Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.02.2016, Blaðsíða 48
Ég rannsakaði verkin að beiðnidönsku lögreglunnar og vannskýrslur þar sem niðurstaðan
var sú að verkin væru fölsuð og til-
heyrðu sama hópi verka og við þekkj-
um úr fölsunarmálinu sem snerist um
verk eftir Svavar Guðnason og aðra
listmálara,“ segir Ólafur Ingi Jóns-
son, forvörður hjá Listasafni Íslands.
Í september árið 2014 lagði danska
lögreglan hald á tvö verk eftir list-
málarann Svavar Guðnason í upp-
boðshúsinu Bruun Rasmussen í
Kaupmannahöfn rétt áður en uppboð
á verkunum átti að fara fram. Eftir
rannsókn á verkunum mun danska
efnahagslögreglan ekki leggja fram
kæru þar sem hún telur að brotin séu
fyrnd.
Ekki eru nema fimm ár liðin frá því
að verki eftir Svavar var skilað aftur
til sama uppboðshúss í Danmörku og
það endurgreitt kaupandanum því
verkið reyndist falsað, að sögn Ólafs
Inga.
Ólafur Ingi segir verkin vera anga
af „stóra málverkafölsunarmálinu“
svokallaða en tveir hæstaréttar-
dómar féllu vegna ákæru um
málverkafölsun, annar árið 1999 og
hinn 2004 vegna verka sem gengu
kaupum og sölum á 10. áratug síðustu
aldar. Í fyrri dómi Hæstaréttar var
fullsannað að þrjú verk væru fölsuð
og var ákærði, galleríeigandi, dæmd-
ur fyrir skjalafals og fjársvik en ekki
fyrir málverkafölsun.
Sakborningar í seinna málinu, voru
eigandi og viðskiptafélagi Gallerís
Borgar. Héraðsdómur komst að
þeirri niðurstöðu að 42 myndlistar-
verk sem höndlað var með hefðu ver-
ið fölsuð, sakborningarnir voru sak-
felldir og dæmdir í sex og fjögurra
mánaða fangelsi. Í Hæstarétti voru
þeir sýknaðir vegna formgalla og
ástæðan var m.a. sú að vitni í málinu
var talið vanhæft en það var for-
vörður sem starfaði við Listasafn Ís-
lands en safnið var einnig aðili að
málinu.
Ólafur Ingi telur að fölsuðu verkin
tvö sem nefnast Komposition séu
ekki mikið eldri en frá árinu 1994 og
hafi komist í umferð á sama tíma og
fjölmörg fölsuð verk gengu kaupum
og sölum í Gallerí Borg á 10. áratugn-
um. Á þeim tíma var Gallerí Borg í
samstarfi við dönsku uppboðshúsin
Bruun Rasmussen og Kunsthallen.
Síðar sameinuðust þessi tvö dönsku
uppboðshús undir heiti Bruun Rasm-
ussen.
„Bæði þessi stóru uppboðshús í
Danmörku voru að selja verk og áttu
í viðskiptum við þessa einstaklinga,
Pétur Þór [Gunnarsson] og Jónas
[Freydal] sem voru sakfelldir í hér-
aðsdómi fyrir að höndla með fölsuð
verk,“ segir Ólafur Ingi. Tengsl mál-
verkanna tveggja sem danska lög-
reglan lagði hald á haustið 2014 við
stóra málverkafölsunarmálið eru að
mati Ólafs Inga með þeim hætti að
upphaflega koma þau frá þessum ein-
staklingum á 10. áratugnum.
Annað verkanna sem Ólafur Ingi
telur að séu fölsuð var selt í Galerí
profilen á Jótlandi árið 1994 á sýn-
ingu sem galleríið hélt með olíu-,
pastel- og vatnslitaverkum eftir Svav-
ar Guðnason og þar kaupir danskur
málverkasafnari það. Að sögn Ólafs
Inga voru milligöngumenn að þeirri
sýningu Pétur Þór hjá Gallerí Borg
og Jónas Freydal. „Um þá sýningu
hef ég alltaf sagt að mörg af þeim
verkum sem voru þar voru fölsuð,“
segir Ólafur Ingi. Á þeirri sýningu
voru verk frá ekkju Svavars, Ástu Ei-
ríksdóttur. „Kannski fara verkin af
heimili Ástu, lenda aldrei inni á sýn-
ingunni, eru fölsuð á leiðinni og svo
eru fölsuðu verkin send inn á sýn-
inguna í staðinn fyrir hin eða afbrigði
af öðrum verkum líkt og fölsunin sem
hér um ræðir,“ segir Ólafur Ingi.
