Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.02.2016, Qupperneq 36

Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.02.2016, Qupperneq 36
Ekki er öll dýratengd ferða- mennska af hinu slæma. Skýrsla World Animal Pro- tection segir að í fjórðungi tilvika séu dýratengd ferða- þjónustufyrirtæki að gera villtum dýrum gott, og á það einkum við um dýraathvörf þar sem ekki eru haldnar sýningar eða gestum leyft að komast í beina snertingu við dýrin. Ferðamenn ættu að kynna sér vel valkostina og forðast þá staði sem hafa fengið umsagnir sem benda til að eitthvað annað en hag- ur dýranna sé í fyrsta sæti. Þá ætti vitaskuld að sneiða alfarið hjá afþreyingu sem er hrein og klár dýra- pynting, eins og nautaat. Sumir ferðamenn heim- sækja nautaatssýningar í löndum eins og Spáni og Mexíkó með það fyrir aug- um að upplifa menningar- einkenni staðarins, en fá fljótlega nóg af hroðanum og halda á brott þegar ósköpin eru rétt að byrja. Áhorfendapallarnir verða oft tómlegir þegar ferðamenn- irnir eru farnir, en verðið sem þeir greiddu fyrir mið- ann hjálpar til að halda grimmilegri starfseminni gangandi. Sumt gott, annað skelfilegt FERÐALÖG Eftir tuttugu ár verðurðu svekktari út af hlutunumsem þú gerðir ekki en út af hlutunum sem þú gerðir. Mark Twain. Að fara eða ekki fara? 36 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.2. 2016 Það getur verið mergjuð upp-lifun að komast í tæri viðframandi dýr á ferðalögum úti í heimi. En stundum er það sem virð- ist ósköp meinleysisleg skemmtun með dýrunum að valda þeim miklum skaða. Bresku dýraverndarsamtökin World Animal Protection birtu á dögunum lista yfir dýratengda af- þreyingu sem ábyrgir ferðamenn ættu að forðast. Hér að neðan eru nokkur atriði af listanum og eflaust er þar sumt sem kemur lesendum á óvart. Þjáning dýranna blasir nefni- lega ekki alltaf við. Reiðtúrar á fílum Fílar eru heillandi skepnur og getur verið hápunkt- urinn á ferðalagi um SA-Asíu að komast í tæri við einn slíkan. En á bak við stuttan reiðtúrinn leynist löng saga þjáningar. Þjálfun fílanna kallar á að þeir séu fjarlægðir frá mæðrum sín- um á unga aldri og látnir þola mikið harðræði þar til þeir sýna algjöra undirgefni. Upplifunin getur valdið áfallastreituröskun sem fylgir fílnum alla ævi. Þá þurfa fílarnir oft að búa við erfiðar aðstæður og við þrengsli, og fá ekki að þroska eðlileg tengsl við aðra fíla. Þetta veldur þeim tjóni bæði líkamlega og andlega. Myndir og rölt með tígrisdýrum og ljónum Hver hefur ekki séð mynd á Facebo- ok frá einhverjum vininum sem stillir sér upp með syfjulegu tígr- isdýri eða pirruðum ljónshvolpi? Stóru kettirnir eru mik- ilfengleg dýr og fallegt mynd- efni, en eiga ekki heima við þessar að- stæður. Hvolp- arnir sem túr- istar fá að kjassa hafa verið teknir frá mæðrum sínum og þurfa að þola að vera handfjatlaðir eins og tuskudúkkur margar klukku- stundir á dag. Þegar dýrin eldast eru þau áfram notuð sem skemmtun, og verða ófær um að lifa úti í náttúrunni. Þar sem finna má fullorðin tígrisdýr sem ferðamenn fá að umgang- ast er sennilegt að þau hafi verið beitt harka- legri þjálfun og séu jafnvel dópuð. Höfrunga- sýningar Þó höfrungurinn virðist brosa þá er það ekkert sældarlíf að vera hluti af sædýrasýningu. Oft eru höfrungarnir fang- aðir á skelfilegan hátt og streitan svo mikil að mörg dýrin lifa ekki af flutningana á áfanga- astað. Í sædýragörð- unum er þessum spöku skepnum komið fyrir í tönkum sem eru varla stæri en sundlaug, sem er ónátt- úrulegt umhverfi fyrir höfrunginn sem er van- ur óravíddum hafsins. Bjarnagarðar Í þessum görðum er mörgum bjarndýrum safnað saman á lítið svæði og lítið sem getur örvað þá. Það er björnum ekki eðlislægt að vera í svona mikilli nálægð við marga aðra birni og von á átökum, meiðslum og sýk- ingum. Enn verra er ef birnirnir eru þvingaðir til að sýna sirkusatriði eins og að standa á bolta eða hjóla á reið- hjóli. Apasýningar Apar sem gera alls kyns trix geta verið ákaflega krúttlegir og fyndnir en að baki kúnstunum er harkaleg þjálfun og þegar apinn er ekki að „vinna“ er hann oft geymdur við slæmar aðstæður í þröngum búrum eða hlekkjaður fastur einhvers stað- ar þar sem hann getur lítið hreyft sig. Dansandi slöngur Slöngutemjarar hafa skemmt vegfar- endum frá örófi alda, en þessi iðja er ekki sniðug fyrir því. Yfirleitt eru slöngurnar veiddar úti í nátt- úrunni og högg- tennurnar teknar úr þeim með töng- um á grimmileg- an og frum- stæðan hátt. Er þetta gert því bit- ið getur ver- ið banvænt mannfólki, en slangan þarf oft að þola sárs- aukafulla sýkingu sem getur jafnvel dregið hana til dauða. Krókódíla- búgarðar Það færist í aukana að krókódílar séu ræktaðir á þar til gerðum krókódílabýlum, einkum til að skaffa tískugeir- anum krókódílaleður. Þessi býli eru í seinni tíð farin að laða til sín ferða- menn sem vilja berja krókódílana augum og oft er krókódílasteik hluti af ferðinni. Að sögn World Animal Protection er aðbúnaður krókódílanna oft hörmulegur, og þrengslin mikil. Streita og óhreinindi geta valdið sjúkdómum og átökum milli krókó- dílanna sem slást og bíta fæturna hver af öðrum. Þegar dýrin þjást fyrir ferðamennina Margur pottur er brotinn í dýratengdri ferða- þjónustu og þurfa túristar að sýna ábyrgð Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Höfrungar á sædýrasýningum eru oftar en ekki hafðir í allt of litlum tönkum. –– Meira fyrir lesendur ÍMARK DAGUR Föstudaginn 4. mars gefur Morgunblaðið út sérblað, tileinkað ÍMARK deginum PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA Fyrir kl. 12, þriðjudaginn 1. mars NÁNARI UPPLÝSINGAR Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is Íslenski markaðsdagurinn verður haldinn hátíðlegur með veglegri ráðstefnu í Háskólabíói 4. mars.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.