Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.02.2016, Page 37
Hvað þarf maður í
raun að fá út úr hót-
elherbergi og hverju
má sleppa? Aðstand-
endur citizenM-hótel-
keðjunnar hafa greini-
lega pælt vandlega í
þessari spurningu og út-
koman er straumlínulöguð her-
bergi þar sem lúxusinn er á rétt-
um stöðum og verðið mjög
sanngjarnt.
Þannig er rúmið stórt og
mjúkt, en til að nýta plássið betur
er enginn fataskápur og hvað þá
heldur buxnapressa eða míníbar.
Er hægt að hengja flíkur upp á
snaga, ef þess þarf, en annars er
undir rúminu risastór skúfa sem
rúmar eina opna ferðatösku í
fullri stærð. Þarf sumsé bara að
koma töskunni á sinn stað og
opna og loka skúffunni eftir þörf-
um.
Sushi og kampavín
Ef gestir verða svangir fara þeir
einfaldlega í lítið mötuneyti sem
er opið allan sólarhringinn.
Matarframboðið breytist yfir dag-
inn og spannar allt frá sushi og
kampavíni yfir í samlokur og
kaffi.
Síðan er ókeypis þráðlaust net
í öllum herbergjum, öflug sturta
sem dekrar við kroppinn, ókeypis
kvikmyndir í sjónvarpinu og risa-
stórir gluggar sem gefa útsýni yf-
ir borgina.
CitizenM er nú þegar með
hótel í Amsterdam, Glasgow,
London, New York, París og Rot-
terdam og þykja herbergin nokk-
uð ódýr miðað við staðsetningu
og aðbúnað. Þannig á herbergið í
New York, steinsnar frá Times
Square, að geta farið allt niður í
159 dali á nóttina á meðan Lund-
únahótelið, rétt hjá Þúsaldar-
brúnni, rukkar minnst 109 pund
fyrir gistinguna.
ai@mbl.is
MÍNIMALÍSK HÓTEL Í NEW YORK OG VÍÐAR
Enginn
skápur í
hótelher-
berginu
Það er enginn óþarfi í herbergjum citzienM.
28.2. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 37
Þegar gengið er um götur New
York er auðvelt að fá minnimátt-
arkennd og þykja maður ósköp fá-
tækur og vesæll í samanburði við
milljarðamæringana sem strunsa
um þessa vellauðugu borg. Myndu
sumir því segja að varla væri á
bætandi að leggja leið sína í gull-
hirslur seðlabankans í New York
þar sem gullstöngunum er staflað
lengst upp í loft.
Neðst á Manhattan er nærri
aldargömul bygging sem minnir
helst á miðaldakastala. Þar hefur
seðlabanki New York aðsetur og í
kjallaranum er einhver öruggasta
geymsla sem finna má, sneisafull
af gulli. Gullið tilheyrir ekki bank-
anum heldur geymir hann verð-
mætin fyrir aðra, s.s. alþjóða-
stofnanir og ríkisstjórnir ýmissa
landa.
Fáir miðar í boði
Öryggið er svo mikið að bankinn
treystir sér alveg til að bjóða
ferðamönnum að skoða hvelf-
inguna. Er aðgangur ókeypis en fá
pláss í boði og þarf að panta miða
með góðum fyrirvara á heimasíðu
bankans, NewYorkFed.org. Vita-
skuld þarf að fara í gegnum örygg-
isskoðun og framvísa skilríkjum.
Bannað er að taka myndir meðan
á ferðinni stendur og einnig bann-
að að vera með barnavagna. Þá
eru gestir beðnir að vera ekki
með mikið af bakpokum og pinkl-
um.
Auk þess að sjá gullbirgðirnar
eru gestir leiddir um aðra hluta
byggingarinnar og fræddir um
sögu og hlutverk seðlabankans.
Þykir upplifun að fara inn í
rammgirta hirsluna og áhugavert
að læra hvernig seðlabankinn
starfar.
Er ágætt að sýna leiðsögu-
mönnunum þá tillitssemi að
sleppa brandaranum um hvort
hægt sé að fá ókeypis sýnishorn.
Þeir hafa örugglega heyrt þann
brandara hundrað sinnum áður.
ai@mbl.is
KOSTAR EKKERT AÐ SJÁ AUÐÆFIN
Í gullgeymslunni eru stangir í eigu ríkja og stofnana. Byggingin er nær aldargömul og minnir óneitanlega á virki.
Heimsókn í gullgeymsluna
Sjá útsölustaði Crabtree & Evelyn á www.heggis.is
Umferðarmiðstöðin BSÍ • 101 Reykjavík • 580 5400 • main@re.is • www.flugrutan.is • www.re.is
BSÍ - Umferðarmiðstöðin
Reykjavík
Keflavíkurflugvöllur
Kauptu miða núna á www.flugrutan.is
*Miðast við að keyptur sé miði fram og til baka frá BSÍ eða Keflavíkurflugvelli á 4.000 kr.
2.000 kr.*
FYRIR AÐEINS
Alltaf laus sæti Alltaf ferðir Hagkvæmur kostur
Frí þráðlaus internet-
tenging í öllum bílum
Ferðatími u.þ.b.
45 mínútur
Umhverfisvænt
VIÐ
SKUTLUM
ÞÉR!
Áætlunarferðir Flugrútunnar eru í
tengslum við allar komur & brottfarir
flugvéla um Keflavíkurflugvöll.