Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.03.2016, Blaðsíða 39
27.3. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 39
Þeir sem ætla út á lífið í Reykjavík í
kvöld, laugardag, gætu komið við á
KEX hosteli við Skúlagötu þar sem
gleðisveitin FM Belfast og rapp-
arinn Emmsjé Gauti lofa dynj-
andi partítónum, eftir klukkan 21.
Áhugafólk um myndlist er hvatt til
að skoða hina áhugaverðu sýningu
Kvartett í Listasafni Íslands. Þar
getur að líta vegg- og
myndbandsverk eftir
Tuma Magnússon
og málverk og sam-
klipp eftir þrjá er-
lenda listamenn.Fyrir þá sem eru fyrir vestan nú um
páskahelgina má benda á áhuga-
verðan tónlistarviðburð í Edin-
borgarhúsinu á laugardagskvöldið.
Þar koma fram Agent Fresco,
Úlfur Úlfur og Glowie.
Tvær nýjar íslenskar kvikmyndir
eru sýndar í kvikmyndahúsum
borgarinnar þessa dagana: Fyrir
framan annað fólk og Reykjavík,
sem rýnir Morgunblaðsins hreifst
af og gaf bbbbn. Allir í bíó!
Ljótu hálfvitarnir halda seinni
hluta upprisuhátíðar sinnar í ár á
Græna hattinum á Akureyri í
kvöld, laugardag, og hefst hún
klukkan 22. Þeir hyggjast „spila og
fíflast að fornhálvískum sið.“
Þetta er ekki listrænn viðburðurheldur skemmtun – og viðvonum að gestir skemmti sér
vel,“ segir Óskar Pétursson tenór um
óskalagatónleikana sem þeir Eyþór
Ingi Jónsson orgelleikari og Hjalti
Jónsson tenór halda í Akureyrar-
kirkju í kvöld, laugardag, klukkan 20.
Þeir Óskar og Eyþór Ingi hafa
nokkrum sinnum kom fram á tón-
leikum sem þessum og hafa nú boðið
Hjalta að slást í hópinn. Fyrir-
komulag tónleikanna er með þeim
hætti að þegar tónleikagestir mæta
geta þeir lesið lista með nokkur
hundruð lögum sem söngvararnir
eru reiðubúnir að flytja, og svo þurfa
gestirnir að kalla upp númer laganna
sem þeir vilja heyra og tónlistar-
mennirnir reyna að flytja sem flest
þeirra.
„Svo einfalt er það,“ segir Óskar
um nálgunina á tónleikunum. Efnis-
skráin er fjölbreytt, óperuaríur, hug-
ljúfar dægurperlur, rapplög og allt
þar á milli.
Glens og gaman er sagt einkenna
tónleikana, sem og mögulegur vand-
ræðagangur tenóranna við að finna
lög og texta í möppunum sínum.
Verður nú fullkomið
„Hingað til höfum við Eyþór Ingi
komið einir fram á óskalagatónleik-
ununum,“ segir Óskar. En hves
vegna bætist Hjalti nú í hópinn?
„Til að hafa meiri fjölbreytni!“
svarar Óskar að bragði. „Þetta er allt
fyrir fólkið gert – og nú verður þetta
fullkomið. Þá er ég að verða svo gam-
all að það er gott að fá einhvern til að
leysa mig af.
Svo er hitt, að það er meira en að
segja það að standa á blístrinu í
næstum tvo tíma, stundum upp á háa
C-inu. Ég hef stundum verið dasaður
og það verður gott að fá Hjalta til að
létta undir með kallinum.“
Markmiðið að létta sálina
Óskar segir að líklega séu um þrjú-
hundruð lög á listanum sem gestir
geta valið sér af, og þeir gætu hæg-
lega haft þau fleiri.
Þegar spurt er hvort ekki sé
óþægilegt að standa frammi fyrir
tónleikagestum og vita ekkert hvern-
ig efnisskráin eigi að vera, þá segir
hann það bara skemmtilegt.
„Ef ég man ekki textann eða eitt-
hvað, þá skálda ég bara eða syng
næsta lag við hliðina,“ segir hann og
hlær. „Það er hluti af þessu. Svo kalla
kannski tíu í einu og allir hver sitt
númerið, þá myndast kaos og maður
velur bara það sem manni líst best á!
Við héldum ekki svona tónleika í
fyrra og það var farið að rukka okkur
um þá.
En við æfum lítið. Við höfum ekki
jafnað okkur ennþá á því að í hitti-
fyrra æfðum við eitt lag fyrir tón-
leikana, það var Nína og svo var ekki
beðið um það. Við ætlum ekki að
brenna okkur á því aftur. Enda flutt-
um við Nínu á næstu tónleikum, án
þess að vera beðnir. Til þess að geta
nýtt lagið.“ Óskar hlær og bætir við
að meginmarkmið tónleikanna sé að
létta sálina.
„Það er gott fyrir okkur, þessa
kalla, eins og mig og Eyþór sem
stöndum mikið þarna á kirkjuloftinu
og niðri á gólfinu, að hleypa sálinni
aðeins á flug. Að blása út. Og sjá
þessi andlit, sem maður hefur stund-
um verið með á erfiðum stundum í
kirkjunni, brosa núna og gera að
gamni sínu. Það er alveg nauðsyn-
legt.“
Félagarnir Eyþór Ingi Jónsson, Óskar Pétursson og Hjalti Jónsson blaða í
söngvasafni og ráða ráðum sínum fyrir óskalagatónleikana.
Ljósmynd/Elvý G. Hreinsdóttir
Þetta er allt fyrir
fólkið gert
Tenórarnir Óskar Pétursson og Hjalti Jónsson
koma fram á óskalagatónleikum í Akureyrar-
kirkju ásamt Eyþóri Inga Jónssyni orgelleikara.
Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is
MÆLT MEÐ
þegar þú vilt
kvarts stein
á borðið
Blettaábyrgð
Viðhaldsfrítt yfirborð
Slitsterkt
Bakteríuvörn
Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | www.rein.is
By Cosentino
Virkar á MOSA og VRE sýkingar
- Bakteríueyðandi plástur -
Fæst í apótekum | Celsus ehf. | www.celsus.is
Fyrirbyggir og eyðir sýklum í sárum
Áhrifarík sárameðferð án sýkladrepandi efna.
Sorbact® - Græn sáralækning
Fyrir tilstilli vatnsfælni bindast sárasýklar við umbúðirnar,
verða óvirkir og hætta að fjölga sér, án sýkladrepandi
efna. Skaðar ekki nýjar frumur. Ótakmörkuð notkun á allar
tegundir sára. Dregur úr sársauka. Engar aukaverkanir.
Vatnsheldur og ofnæmisfrír límflötur.
Þolir íþróttir, leiki,
sturtuböð og sund.
Krumpast ekki á köntum.