Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.02.2016, Side 28
MATUR J.C. Jacobsen bruggaði ekki bara handverksbjór þess tíma, heldurskartaði hann vel snyrtu skeggi, gekk í gömlum en vönduðum fötum,
hékk með rithöfundum og deildi bruggkunnáttu sinni með öðrum.
Fyrsti hipsterinn?
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.2. 2016
Í seinni tíð tengir fólk Carlsberg-bjórinn kannski aðallegavið miðaldra menn að horfa á fótbolta í vandræðalegaþröngum bolum en Carlsberg er engu að síður mjög
sögufrægur bjór,“ segir Stefán Pálsson, sagnfræðingur og
bjórspekúlant, þegar blaðamaður sest með honum yfir freyð-
andi kollu til þess að fræðast aðeins um þetta danska bjór-
merki. „Þeir taka þessa þýsku aðferð og gera með henni ljós-
an lagerbjór sem andsvar við dökka ölinu sem þá var
ríkjandi. Það er svo kannski rökrétt að Danir, þetta mikla
flota- og siglingaveldi með gríðarmikinn kaupskipaflota miðað
við íbúatölu, séu þjóðin sem býr til bjórinn sem flæðir að end-
ingu út um allan heim.“
Jacobsen-feðgar og danska
blómaskeiðið
Uppruna Carlsberg má rekja um 170 ár
aftur í tímann, til ársins 1845 þegar J.C.
(sem stendur fyrir Jacob Christian) Jacob-
sen snýr til baka frá Suður-Þýskalandi
með lifandi lagerbjór í farteskinu. Hið
heilaga gral þess tíma í bjórheiminum var
hinn ljósi, þýski lagerbjór og Jacobsen
einsetti sér að brugga slíkan bjór. Hann
reisti brugghús í því skyni árið 1847 og
skýrði fyrirtækið „Carlsberg“ í höfuðið á
barnungum syni sínum og að auki með
vísun í hólinn sem brugghúsið stóð á. Til
að ljá nafninu svolítið forframaðan blæ
notaðist hann við hina þýsku orðmynd
„berg“ í staðinn fyrir danska orðið
„bjerg“. „Laust fyrir miðja 19. öld er
gróskumikið tímabil, ákveðið blómaskeið, í
Danmörku. H.C. Andersen er að skrifa sín
ævintýri, Örsted fer mikinn á
sviði eðlisfræðinnar og Thor-
valdsen vekur athygli fyrir
höggmyndalist sína. J.C. Jacob-
sen sprettur upp úr þessari
stemningu og nær gríðarlega
góðum árangri nánast strax
með sinn ljósa bjór. Carlsberg
nánast rúllaði öllu öðru upp
með fullkomnari tækjabúnaði
og vísindalegri nálgun en sam-
keppnin. Bjór var helst hugs-
aður til staðbundinnar neyslu
en með átöppun á glerflöskur
var hægt að flytja hann yfir höf.
Það breytti öllu.“
Tilgangslaust að skora
Carlsberg á hólm
Stefán heldur áfram: „Þannig
voru þeir Jacobsen-feðgar á
undan sinni samtíð. Þeir
fluttu út flöskubjór í kassavís
og eru bara á allt öðrum stað
en samkeppnin. Hér á landi
verður Carlsberg-bjórinn
hreinlega gæðaviðmið hvað
bjór varðar og það er mjög
fyndið að lesa bjórauglýs-
ingar í íslenskum blöðum frá
aldamótunum 1900 þar sem
aðrar danskar bjórtegundir
eru auglýstar af íslenskum in-
flytjendum. Þar segir iðulega
að sú tegund sem auglýst er
sé hreinlega næstum því jafn
góð og Carlsberg, eða sé
vafalaust sú næstbesta.“
Stefán hlær við. „Það skor-
aði enginn kónginn á hólm,
enda hefði það bara verið
ótrúverðugt og asnalegt að
reyna það.“ Það er skondið
til þess að hugsa að á tím-
um þegar kaupmenn hikuðu ekki við að grípa til efstastigs í
auglýsingum sínum, þá vogaði sér enginn annar að segja
sinn bjór bestan. „Þess í stað létu menn sér nægja að segja
eitthvað á borð við: „Margir telja að þessi bjór sé ekki mikið
síðri en Carlsberg“ og voru bara mjög ánægðir með það.“
Þaðan er máske sprottið slagorðið sem fylgt hefur Carlsberg
allar götur síðan – hver veit?
