Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.02.2016, Blaðsíða 19
28.2. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19
Hinrik Snær Guðmundsson, verk-fræðinemi, fagnar tuttugu árunum ámánudaginn 29. febrúar, hlaup-
ársdag. Það er fimmti afmælisdagurinn hans.
Hvernig er að eiga löglegt afmæli bara á
fjögurra ára fresti?
Það er skemmtilegt. Margir halda að ég sé
sorgmæddur yfir því en mér finnst það bara
meira spennandi. Það er léttara fyrir fólk að
muna hvenær maður á afmæli.
Hvernig upplifðir þú það sem barn?
Mér fannst þetta alveg frekar spennandi,
maður var sérstakur, öðruvísi.
Hvort hélstu upp á daginn 28. febrúar eða
fyrsta mars?
Það var svona blanda af báðu þar til ein-
hvern tímann þá hugsaði ég að ég ætti afmæli
daginn eftir 28. Mér fannst það vera góð pæl-
ing. Þannig að fyrsti mars var svona aðal. Ef
ég hefði fæðst á öðru ári á nákvæmlega sama
tíma hefði örugglega verið 1. mars. Ég vil eiga
afmæli 1. mars en facebook er algerlega ósam-
mála því og segir að ég eigi afmæli 28. febrúar.
Ég þarf kannski að senda þeim skilaboð. Mað-
ur beið spenntur fyrst þegar facebook kom, að
sjá hvað þeir myndu segja.
Hvað varstu gamall þegar þú fattaðir að af-
mælisdagurinn þinn væri bara fjórða hvert
ár?
Ég held það hafi verið svona 8 eða 12, þá
voru haldnar stærri veislur.
Hvað ætlarðu að gera á mánudaginn?
Það er nú helvíti leiðinlegt að eiga afmæli á
fjögurra ára fresti og þegar maður loksins á
afmæli þá er það á mánudegi! Hitti illa á. En á
föstudeginum er ég búinn að panta hæð á Le-
bowski.
Grunaði foreldra þína að þú yrðir hlaup-
ársbarn?
Ég veit ekki alveg hvernig það var en ég var
fyrsta barnið sem fæddist þennan dag þetta
árið. Það vildu einhverjir blaðamenn fá að tala
við mömmu en hún var svo þreytt. Ég fæddist
tvær mínútur yfir tvö. Ef ég hefði fæðst um
tveimur tímum fyrr þá fengi ég að halda aðeins
oftar upp á afmælið!
Morgunblaðið/Ásdís
HINRIK SNÆR GUÐMUNDSSON 20 ÁRA (5 ÁRA)
Facebook er
ósammála mér
Inda Björk Alexandersdóttir, vörubílstjóriog nemi í félagsráðgjöf, fagnar fjörutíu ár-unum á mánudaginn 29. febrúar á tíunda
afmælisdegi sínum.
Hvernig er að eiga afmæli á fjögurra ára
fresti?
Voða gaman núna. Þetta var alveg agalegt
þegar ég var barn. Það var endalaust verið að
stríða manni á þessu. Góðlátlegt grín, en þeg-
ar maður er barn þá finnst manni það ekki
fyndið. Það var verið að segja: þú átt ekki af-
mæli í ár! Svo komu pakkarnir á síðustu
stundu.
Hvort var haldið upp á afmælið 28. febrúar
eða 1. mars?
Það var yfirleitt 28. Það var nú eiginlega ég
sem ákvað það að því ég á afmæli í febrúar og
þá er það 28. sem gildir. Það er ekki mars.
Hvað varstu gömul þegar þú uppgötvaðir
að þú ættir í raun bara afmæli á fjögurra
ára fresti?
Ætli ég hafi ekki verið svona fimm ára. Að
daginn vantaði inn í dagatalið. Ég var að skoða
dagatal og þá sá ég það. Ég man að afi var að
reyna að útskýra þetta fyrir mér. Ég átti mjög
bágt með að bekenna þetta, mér fannst þetta
alveg fáránlegt.
Heldurðu meira upp á afmæli þitt á raun-
verulega afmælisdeginum?
Já, ég geri það núna. Í seinni tíð.
Hvað á að gera á mánudaginn?
Mánudagurinn er alveg óráðin gáta. Við för-
um örugglega bara út að borða, fjölskyldan.
En svo ætla ég að halda veislu 5. mars. Held
alvöru partý og verð með hljómsveit.
Finnst fólki ekki sérstakt að þú eigir þennan
afmælisdag?
Jú, jú, ég er oft spurð, já, þú ert ein af þeim!
Morgunblaðið/Ásdís
INDA BJÖRK ALEXANDERSDÓTTIR 40 ÁRA (10 ÁRA)
Daginn vantaði
í dagatalið
Skjöldur Magnússon, fyrrverandi bifreiðastjóri,slökkviliðsmaður og hluthafi hjá Borgarplasti, fagn-ar áttatíu árunum á tuttugasta afmælisdegi sínum á
mánudaginn 29. febrúar, hlaupársdag. Hann er fæddur og
uppalinn í Borgarnesi þar sem faðir hans átti bílastöð.
