Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.03.2016, Síða 11
27.3. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11
eru þeir til að mynda með yfir 20 milljón
spilanir á tónlistarveitum á borð við Spotify.
Það er því óhætt að segja að mikil eftirvænt-
ing ríki á meðal aðdáenda sveitarinnar.
Markhópurinn hefur aðeins stækkað; frá því
að vera rúmlega 300 þúsund á Íslandi yfir í
300 milljónir í Bandaríkjunum.
Á nýju plötunni verður nýtt efni í bland við
það sem áður hefur verið gefið út á Íslandi.
„Þetta verður 10-11 laga plata og lögin
verða með svipuðu mynstri og verið hefur,
miskraftmikil,“ segir Jökull sem segist ekki
fylgja neinum sérstökum straumum og
stefnum þegar hann semur lögin. Upptökum
er að mestu lokið og er platan nú á lokastigi
hljóðblöndunar.
„Ég reyni að setja sál í þetta og vonandi
tengir fólk við tónlistina. Þetta ævintýri hér
hefur gengið ótrúlega vel þrátt fyrir að við
höfum ekki enn gefið út plötu.“
Uppselt á alla tónleika
síðustu vikurnar
Kaleo-drengirnir eru nýkomnir úr vel heppn-
uðu tónleikaferðalagi um Bandaríkin. Upp-
selt var á hverja einustu tónleika sveit-
arinnar en tónleikastaðirnir rúmuðu á bilinu
600-1.200 manns. Ferðalagið stóð í 36 daga
og heimsóttar voru 15 borgir. „Við spiluðum
stundum tvisvar eða þrisvar á dag, sem var
oft mikið álag. Við erum að vinna með um-
boðsskrifstofu, plötufyrirtæki, bókunarskrif-
stofu, útgáfufyrirtæki og allir að reyna að
hafa okkur sem sýnilegasta. Það er því reynt
að nýta hvert tækifæri til að koma okkur á
framfæri og mynda tengsl hingað og þang-
að.“
Bandaríkjamenn eru því greinilega byrj-
aðir að kveikja á rokkurunum frá Íslandi.
„Já, heldur betur, þetta var fyrsti túrinn
okkar sem aðalband en sveitin Firekid hefur
hitað upp salinn.“ Báðar hljómsveitinar eru á
samningi hjá hinu sögufræga plötufyrirtæki
Atlantic Records.
„Það eru allir í skýjunum með túrinn og
kom þessi mikla aðsókn okkur skemmtilega á
óvart,“ segir JJ en dæmi voru um að uppselt
væri á tónleika með margra mánaða fyr-
irvara.
„Ég held að það hafi verið Íslendingar á
hverjum einustu tónleikum á WayDown-
WeGo-túrnum. Fólk mætir með fána og gef-
ur okkur íslenskt nammi, harðfisk og brenni-
vín eftir tónleika. Við kunnum að meta það.
Við erum rosalega sáttir og spenntir fyrir
framhaldinu. Væntanlega verður annar túr
tekinn í Norður-Ameríku í sumar. Þá er
einnig stutt í að herjað verði á Evr-
ópumarkað.“
Það er talsvert umfang sem fylgir hljóm-
sveitinni og á ferðinni um Bandaríkin fylgdi
þeim þónokkur fjöldi aðstoðarmanna.
Ferðast var um á stórri rútu sem rúmaði 12
manns í kojum.
„Sem betur fer var keyrt á nóttunni og þá
gátum við hvílt okkur eftir gigg, það munar
öllu.“
Santana tekur við lúxusrútunni
Eins og flestir vita eru vegalengdir í Amerík-
unni alveg gígantískar og getur Jökull
ómögulega sagt til um hversu margir kíló-
metrar hafa verið eknir.
„Eftir fyrstu mánuðina okkar hér í fyrra
vorum við búnir að keyra yfir 60.000 kíló-
metra. Eftir það missti ég töluna. Þú getur
verið búinn að keyra héðan í 9-10 klukkutíma
og ert ennþá í Texas.
Við vorum allavega allir voða fegnir að
komast úr langferðabílnum sem við vorum í
áður yfir í svona fullkomna rútu.“
Greinilegt er að mikil keyrsla er á strák-
unum en þeir játa þó að stundum fái þeir að
Ljósmynd/Alex Justice
’ Tónleikarnir eru margir ogþví erfitt að ná að taka uppplötu á sama tíma. Við reynumað nýta stoppin til að taka upp og
má nefna að nýjasta lagið okkar
er tekið upp í sjö borgum víðs-
vegar um Bandaríkin.
Gullbarkinn Jökull Júlíusson fer
fyrir hljómsveitinni á tónleikum
sveitarinnar í Washington.
TÚRAÐ UM BANDARÍKIN
#WAYDOWNWEGO
Í hljóðveri útvarpsstöðvar í Philadelphiu.
Spilað fyrir troðfullum sal í San Diego þar
sem WayDownWeGo-túrnum var lokað
en uppselt var á alla tónleika sveitarinnar.
Rubin Pollock leikur við hvern sinn fingur.
Davíð Antonsson ber húðirnar af krafti.
Fararskjótinn var ekki að verri endanum
enda var dvalið þar löngum stundum.
Mosfellingar í heimsókn í Texas. Túrlokum
fagnað með mikilli grillveislu í Austin.