Nokkrum árum áður, árið 1991,
var boðið upp verkið Komposition eft-
ir Svavar Guðnason í Kunsthallen,
sem verkið Komposition er stælt eft-
ir.
Hitt verkið sem danska lögreglan
lagði hald á var selt hjá Kunsthallen
í september árið 1994 og er stæling á
„Kosmísku landslagi“ eftir Svavar
frá árinu 1948.
Árið 1998 leggur Ólafur Ingi fram
gögn til beggja uppboðshúsanna og
dönsku lögreglunnar um fjölda verka
eftir íslenska listmálara í Danmörku
sem hann grunaði að væru fölsuð og
tengdust þessum uppboðshúsum í
Danmörku. Á Íslandi ári síðar, 1999,
féll fyrri dómur Hæstaréttar vegna
ákæru um málverkafölsun og þar
kom Bruun Rasmussen við sögu.
Ábyrgðin að selja þessi verk eftir
Svavar liggur hjá uppboðshúsinu,
Bruun Rasmussen. Það er skylda
þess að kanna vel bakgrunn þeirra
verka sem það selur og enn brýnna í
ljósi aðstæðna, segir Ólafur Ingi.
„Það er ekki hægt að komast að
neinni annarri skynsamlegri niður-
stöðu en að forstöðumönnum beggja
þessara dönsku uppboðshúsa, sem
bera ábyrgð innan þessara deilda fyr-
irtækjanna, var fullljóst að þetta voru
falsanir. Sérfræðingar uppboðshúss-
ins vissu nákvæmlega hvað þeir voru
með í höndunum þegar þeir buðu
verkið upp árið 2014. Þeir vita að
verkið kemur upphaflega frá þessum
íslensku aðilum fyrir 20 árum. Eftir
dóminn hefur ekkert breyst í Dan-
mörku. Ekkert. Þekkingin er engu
ríkari um að marflatt málverk með
plastmálningu geti ennþá verið verk
eftir Svavar Guðnason þegar niður-
staða málsins er að svo geti aldrei
verið. Það hefur lengi legið fyrir,“
segir Ólafur Ingi og heldur áfram:
Samfellt brot málverkafölsunar
Ekki verður lögð fram kæra vegna tveggja verka sem eignuð eru listmálaranum Svavari Guðnasyni (1909-1988) þrátt fyrir að for-
vörður hafi komist að þeirri niðurstöðu að þau séu fölsuð. Danska lögreglan lagði hald á verkin haustið 2014 þegar bjóða átti þau
upp en hún telur málið fyrnt. Forvörður segir verkin tilheyra sama hópi verka og koma úr „stóra málverkafölsunarmálinu.“
Þórunn Kristjánsdóttir thorunn@mbl.is
„Ég rannsakaði verkin að beiðni
dönsku lögreglunnar og vann
skýrslur þar sem niðurstaðan var sú
að verkin væru fölsuð og tilheyrðu
sama hópi verka og við þekkjum úr
fölsunarmálinu,“ segir Ólafur Ingi
Jónsson forvörður Listasafns Íslands.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
„Aðgerðirnar munu markast af því sem kemur fram
í tillögum nefndarinnar og ég get ekki tekið afstöðu
til þess fyrr en hún hefur skilað formlega. En mér
hefur sýnst að við þurfum að beina sjónum okkur að
uppbyggingu á getu og þekkingu til þess að fást við
þessi mál,“ segir Illugi Gunnarsson, mennta- og
menningarmálaráðherra, spurður út í aðgerðir til að
sporna við fölsun á málverkum og vísar til nefndar
sem ráðuneytið skipaði um þetta efni, sem mun skila
tillögum líklega í næsta mánuði.
„Það skiptir máli að hægt sé að treysta því að þau listaverk sem eru
keypt séu ófölsuð. Þetta er mikið hagsmunamál fyrir listaverkamark-
aðinn. Fyrir listamennina sjálfa, þá sem selja listina og kaupendur,“
segir Illugi.
Spurður hvort hann telji líklegt að tillögur nefndarinnar eigi eftir
að hafa áhrif á núverandi stöðu á markað með listaverk sem hefur lít-
ið breyst frá því málið kom upp fyrir rúmu 10 árum, segist hann ekki
geta sagt nákvæmlega til um það. „Ekki fyrr en við vinnum úr niður-
stöðunum,“ segir Illugi.
RÁÐHERRA
Mikið hagsmunamál
Illugi Gunnarsson
LESBÓK
48 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.2. 2016