Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.02.2016, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.02.2016, Blaðsíða 53
Leikkonan Leighton Mees- ter skaust upp á sjónvarps- stjörnuhimininn fyrir hlut- verk sitt sem hin fordekraða Blair Waldorf í ung- lingadramaþátt- unum Gossip Girl um ríka unga fólkið á Manhattan sem sýndir voru á árunum 2007-2012. Færri vita að þótt Meester hafi sann- arlega lifi- brauð sitt af leiklist þá er það tón- listin sem er hennar helsta ástríða í lífinu. Árið 2014 gaf hún út sína fyrstu sóló- plötu sem nefnist Heart- strings. Platan hefur að geyma níu lög sem öll eru samin og flutt af Meester sjálfri. Fyrri afrek hennar á sviði tón- listar eru meðal annars lagið Good girls gone bad sem hún söng með hljómsveitinni Cobra Starship og naut talsverðra vin- sælda árið 2009, þegar frægð- arsól hennar úr Gossip Girl skein sem bjartast. Sólóplata Meester fékk ágæta dóma og líklegt er talið að hún hyggi á frekari landvinninga á sviði tónlistar. LEYNDARMÁL GOSSIP GIRL LEIKKONU Tónlistin helsta ástríðan Leighton Meester er ekki ókunn rauða dreglinum. Blake Lively og Leighton Meester léku saman í Gossip Girl. 28.2. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 53 Hún sló í gegn sem ung Amish-ekkja í spennumyndinni Witness árið 1985. Lék þar á móti sjálfum Harrison Ford og var tilnefnd til Golden Globe-verðlauna. Ári síðar neistaði á milli hennar og Tom Cruise í Top Gun. Költmynd sem sumir myndu segja að væri löðrandi í kynferðislegri spennu. Þriðja stórmyndin var The Accused árið 1988, þar sem hún lék lögmanninn sem reyndi að hjálpa Jodie Foster að klífa þrítugan ham- arinn eftir nauðgun. Það hlutverk tók verulega á enda hafði henni sjálfri verið nauðgað sex árum áður. Kelly Ann McGillis fæddist í Newport Beach, Kaliforníu, árið 1957 og verður því 59 ára síðar á þessu ári. Rúmlega tví- tug flutti hún búferlum til New York til að nema leiklist við Juilliard. Lauk þaðan prófi árið 1983. Eins og fyrr segir fékk ferill hennar fljúgandi start í Holly- wood en eftir The Accused hall- aði hratt undan fæti. McGillis var mjög ósátt við eina af næstu myndum sínum, Cat Chaser, og í kjölfarið greip hana mikið óyndi. Ef þetta er leiklist stend ég ekki í þessu „Það var hræðilegasta reynsla lífs míns. Ef þetta er leiklist stend ég ekki í þessu,“ rifjaði hún upp í samtali við breska blaðið The Independent löngu seinna. Þegar tökum lauk lokaði McGillis sig inni í hjólhýsi sínu á tökustað og rakaði af sér allt hárið – til að undirstrika vilja sinn. Því næst flúði hún í Karíbahafið og dvaldist þar í hálft ár. Viðhorf McGillis til leiklistarinnar breyttist á ný eftir að hún ól sitt fyrsta barn og árið 1991 var hún aftur komin á stóra tjaldið. Myndirnar sem hún lék í á tíunda áratugnum voru þó fáar og vöktu takmarkaða athygli. Kynþokki hennar þótti hafa dalað og ýmsir afgreiddu hana sem furðufugl, ekki síst fjölmiðlar. McGillis er ennþá að, bæði í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum en hefur verið víðsfjarri því að endurheimta fyrri vin- sældir. Fall hennar þykir með þeim dramatískari í seinni tíð og stundum hefur hún verið kölluð „stjarnan sem henti sér til jarðar“. Kelly McGillis er tvígift og tvífráskilin. Hún á tvö börn og þrjú barnabörn. Fyrir sjö árum kom hún nokkuð óvænt út úr skápnum. Í samtali við tímaritið SheWired sagði hún um langt og strangt ferli að ræða en hana mun fyrst hafa grunað að hún væri samkyn- hneigð þegar hún var tólf ára gömul. Í sama viðtali kveðst hún lengi hafa trúað því að almættið hefði verið að refsa henni fyrir kynhneigðina þegar henni var nauðgað. McGillis bjó um tíma með konu en mun nú vera á lausu. Hún býr í Hendersonville, Norður-Karólínu og kennir sviðs- og kvik- myndaleik. Kelly McGillis eins og við munum eftir henni með Tom Cruise í Top Gun. HVAÐ VARÐ UM? KELLY MCGILLIS Stjarnan sem henti sér til jarðar Svona lítur McGillis út í dag. Dagur sjaldgæfra sjúkdóma Málþing haldið á Hilton Nordica 29. febrúar 2016 kl. 13:00 – 15:30 Guðmundur Björgvin Gylfason, formaður Einstakra barna setur þingið Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra -Ávarp Þór G. Þórarinsson, sérfræðingur íVelferðarráðuneytinu -Gildi samvinnu og samþættingar í þjónustu við fólk með sjaldgæfa sjúkdóma Þóra Jónsdóttir, lögfræðingur hjá Barnaheill -Myndbirtingar á netinu – réttur barnsins Kristín Björk Jóhannsdóttir, deildarstjóri Sérdeildar Suðurlands og móðir -„Mundu, þú ert mamman“ -Stuðningur þjónustukerfa við fjölskyldumiðaða nálgun Ingólfur Einarsson, barnalæknir á Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins -Sjaldgæfir sjúkdómar, hlutverk Greiningarstöðvar í samvinnu við aðra Captain Gregory H.Gorman, barnalæknir Medical Corps, U.S.Navy Program Director,National Capital Consortium Pediatrics Residency Umræður Málþingsstjóri: Guðrún Helga Harðardóttir, framkvæmdastjóri Einstakra barna Málþingið er ókeypis en skráning fer fram á www.greining.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.