Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.02.2016, Qupperneq 47
28.2. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 47
Á sunnudag er lokasýning á róm-
uðu barnaverki Íslenska dans-
flokksins, Óður og Flexa, um
enga venjulega krakka heldur ofur-
hetjur sem geta flogið. Sýnt er á
Nýja sviði Borgarleikhússins.
Hin kunna og margverðlaunaða
finnska þjóðlagasveit Värttinä
kemur fram með Sinfóníuhljómsveit
Norðurlands í Hofi á sunnudags-
kvöldið. Og leikur óstudd í Nor-
ræna húsinu á mánudagskvöldið.
Stockfish-hátíðinni lýkur í Bíó Para-
dís á sunnudag. Fjöldi kvikmynda er
sýndur um helgina og eftir sýningu
á Victoria á laugardag kl. 17.30
situr tökumaðurinn Sturla Brandt
Grøvlen fyrir svörum.
Á sunnudag klukkan 14 mun
Dagný Heiðdal listfræðingur
leiða gesti um hina áhugaverðu
sýningu Sjónarhorn í Safnahúsinu
við Hverfisgötu. Þetta er hrífandi
sýning sem allir þurfa að sjá.
Aladár Rácz píanóleikari, Gunn-
hildur Halla Guðmundsdóttir
sellóleikari og Ármann Helgason
klarinettuleikari koma fram á tón-
leikum í röðinni Hljóðön í Hafn-
arborg á sunnudagskvöld kl. 20.
Þekktir píanókvartettar eftir tón-
skáldin Gabriel Fauré og Johannes
Brahms eru á efnisskrá tónleika
Kammermúsíkklúbbsins í Hörpu á
sunnudagskvöldið kl. 19.30; píanó-
kvartett nr. 2 í g-moll op. 45 eftir
franska tónskáldið Fauré (1845-
1924) og píanókvartett nr. 1 í g-moll
op. 25 eftir Brahms (1833-1897).
Flytjendur eru góðkunningjar fé-
laga klúbbsins og hafa allir komið
fram á fjölda tónleika á undan-
förnum árum, þau Ari Þór Vil-
hjálmsson fiðluleikari, Þórunn Ósk
Marinósdóttir víóluleikari, Sigurður
Bjarki Gunnarsson sellóleikari og
píanóleikarinn Ástríður Alda Sig-
urðardóttir.
„Við höfum öll spilað saman í
ýmsum hópum á tónleikum en ekki
komið fyrr saman í þessari mynd á
tónleikum Kammermúsíkklúbbs-
ins,“ segir Ari Þór. Hann hefur ný-
verið breytt um starfsvettvang, spil-
aði á dögunum um stöðu hjá
Fílharmóníusveit Helsinki og fékk
hana. Ari komst í fréttir vegna
ferðalagsins í prufuspilið, þar sem
starfsmenn flugfélagsins Norwegi-
an vildu ekki hleypa honum í vélina
með fiðluna. Ari gerði mál úr því, nú
hefur reglum verið breytt og segir
hann glettnislega þessa umtöluðu
fiðlu fá að hljóma á tónleikunum.
Óíkt tónmál verkanna
„Bæði þessi verk eru ný fyrir okk-
ur,“ segir Ari Þór síðan. „Ekkert
okkar hefur leikið verkið eftir
Fauré en eitt okkar hefur áður leik-
ið verkið eftir Brahms.“
Og hvernig skyldi glíman við þau
hafa gengið?
„Mjög vel. Kammermúsíkklúbb-
urinn óskaði eftir því að við lékum
verkið eftir Fauré, það hefur aldrei
verið flutt hjá þeim, síðan kom hitt
sem góð viðbót.
Fyrir utan ytri umgjörð eru ekki
mikil líkindi með þessum verkum:
þau eru af svipaðri lengd og bæði í
fjórum köflum, en tónlistin er mjög
ólík. Verk Fauré er mjög impress-
jónískt, eins og var í gangi í Frakk-
landi á þessum tíma, en Brahms er
fremstur í flokki þýskra tónskálda.
Við höfum unnið í því að draga fram
hvað tónmál þesara verka er ólíkt,“
segir hann. „Og það er skemmtilegt
að glíma við það að draga fram ólík
form verkanna.“
Besta tónleikaröðin
Þegar Ari Þór er spurður út í leik-
inn með kvartetti sem þessum, þá
segir hann að hann bjóði upp á að
allir njóti sín vel en um leið þarf
jafnvægið að vera fínt. „Við erum öll
svolitlir sólistar en jafnframt hluti
af hópnum,“ segir hann og bætir við
að það sé nauðsynleg tilbreyting
fyrir hljómsveitarspilara að leika
líka með minni kammerhljóm-
sveitum.
„Tónlistarlega er það nærandi að
spila reglulega kammertónlist, það
gefur manni mikið og er mjög
skemmtilegt. Svo er Kammer-
músíkklúbburinn besta tónleikaröð-
in að spila í á Íslandi.“ efi@mbl.is
Flytjendurnir á tónleikunum: Ari Þór Vilhjálmsson, Sigurður Bjarki Gunn-
arsson, Ástríður Alda Sigurðardóttir og Þórunn Ósk Marinósdóttir.
Nærandi að spila
kammertónlist
Píanókvartettar eftir Gabriel Fauré og Johannes
Brahms hljóma á lokatónleikum starfsárs Kamm-
ermúsíkklúbbsins á sunnudagskvöld.
Gabriel Fauré Jóhannes Brahms
MÆLT MEÐ
Morgunblaðið gefur út þann
10. mars glæsilegt
sérblað um HönnunarMars
–– Meira fyrir lesendur
PÖNTUNARFRESTUR
AUGLÝSINGA:
fyrir kl. 12,
mánudaginn
7. mars.
NÁNARI
UPPLÝSINGAR
GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is
Hátíðin verður haldin víðs
vegar um Reykjavík þar
sem saman koma íslenskir
hönnuðir og sýna fjölbreytt
úrval nýrrar íslenskrar
hönnunar og arkitektúrs af
margvíslegu tagi.
HönnunarMars
DesignMarch
Reykjavík 10.-13.03.2016
Gylfaflöt 5 | 112 Reykjavík | 520 2200 | sorpa@sorpa.is
B
ra
nd
en
b
ur
g Ekki laumupokast
Breyting á endurvinnslustöðvum. Gerðu öllum auðveldara
fyrir og komdumeð blandaða úrganginn í glærum poka