Morgunblaðið/Golli
Carlsberg og frumherjinn J.C. Jacobsen
Það bar nýverið til tíðinda í bjórheim-
inum hér á landi að hinn sögufrægi
Carlsberg flutti sig um set frá Vífilfelli
til Ölgerðarinnar Egils Skallagrímssonar,
og styrktist við það úr 4,5% í 5%. Af því
tilefni er rétt að staldra við og skoða
sögulegt mikilvægi þessa víðfræga bjór-
merkis og kynnast um leið J.C. Jacobsen.
Jón Agnar Ólason jonagnar@mbl.is
„Það má ekki gleyma
því að það er tæknilega
flóknara að brugga lager,“
segir Stefán Pálsson um
hinn ljósa Carlsberg.
Eins og sjá má á þessum gamla flöskumiða af Carls-
berg-bjór sem ætlaður var til útflutnings til Íslands,
prýddi sólkrossinn – öðru nafni hakakross og swas-
tika upp á útlenskuna – umbúðir Carlsberg. Swas-
tikan er ævagamalt tákn úr sanskrít og stóð það fyr-
ir velferð og gæði í víðum skilningi. Árið 1881 ákvað
Carl Jacobsen að gera hakakrossinn að tákni bjórs
síns (sem var þá reyndar hinn nýi Carlsberg, brugg-
aður í samkeppni við gamla Carlsberg sem faðir
hans, J.C. Jacobsen, bruggaði) en Jacobsen yngri
hafði mikinn áhuga á Grikklandi til forna og Róm en
í báðum þessum fornu
menningarheimum var
táknið mikið notað.
Þegar nasistar tóku
hins vegar upp á
því að gera haka-
krossinn að sín-
um hætti Carl
Jacobsen hins-
vegar að lítast á
blikuna og árið
1940 var alfarið
hætt að nota
merkið, af skilj-
anlegum ástæð-
um.
Sólkrossinn prýddi
umbúðirnar
Það er kunnara en frá þurfi að segja að
þessi misserin lítur bjóráhugafólk oft niður
á ljósan lagerbjór, og þeir sem fylgjast með
í handverksbjórkreðsunni telja frekar
bragðmeiri bruggstíla á borð við IPA, Bar-
leywine, Porter og aðra slíka meðal sinna
uppáhaldsbjóra. Þetta er þó ekki alveg
maklegt, eins og Stefán útskýrir. „Menn
brugga annaðhvort öl eða lagerbjór. Lag-
erbjór er stærri og útbreiddari en öl í dag
en sögulega séð var hann alltaf erfiðari við
Þeir feðgar gerðu sér ítrekað ferðir suð-
ur á bóginn til að læra listina og komast að
leyndarmálinu, með góðu eða illu, og að
endingu komust þeir yfir lager-ger sem
þeim tókst að halda lifandi meðan þeir
ferðuðust heim til Danmerkur.
„Þeir voru þannig í fararbroddi með
sinn ljósa lagerbjór í Danmörku og mörk-
uðu sér þegar í stað sérstöðu, heima og
heiman.
Restin, eins og þeir segja, er sagnfræði.“
til að mynda enginn heimabruggari sem
byrjar á því að gera lager,“ bætir Stefán
kankvís við.
„Þetta þýðir að menn sáu ljósa lag-
erbjórinn sem bruggaður var í Bæjara-
landi í Suður-Þýskalandi, og ekki síður í
Tékklandi, sem hið helga gral í þessum
fræðum öllum saman. Þessi svæði höfðu
það orðspor að búa til besta bjórinn og
aðrir, meðal annars J.C. Jacobsen og sonur
hans Carl, vildu komast á þann stall.“
að eiga. Hann er gerjaður við lægra hita-
stig sem þýðir það að menn voru alltaf að
kljást við það í gamla daga að sumrin voru
of heit til að brugga lagerbjór. Þá var nú-
tíma kælitækni ekki komin til sögunnar.
Það er nefnilega svo að þó lagerbjór sé
einfaldari – hann skilur lítið eftir sig við
bruggun annað en áfengi og kolsýru, en öl
býður upp á margvíslega lyktar- og bragð-
tóna – þá má ekki gleyma því að það er
tæknilega flóknara að brugga lager. Það er
Ljósi lagerbjórinn verðskuldar virðingu
J.C. Jacobsen,
stofnandi
Carlsberg.