Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.02.2016, Page 18
HLAUPÁRSDAGUR 2016
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.2. 2016
Sigþór Árnason, sölumaður hjáBílanaust og íþróttaþjálfarihjá Hress í Hafnarfirði fagn-
ar 48 árunum á mánudag, 29. febr-
úar, á sínum tólfta afmælisdegi.
Hvernig er að eiga afmælisdag
bara á fjögurra ára fresti?
Það er hrikalega gaman í dag
þegar maður er kominn á þennan
aldur. En í minningunni var það
mjög leiðinlegt, þegar ég var barn.
Kennararnir voru í vandræðum
með þetta í grunnskóla og á ein-
hverjum tímapunkti var mér strítt
að eiga aldrei afmæli. Og ég man
það svo sterkt að ég vildi alltaf eiga
afmæli í staðinn 28. febrúar. Alls
ekki fyrsta mars! Það var bara eins
og það væri eitthvert annað fót-
boltalið, það var í mars. Maður vildi
tilheyra áfram febrúar. Það var
manns eigin mánuður. En eftir á að
hyggja er þetta kannski bara
þroskandi og styrkjandi. Þetta er
sprellfjörugt í dag. Ég er innan um
svo margt skemmtilegt fólk sem
samgleðst mér þegar ég á svo loks-
ins afmæli.
Heldurðu upp á afmælið á hverju
ári og er meira gert þegar þú átt
raunverulegt afmæli?
Í dag er þetta aðeins meiri spari-
dagur, þetta fjórða hvert ár. Eins og
í fyrra þá þóttist ég ekkert muna
hvort ég væri 37 eða 47, þá átti ég
ekkert afmæli. Þá bara liðu þessi
mánaðamót.
Hvað ætlar þú að gera á mánu-
daginn?
Ég ætla að hoppa upp í flugvél og
skella mér á Adele tónleika til Bel-
fast. Kærastan mín er að bjóða mér
og við ætlum að einbeita okkur að
því að gera eitthvað skemmtilegt á
fjögurra ára fresti, í tilefni afmæl-
isins. Þetta er í fyrsta sinn sem við
erum saman á mínu afmæli.
Manstu hvað þú varst gamall þegar
þú uppgötvaðir að þú áttir í raun
bara afmæli á fjögurra ára fresti?
Það er sennilega þegar ég fæ
þennan þriðja afmælisdag. Þá kom
blaðamaður frá Morgunblaðinu.
Áttu einhvern eftirminnilegan af-
mælisdag?
Já, það var vel haldið upp á þann
tíunda, þegar ég varð bæði fertug-
ur og fékk þann tíunda. Það var
mjög eftirminnilegt en það var gert
mjög mikið úr honum í líkamsrækt-
arstöðinni þar sem ég er að þjálfa
og mikið húllum hæ hjá vinum og
ættingjum. En sá sem er minn-
isstæðastur er þegar ég átti ekki
afmæli. Það var þegar ég fékk bíl-
próf. Þá var ég 17 ára og það var
enginn afmælisdagur. Þá var þetta
svo kósí hér í Hafnarfirði að við átt-
um okkar lögreglustöð og ökukenn-
arinn minn var lögreglumaður. Ég
man að það var mikið kappsmál að
reyna að fá bílprófið þann 28. En
það kom ekki til greina. Þeir vildu
ekki afhenda mér það fyrr en fyrsta
mars. Ég vildi auðvitað reyna að
græða þennan eina dag, fannst ég
eiga það skilið. Ég fékk það ekki að
öðru leyti en að ég mátti fara upp á
lögreglustöð á miðnætti, og þá gat
ég sótt það.
Eitthvað að lokum sem þú vilt
segja um þennan afmælisdag?
Já, það hefur alltaf komið upp
sama sagan. Það er með móður
mína. Hún gekk framhjá
fæðingarheimilinu á þessum
herrans degi 29. febrúar 1964 og
hafði þá orð á því við vinkonur sín-
ar: ekki myndi ég vilja eiga barn á
þessum degi. Og fjórum árum
seinna kem ég í heiminn á þessum
degi!
Morgunblaðið/Ásdís
SIGÞÓR ÁRNASON 48 ÁRA (12 ÁRA)
Alls ekki
fyrsta mars!
Jóhanna Rún Snæbjörnsdóttir er ungReykjavíkurmær sem fagnar tólf árunumá mánudag, 29. febrúar. Það er þó aðeins í
þriðja skipti sem dagurinn hennar birtist á
dagatalinu.
Hvernig er að eiga afmæli á fjögurra ára
fresti?
