum nefndarinnar og ég get ekki tekið afstöðu til þess fyrr en hún hefur skilað formlega. En mér hefur sýnst að við þurfum að beina sjónum okkur að uppbyggingu á getu og þekkingu til þess að fást við þessi mál,“ segir Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra, spurður út í aðgerðir til að sporna við fölsun á málverkum og vísar til nefndar sem ráðuneytið skipaði um þetta efni, sem mun skila tillögum líklega í næsta mánuði. „Það skiptir máli að hægt sé að treysta því að þau listaverk sem eru keypt séu ófölsuð. Þetta er mikið hagsmunamál fyrir listaverkamark- aðinn. Fyrir listamennina sjálfa, þá sem selja listina og kaupendur,“ segir Illugi. Spurður hvort hann telji líklegt að tillögur nefndarinnar eigi eftir að hafa áhrif á núverandi stöðu á markað með listaverk sem hefur lít- ið breyst frá því málið kom upp fyrir rúmu 10 árum, segist hann ekki geta sagt nákvæmlega til um það. „Ekki fyrr en við vinnum úr niður- stöðunum,“ segir Illugi. RÁÐHERRA Mikið hagsmunamál Illugi Gunnarsson LESBÓK 48 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.2. 2016
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.