Hvernig er að eiga þennan sérstaka afmælisdag?
Þegar ég var krakki var ég mjög óhress með þetta, að
eiga ekki afmæli eins og aðrir. Móðir mín hélt yfirleitt upp
á það 28. febrúar. Svo þegar ég fór að eldast kunni ég svo
sannarlega að meta þennan afmælisdag og vil ekki skipta
á honum og neinum öðrum. Af því hann er svo sérstakur.
Manstu hvað þú varst gamall þegar þú uppgötvaðir að
þú ættir bara afmæli á fjögurra ára fresti?
Nei, ég man það ekki. En ég man að þegar ég var sextán
ára var ég farinn að kunna að meta 29. febrúar, og allar
götur síðan.
Heldurðu meira upp á afmælið þegar það er hlaupár?
Já, aðeins meira. Það er svona í fyrsta skipti núna sem
ég finn að þetta er stór dagur, þegar maður er áttræður.
Mér fannst það ekkert merkilegt þegar ég varð fertugur
eða sextugur, en finnst það núna áttræður, kominn á síð-
asta legginn.
Hvað ætlarðu að gera á „tvítugsfmælinu“ þínu?
Þá förum við hjónin út að borða í Perluna. Ég afþakkaði
stórveislu og í staðinn förum við út að borða.
Er einhver afmælisdagur eftirminnilegri en aðrir?
Já, þegar ég var tuttugu ára. Þá var ég að keyra (sem
bifreiðarstjóri) og það lengdist aðeins hjá mér keyrslan.
Ég kom ekki heim fyrr en um nóttina. Og þegar ég kom
heim þá beið afmælisterta á borðinu. Um miðja nótt. Þetta
var mér mjög minnistætt.
Hvenær fannst þér þú eiga afmæli, 28. febrúar eða 1.
mars?
Mér fannst ég ekki eiga afmæli 28. febrúar þegar það
var verið að halda upp á það. Og alls ekki í mars.
Hvað með bílprófið, fékkstu það 28. febrúar eða fyrsta
mars?
Ef ég á að segja þér sannleikann um mig: af því að ég er
alinn upp á stöðinni var ég auðvitað síkeyrandi. Svo þegar
það kom að því að taka bílprófið þá sagði bifreiðaeftirlits-
maðurinn við mig: þú ert búinn að keyra svo mikið að ég
ætla að straffa þig í eina viku. Ég fékk því að taka bílprófið
viku seinna. Ég átti alltaf von á þessu. Ég keyrði nú þessa
dagana eins og hina.
SKJÖLDUR MAGNÚSSON 80 ÁRA (20 ÁRA)
Afmælisterta
um miðja nótt
Forinnritun nemenda í 10. bekk stendur yfir 4. mars til 10. apríl
Forinnritun nemenda í 10. bekk (fæddir 2000 eða síðar) hefst föstudaginn
4. mars og lýkur sunnudaginn 10. apríl. Í grunnskólum sínum fá nem-
endur afhent bréf frá Menntamálastofnun sem inniheldur leiðbeiningar
um umsóknarferlið og veflykil sem gengur að umsókn á Menntagáttinni,
www.menntagatt.is. Foreldrar/forráðamenn nemenda fá bréf frá Mennta-
málastofnun með upplýsingum um innritunina sent á lögheimili sitt.
Nemendur í 10. bekk eru eindregið hvattir til að taka þátt í forinnrituninni.
Innritun eldri nemenda stendur yfir 4. apríl til 31. maí
Innritun eldri nemenda (fæddir 1999 eða fyrr) hefst mánudaginn 4. apríl og lýkur
þriðjudaginn 31. maí. Til að sækja um þarf Íslykil eða rafræn skilríki/auðkenni.
Lokainnritun nemenda í 10. bekk stendur yfir 4. maí til 10. júní
Nemendur í 10. bekk hafa frest til miðnættis föstudaginn 10. júní til að sækja
um nám í framhaldsskóla eða breyta umsóknum úr forinnritun. Einkunnir þeirra
verða sendar rafrænt frá grunnskólunum til framhaldsskólanna eftir skólaslit.
Fjar- og dreifnám og nám í kvöldskóla
Innritun í fjar- og dreifnám og í kvöldskóla fer fram samkvæmt fyrirkomulagi sem
einstakir framhaldsskólar auglýsa.
Nánari upplýsingar um innritun í framhaldsskóla má fá hjá Menntamálastofnun
í síma 514 7500 eða í gegnum tölvupóstfangið innritun@mms.is.
Starfsfólk Menntamálastofnunar
Innritun í framhaldsskóla fyrir haustönn 2016
Nú geta allir fengið iPad-áskrift
Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/