Það er eiginlega alveg eins nema þessi þrjú
ár sem maður á ekki afmæli má maður ráða
hvort það er haldið upp á það 28. eða fyrsta
mars. Fer eftir því hvað hentar best, en ég hef
oftast haldið það 28.
Hafa krakkarnir í skólanum strítt þér á
þessu?
Nei, mér hefur ekkert verið strítt. Stundum
er gert grín að því að ég sé yngst en það er
aldrei sagt neitt sem særir mig. Þeim finnst
þetta frekar fyndið, eða bara skrítið.
Hvað varstu gömul þegar þú uppgötvaðir að
þú ættir öðruvísi afmælisdag en allir aðrir?
Ég var búin að fatta það þegar ég var fjög-
urra ára en fyrsta minningin mín var þegar ég
var átta ára, þá fór ég líka í viðtal. Það var út-
varpsviðtal.
Áttu einhvern eftirminnilegan afmælisdag?
Þegar ég fór í viðtalið, ég man rosalega vel eftir
því. Svo er bara alltaf rosalega gaman á afmæl-
unum mínum. Ég fæ alltaf afmælið mitt en það er
bara meira sérstakt ef það er á fjögurra ára fresti.
Hvað ætlarðu að gera á afmælinu á mánu-
daginn?
Ég ætla að borða góðan mat og hvíla mig inn á
milli. Ég er rosamikil matarmanneskja. Ég ætla
að hafa nautasteik og bernaise í aðalrétt og bráð-
inn geitaost í forrétt. Í morgunmat hef ég reykt-
an lax og brauð og í kaffitímanum sushi. En á
sunnudaginn höfum við fjölskylduveislu.
Finnst þér meira gaman að halda upp á
afmælið á hlaupári?
Já, það er meira sérstakt fyrir mig. En þegar
það er ekki fæ ég ekkert minna.
Myndirðu vilja skipta um afmælisdag?
Nei, alls ekki.
Viltu segja eitthvað að lokum um þennan
sérstaka afmælisdag?
Já, ég bjó til gátu um þetta! Hún er svona:
Ég á bara einn bróður og hann er bæði stóri
bróðir minn og litli bróðir. Hver er ástæðan?
Morgunblaðið/Ásdís
JÓHANNA RÚN SNÆBJÖRNSDÓTTIR 12 ÁRA (3 ÁRA)
Bjó til gátu um
afmælisdaginn Þ
að verður víða blásið til fagnaðar
mánudaginn 29. febrúar. Þá fá 213
Íslendingar loks að halda upp á af-
mæli sitt eftir langa bið. Fagnar
sú elsta 92 ára afmæli sem verður
í 23 skiptið sem hún sér daginn sinn á dagatal-
inu. Þau yngstu verða fjögurra ára á mánudag-
inn. Það er því ástæða til að fagna þessum
sjaldgæfa afmælisdegi.
Flestum finnst gaman að
eiga afmæli. Við eigum
þennan eina dag á ári sem
við getum kallað okkar. Við
fögnum þá enn einu árinu
sem bætist við lífið. Dagsetn-
ingin fylgir okkur út ævina
og við bindumst henni
ákveðnum tilfinn-
ingaböndum.
Öll eigum við ótal
minningar frá liðnum
afmælisdögum, óvænt-
um atvikum, skemmtilegum pökk-
um og geggjuðum veislum. Oftast í
faðmi fjölskyldu eða vina. En
hvernig tilfinning er það að
sjá að dagurinn manns er bara
alls ekki á almanakinu nema fjórða
hvert ár? Þetta gæti flokkast undir
ákveðin svik. Það er verið að snuða
sumt fólk um þessi almennu mannrétt-
indi; að eiga afmælisdag á hverju ári.
Blaðamaður hitti fólk sem deilir
þessum sjaldgæfa afmælisdegi. Öll
voru þau ánægð með daginn sinn og
vildu ekki skipta, þótt
þau gætu. Þó
reyndist það sum-
um erfitt í æsku að
eiga sjaldan afmæli
en það breyttist
með aldrinum.
Flest vildu þau til
heyra febr-
úarmánuði og
flest þeirra
halda meira
upp á daginn
þegar hlaupár
er. Eitt er víst að dag-
urinn er einstakur og við ósk-
um hlaupársafmæl-
isbörnunum til
hamingju með hann.
Hlaupársbörn
ánægð með
daginn sinn
Einungis 0,0006% Íslendinga eiga afmæli 29. febrúar, hlaup-
ársdag. Þessir 213 einstaklingar fá loksins að fagna afmælinu
sínu á mánudag eftir fjögurra ára bið. Nokkur hlaupársbörn
voru tekin tali og spurð um sinn einstaka afmælisdag.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Getty Images/iStockphoto