Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.02.2016, Blaðsíða 27
Japanski arkitektinn Sou Fujimoto hannaði áhuga-
verða ljósinnsetningu fyrir tískuhúsið COS fyrir
hönnunarvikuna í Mílanó. Arkitektinn hannaði eins-
konar skóg úr kösturum sem verður sýndur í gömlu
leikhúsi í miðborginni, Cinema Arti. Kastararnir
varpa ljósinu frá loftinu en undir ljósinu gefst fólki
kostur á því að stoppa eða setjast. Ljósaskógurinn er
afskaplega áhugaverð innsetning og má búast við sér-
stakri upplifun þegar innsetningin hefst. Innsetningin
COS x Sou Fujimoto verður opin frá 12 til 17 April
2016 í Via Pietro Mascagni 8 á árlegri hönnunarviku
Milanó..
Innsetningin verður sýnd á hönnunarvikunni í Mílanó í apríl.
Áhugaverð innsetning með ljósum
Nýjasta hönnun Tom Fereday er
fáguð húsgögn í anda kvikmynda-
leikstjórans Wes Anderson sem
er þekktur fyrir áhugaverðar list-
rænar kvikmyndir og einstakar
sviðsmyndir. Húsögnin eru í fal-
legum litum og nýtileg á fjölda
vegu þar sem hönnuðurinn leikur
sér með formin á einstakanmáta.
Hönnuðurinn Tom
Fereday leikur sér
með formin í Wes-
línunni.
Húsgögnin eru
sérlega skemmtileg
og vel unnin.
Húsgögn
í anda Wes
Anderson
STÓLADAGAR * Gildir ekki afSkovby borðstofustólum
TIANA
Borðstofustóll.
Svartur.
7.990 kr.
13.990 kr.
WILMA
Borðstofus-
tóll. Slitsterkt
grátt áklæði og
viðarfætur.
9.990 kr.
15.990 kr.
CORPUS
Borðstofustóll.
Svart PU-leður
og viðarfætur
17.990 kr.
29.990 kr.
ANDREW
Borðstofustóll.
Bundið leður.
Svart, hvítt eða
brúnt
14.990 kr.
19.990 kr.
28.2. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27
Breski listamaðurinn Damien
Hirst hefur hannað einstakar inn-
réttingar fyrir eigin veitingarstað,
Pharmacy 2 eða Apótek 2. Veit-
ingastaðurinn sem er inni í New-
port-galleríinu í Vauxhall, Lond-
on, dregur nafn sitt af fyrr-
verandi veitingastað Hirst sem
hann átti á árunum 1998-2003 og
bar heitið Pharmacy. Pharmacy
2 er verkefni Damiens Hirst og
Marks Hix. Staðurinn er opinn
fyrir gesti gallerísins þegar það
er opið en á kvöldin er þar bor-
inn fram matseðill sem saman-
stendur af breskum og skandin-
avískum réttum úr hágæða
hráefnum. Innréttingar staðarins
eru innblásnar af verki Damiens
Hirst frá árinu 1992 sem einnig
bar heitið Pharmacy. Sessur bar-
stólanna eru klæddar pastellituðu
áklæði sem á að minna á pillur
en barinn er einnig skreyttur
marglituðum pillum. Á veit-
ingastaðnum er þemað tekið alla
leið svo úr verður áhugaverður
og fallegur veitingastaður sem
mætti mögulega heldur líta á
sem einskonar innsetningu eins
merkasta samtímalistamanns
Breta.
Pharmacy 2 eða Apótek 2 er veitingahús í eigu eins merkasta samtímalistamanns
Bretlands, Damiens Hirst, og er byggður á verki listamannsins frá árinu 1992.
Barinn er litríkur og skemmtilegur og fá marglitaðar pillur að skreyta barinn
sjálfan auk þess sem marglitaðar sessur barstólanna minna á pillur.
Nýr veitingastaður
Damiens Hirst