Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.02.2016, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.2. 2016
VETTVANGUR
Ríkisrekstur er víða á Íslandi.Hann virðist hins vegarekki vega þungt í landbún-
aði við fyrstu sýn. Einhverjir gætu
jafnvel talið búmennsku hið mesta
einkaframtak og frelsið óvíða meira
en hjá bóndanum í sveitasælunni
með sín frjálsu dýr. Staðreyndin er
samt sú að ríkið hefur sölsað land-
búnaðinn undir sig að verulegu
leyti með öllu því helsi, hokri og
óhagræði sem slíkum afskiptum
fylgir. Á fimm ára fresti hefur
þessari staðreynd skotið upp koll-
inum þannig að blasi við öllum
mönnum. Það er við gerð búvöru-
samninga. Þess á milli er landbún-
aður bara ein fjárhæð af mörgum í
fjárlögum, 11 til 12 milljarðar á ári.
Það er svipað og Háskóli Íslands
fær af fjárlögum. Við þennan beina
stuðning bætast verndartollar af
ýmsu tagi sem erfitt er að meta ná-
kvæmlega til fjár en óumdeilt er að
skipti milljörðum.
Í lögum er kveðið á um heimild
landbúnaðarráðherra til þess að
semja við bændur um magn afurða
sem bændum verður tryggt „fullt
verð“ fyrir. Í búvörusamningi er
það kallað „sanngjarnt verð“ fyrir
innanlandsmarkað. Sumir tala í
þessu sambandi um neytenda-
styrki. Hér sé verið að tryggja
neytendum gott verð á landbún-
aðarafurðum. En ef þetta er hugs-
að sem styrkur til neytenda liggur
þá ekki bara beint við að úthluta
hverjum þeirra ávísun á íslenskar
landbúnaðarafurðir sem nemur um
40 þúsund krónum á ári?
Það hefur verið ágætur sam-
hljómur með bændum og stjórn-
völdum um að verulegra breytinga
sé þörf á kerfinu. Vandinn kann að
vera sá að ekki er samstaða um
hvert skuli stefna. Ekki er víst að
allir bændur vilji draga úr fjár-
framlögum skattgreiðenda. Ég veit
ekki einu sinni hvort núverandi rík-
isstjórn hefur hug á því. Sumir inn-
an hennar tala stundum eins og
þeir vilji það en fyrirliggjandi bú-
vörusamningar bera þess ekki
merki. Þvert á móti er ríkisstuðn-
ingurinn aukinn. Nýmæli er stuðn-
ingur við svínakjötsframleiðslu og
styrkir eru auknir til nautakjöts-
framleiðslu. Tollverndin er einnig
aukin.
Stuðningsmenn samninganna
benda á að gerðar séu miklar
breytingar á kerfinu. Samið er um
að semja um eftir mörg ár hvort
mjólkurkvóti skuli vera eða fara!
Það kann að vera ágætt að fella
niður kvótafyrirkomulagið en meg-
invandinn við kerfið sjálft hverfur
ekki. Hér er bara hrært í grautn-
um. Í nýju búvörusamningunum
eru engin fyrirheit um að draga úr
ríkisstyrkjum. Sjálfsagt verða
bændur ekki sviptir ríkisfram-
lögum sem þeir hafa notið í áratugi
„yfir nótt“. En hvað með á 10 ár-
um? Væri það ekki raunhæfur að-
lögunartími?
Áratugur án ávinnings
’ Hafi áður verið stemning fyrir því að fram-kvæmdavaldið geti ákveðið til 10 ára að færa tiltek-inni atvinnugrein tugi milljarða á ári úr vösum skatt-greiðenda þá er sá tími liðinn.
Úr ólíkum
áttum
Sigríður Andersen
sigga@sigridur.is
Morgunblaðið/Eggert
Eftir að Háskóli Íslands tilkynnti að
hætt yrði að kenna íþróttafræði á
Laugarvatni lét Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson forsætisráðherra
þessi orð falla í
færslu á Facebook:
„Það er hætt við
því að ákvörðun
HÍ um að leggja af
nám á Laugarvatni
muni gera út af við hugmyndir um
sameiningar eða aukið samstarf HÍ
við menntastofnanir á landsbyggð-
inni. Þetta mun væntanlega kalla á
að fjárveitingum verði í auknum
mæli beint til skóla á landsbyggðinni
á þeirra eigin forsendum. Mennta-
stofnanir eru á meðal mikilvægustu
innviða samfélagsins og þeir innviðir
þurfa að vera traustir um allt land.“
Þessi færsla vakti litla hrifningu
meðal starfsfólks Háskóla Íslands,
enda þótti mörgum sem í þessu fæl-
ist nokkurs konar hótun.
Svanur Kristjánsson prófessor
er virkur á Facebo-
ok og náði ágæt-
lega að fanga al-
menn og einhuga
viðbrögð í þessari
færslu: „Ágætu FB-
vinir! Tímamót í sögu Háskóla Ís-
lands. Ég hef starfað við Háskóla Ís-
lands í ríflega 40 ár. Forsætisráð-
herra Íslands hefur náð miklum
árangri við að efla samstöðu alls
starfsfólks.“
Thelma Hrönn Sigurdórs-
dóttir, aðalleikkonan í Pílu pínu, er
glöð á Facebook í vikunni: „Ég gæti
ekki verið þakklátari fyrir þessa
dásamlegu dóma sem Píla pína hefur
fengið! Ég vona að sem flest ykkar
sjáið ykkur fært á að mæta í þennan
stórfenglega ævintýraheim sem býr í
Hofi! Aðeins 5x sýningar eftir!!“
Vigdís Hrefna
Pálsdóttir leik-
kona datt illa á
sviðinu í Þjóðleik-
húsinu í vikunni og
brotnaði á hæl og
rist. Fresta þurfti frumsýningu á
vampíruleikritinu Hleyptu þeim
rétta inn þar sem hún átti að fara
með aðalhlutverkið. Batakveðjum
hefur rignt inn á Facebook síðuna
hennar frá vinum og vandamönnum.
Stefán Karl Stef-
ánsson sendi
henni kveðju:
„Elskuleg, kem
með salat til þín, ég
veit að það gleður
kannski ekki vampírur en það hjálp-
ar beinum að gróa. Góðan bata, þú
verður komin á fætur fyrr en varir,
það er sterkt í þér og þínum.“
Steingrímur
Sævarr Ólafsson
er litli bróðir Jóns
Ólafssonar tón-
listarmanns sem
fagnaði afmæli í
vikunni. Hann fékk
góða kveðju frá bróður sínum: „Það
hefur verið sagt að menn geti valið
vini sína en ekki fjölskyldu. Ég er
samt viss um að ég hefði valið
Nonna bró ef ég hefði mátt velja
mér bróður. Hann passaði upp á
mig þegar ég var lítill, tók ábyrgð á
mér og talaði raunar fyrir okkur
báða þannig að sumir ættingjar
héldu að ég væri mállaus þangað til á
ellefta ári.“
AF NETINU