Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.02.2016, Síða 8
Aðeins tvær konur voru í hópi þeirra 207 formanna knattspyrnusambanda
heimsins sem kusu nýjan forseta alþjóðasambandsins, FIFA, í gær. Þegar
kemur að þessari vinsælustu íþróttagrein veraldar er kona sem sagt æðsti
prestur í einungis tveimur löndum; Isha Johansen í Afríkuríkuríkinu Síerra
Leóne og Sonia Bien-Aime frá Turks- og Caicos-eyjum í Karíbahafi.
Hér segir aðeins af þeirri fyrrnefndu.
Isha Johansen, fædd Isha Tejan-Cole, ber nú ættarnafn eiginmannsins,
hins norska Arne Birgir Johansen. Hún er liðlega fimmtug og hefur lengi
stundað viðskipti. Hún var kjörin formaður Knattspyrnusambands Síerra
Leóne 2013 og þóttu aldeilis tíðindi. Áður höfðu reyndar tvær konur gegnt
formennsku í slíkum félagsskap í Afríku; Izetta Wesley í Líberíu 2004 til
2010 og Lydia Nsekera í Búrúndí frá 2004 til 2013. Nsekera situr nú í fram-
kvæmdastjórn FIFA ásamt Bien-Aime sem áður var nefnd.
Tejan-Cole-fjölskyldan hefur um langt árabil verið viðloðandi
fótbolta í Síerra Leóne, Isha kynntist íþróttinni því ung og fékk
strax brennandi áhuga. Faðir hennar var lengi einn af for-
ráðamönnum East End Lions, sigursælasta félags landsins, og
fyrir nokkrum árum stofnaði Isha eigið knattspyrnufélag, FC
Johansen, með eiginmanni sínum. Það er í raun og sann ekki síst
mannúðarfélag því þar fá fyrrverandi barnahermenn og allslausir
drengir að æfa og keppa.
Karlar í Síerre Leóne brugðust margir ókvæða við þegar Isha
var kjörin formaður. „Þeir [karlmenn] skilja
ekki hvað kona er að gera í þessum karlaheimi,“
segir Johansen, spurð um viðbrögðin. „Hátt-
settur maður í knattspyrnuhreyfingunni kallaði
mig vændiskonu í útvarpsviðtali og spurði hvers
vegna fólk hefði stutt mig. Íþróttafréttamaður
sagði að ég væri skömm fyrir konur og að engin
kona vilji verða eins og ég.“
Hún segir ástandið hafa verið afar bágborið í
knattspyrnuhreyfingu heimalands síns. „Allir
gerðu bara það sem þeim sýndist undir merkj-
um íþróttarinnar. Það voru margar dökkar hlið-
ar á knattspyrnunni á þessum tíma. Þótt það
verði það síðasta sem ég geri, þá ætla ég að
breyta hlutunum til hins betra,“ segir Isha Joh-
ansen.
Í PRÓFÍL
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.2. 2016
„Krakkar í hverfinu þar sem við búum voru alltaf í fót-
bolta rétt hjá húsinu okkar. Ég lofaði að útvega þeim
bolta, treyjur og skó – en með einu skilyrði; að þeir
yrðu að samþykkja að halda áfram í skóla. Þannig hófst
saga FC Johansen,“ segir Isha Johansen um það hvern-
ig fótboltafélag þeirra hjóna í Freetown, höfuðborg
Síerra Leóne, varð að veruleika.
Fjórum árum eftir stofnun félagsins tók FC Johansen
þátt í alþjóðlegu móti í Svíþjóð og vann til verðlauna
og fyrir nokkrum árum vann félagið mót fyrir 16 ára og
yngri í Sviss, lagði þá Liverpool frá Englandi í úrslita-
leik. Þá hafa þau hjón haldið alþjóðlegt knattspyrnu-
mót fyrir unglingalið, fyrst allra í landinu.
Það var ekki síst vegna mjög markvissrar og fag-
legrar uppbyggingar FC Johansen sem Isha náði þeim
frama sem raun ber vitni. Margir í heimalandinu sáu
hvað í hana var spunnið þótt aðrir óttuðust ekkert í
fyrstu …
Johansen og eiginmaður hennar búa í Freetown en
dvelja líka töluvert í London vegna starfa sinna.
Isha Johansen ásamt einum frambjóðanda til embættis
forseta FIFA, Salman Bin Ebrahim Al Khalifa frá Barein.
Ótrúlegur upp-
gangur félagsins
Isha Johansen beitir knattspyrnu-
sambandi Sierra Leone í þágu
margvíslegra málefna, þótt
íþróttahliðin sé vitaskuld sú mest
áberandi. Í nafni sambandsins
hafði hún sig til að mynda mjög í
frammi vegna ebólufaraldursins
sem geisaði í fyrra, hefur að-
stoðað við hjálparstarf vegna
flóða og ekki síst er henni mjög
umhugað um kvenþjóðina; vill efla
menntun verulega og ýmiss konar
fræðslu, m.a. til þess að draga úr
ungbarnadauða sem er gríðar-
legur. Hún vill, í stuttu máli, gera
hvað hægt er til að búa konum
betri framtíð en nú er raunin.
Umhugað
um konur
Isha Johansen og Sepp Blatter, fyrrverandi forseti alþjóða knattspyrnu-
sambandsins, FIFA, sem úrskurðaður var í bann frá afskiptum af íþróttinni.
Karlarnir í knattspyrnuhreyf-
ingu Síerra Leóne tóku Isha
Johansen ekki alvarlega fyrst
í stað, margir hverjir, en það
kom þeim í koll. Þegar þeir
reyndu að sýna klærnar var
það orðið of seint. Það eru
reyndar ekki bara bolta-
forkólfar sem hafa reynt að
berjast við hana; greint hefur
verið frá því að forseti landsins
hafi m.a. verið því mjög andsnú-
inn að hún næði kjöri og hafi oft
reynt að setja henni stólinn fyrir
dyrnar.
Frambjóðendur voru fjórir árið
2013 en þegar kom að kosn-
ingum var Isha ein í kjöri. Áður
hafði alþjóðasambandið, FIFA,
meinað hinum þremur, sem allt
voru karlar, að bjóða sig fram.
Ernest Bai Koroma, forseti lýðveld-
isins Síerra Leóne frá árinu 2007.
Forsetinn
lítt hrifinn
Hvað vilt þú
upp á dekk?
Isha Johansen með ungum knattspyrnubörnum heima í Síerra Leóne.
’ Einn kallaðimig vændis-konu í útvarps-viðtali og spurði
hvers vegna fólk
hefði stutt mig
Hin konan! Sonia Bien Aime, for-
seti knattspyrnusambands Turks-
og Caicos-eyja í Karíbahafi.
Isha Johansen, forseti
knattspyrnusambands
Síerra Leóne.
VIÐBURÐA GÆSLA
STAÐBUNDIN GÆSLA
SÉRVERKEFNI
Öryggisverðir okkar eru
vel þjálfaðir og með góða
reynslu af öryggisgæslu
ÖRYGGISVERÐIR
TIL ÞJÓNUSTU REIÐUBÚNIR
Stöndum vaktina allan sólarhringinn
Við erum í
575 7000
Opið 8-17 | vardulfar@vardulfar.is | vardulfar.is